15.08.2007 23:09

Ný hljómsveit stofnuð á Ströndum.



HEYRT HEF EG. Já í dag hitti eg mann sem sagði mér það að hann hefði fengið símtal í dag frá þektkum hljómsveitarmanni sem hefur í það minnsta spilað einu sinni í Bragganum sem var í fyrra, og þessi maður sagði við minn heimildarmann að það væri búið að stofna hljómsveit á Ströndum sem héti því skemmtilega nafni Strandamenn. Og þessi þekkti hljómlistamaður að sunnan sagði mínum tíðindarmanni það að þetta væri þrusu band með fjórum Strandamönnum plús þessum sunnanmanni, og að þessi hljómsveit mundi spila á réttarballinu á Laugarhóli í haust. Og æfingar mundu hefjast innan nokkra daga. Þá er bara að íhuga það hverjir skipa þessa hljómsveit sem kalla sig Strandamenn. En minn heimildamaður upplýsti mig um það hverjir þetta væru. Og eitt er þó víst að þessir sóma Strandamenn hafa í allmörg ár komið nálægt hljóðfærum af ýmsum toga. En hvort það sé rétt að það sé búið að ráða söngvarann er eg í miklum vafa um það. Eins og áður sagði einungis heyrt hef eg? .