24.08.2007 23:00

Ný bílastæði í Hveravík.





Í dag og í gær hefur verktakafyrirtækið KNH ehf sem hefur verið að endurbæta vegin á Selströndinni, verið að gera tvö bílaplön. Bílaplanið sem var gert í gær er fyrir þá sem eru með fornleifauppgröftin, kennt við Baskana. Og bílaplanið sem var gert í dag er beint uppaf gömlu ónýtu sundlauginni, örugglega hugsað fyrir þá sem koma til að skoða hvar sundlaugin var.