26.01.2010 06:23

Er eitthvað að. Í kvöld í KSH var mér hótað kæru ef ég myndi birta mynd af eigum viðkomandi, sorrí.



Frá vefstjóra. Eins og er get ég ekki kommentað á þann stað sem á að gera það, þess vegna er það gert hér. Vonandi kemst þetta í lag hjá 123.is

Stína mín.
Ég skil og veit hvað þú ert að meina og fara enda reyndur penni til margra ára.
En í þetta skiptið sem þetta atvik átti sér stað gat og get ekki annað en sett þetta á mína síðu, enda ef einhver vill skamma mig og eða eiga við mig orð þá er það lámark kvurteisi að gera það í tveggja manna samtali ekki þar sem fullt er af forvitnu fólki. En Stína, þú getur ekki verið hlutlaus gagnvart þessum umrædda ágæta manni, þar sem þið eigið þessa útgerð saman er mér sagt ásamt steypukallinum?  .

Nú um kl 13.00 hringdi meðeigandi Huldunar ST ? í mig, sem er oft kallaður steypukallinn og vildi koma því til skila á minni síðu sem margir skoða, að hann Steypukallinn og sundlaugayfirmaðurinn og afleisinmgarlögga á Ströndum eiga þennan bát saman til helminga. = 50% - 50% = 100% Sum sé þeir eiga bátinn saman og þá má ég taka myndir af hálfum bátnum 50% steypukallsins  sem bað mig að gera það og ég ætla gera það á næstu misserum.


En þú minntist á öldurhús, ég hef í nokkur skipti tekið myndir af Þorra og Gúu og nú í desember af Jóla hlaðborði á Kaffi Riis. Ég tel mig hafa í það minnsta ekki farið yfir línuna umræddu. Ef ég á að bera mig saman við aðrar blogg og mynda síður í birtingu á fullu fólki og eða því tengt, þá kemst ég ekki hálf kvist á við þær mynd birtingar sem eru á netinu, saman ber þær síður sem fjalla einungis um fullt fólk á pöbba rölti í Reykjavík. Ég er ekki heilagur á neinn hátt, ef einkvað er birt af sumum eignum sumra hvað sem það heitir verða sumir brjálaðir, já þó að hlutirnir séu dauðir. Ég er ekkert að keppast í einhverju áhorfi eða fjölda skoðenda, en því er ekki að leyna að ég hef fengið góðar mótökur með mínar síður sem fólk kann að meta, ég sagði að meta sem eru myndirnar sem ég hef stundað meira en 40 ár. Það væri helvíti hart að banna manni að taka myndir af umhverfi sem okkur er skapað af drottni heilögum anda, þannig að ég læt svona hroka ekki naga mig á næstu misserum ef guð lofar.
Kíkið á þessar vefslóðir http://www.superman.is/ og http://www.69.is