Færslur: 2014 Apríl

17.04.2014 13:30

Mikill mismunur á kaffiverði í Bónus Borgarnesi og Kaupfélagi Steingrímsfjarðar Hólmavík.

                                                               Bónus Borgarnesi.
                                                            KSH Hólmavík.

16.04.2014 23:43

Sjónhverfingar af verstu gerð og það á árinu 2014.


Sjónhverfingar af verstu gerð og það á árinu 2014.

 Vegna - http://strandabyggd.is/frettir/Byggdasaga_Stranda_samkomulag_um_kaup_og_utgafu/?fb_action_ids=1475377342679458&fb_action_types=og.likes

 Þetta ritverk Strandir (Byggðarsaga Stranda) er hörmungarsaga og hafa ósannindi riðir þar ríkjum vel á annan áratug og gerast vart verri í ósannindum á fróni voru. Að reina lepja því inní heilabú okkar að þetta ritverk kosti ekki nema 12 miljónir er helber lygi og að hlutur Strandabyggðar sé 66.84% er bölvað bull. Í byrjun skal segja hver stóð að þessu ritverki sem var Búnaðarsamband Strandamanna og deilt á ræktunarfélögin í Strandasýslu sem voru á þessum tíma fimm og lánin tekin í gegnum þau hjá Sparisjóði Strandamanna fyrir skuggalegum löngum tíma síðan í gegnum vina þel sem voru og eru óbeint á ská og skjön báðumegin við borðið, ef þetta væri almennur látakandi þá væri löngu búið að gera hann upp og gjaldþrota og að framreikna þau lán til dagsins í dag er talan hrikaleg og má líkja henni við litla Æseyf hneykslið á Strandasvæðinu. Með sölulíkur á þessu ritverki til að dekka þennan útlagðan kostnað er bara brota brot af þeim miljónum sem hafa verið lagðar í verkið fyrir utan alla þá styrki sem ritverkið hefur fengið í gegnum árin. Sparisjóður Strandamanna hefur nú þegar afskrifað miljónir og ef ritverkið selst ekki upp í kostnað þá er búið að ákveða að afskrifa afganginn sum sé 100% afskrifað. Áætlað að íbúa fjöldi í Strandasýslu sé um ca  um 700 mans sem þíðir að um rúm 200 heimili munu kannski kaupa verkið? En það voru tugir manna sem búnir að borga fyrir ritverkið fyrirfram þannig að fólkið fer ekki að bora aftur fyrir þetta ritverk og vitandi það að margir eru dánir og ekki má gleyma því að myndirnar sem kvu eiga að vera í ritverkinu sem teknar voru 1993 og 1994 eru barns sýns tíma og þar af leiðandi engum bjóðandi og að þær verði í bókinni er fásinna svo einfalt er það, fólk dáið og skilið hvort við annað og annar ef til vill aðili komin inn í líf þess ó nei.

Það skal upplýst fyrir þá sem ekki vita að undir ritaður var í menningarmálanefnd Strandabyggðar í nokkur ár og veit talsvert um þetta ritverk fyrir utan það er hann er búin að vera Landpóstur yfir 14 ár og hef hitt marga og gerir enn og spurði oft ritstjórann sjálfan hvenær bókin mundi koma út og alltaf kom sama svarið að hún mundi koma út á næstu mánuðum sem eru ornir hátt í 200 mánuðir fyrir utan síðasta ritstjóra sem sagði sig úr Menningarmálanefndinni vegna þess að hann væri búin að taka að sér viða mikið verkefni sem væri bókin Strandir og að hann væri nú þegar byrjaður á verkinu og væri búin að taka viðtöl og myndir frá Brú í Hrútafirði og norður í Bitrufjörð en annað kom í ljós þegar á reyndi, þetta var á haustmánum 2009 og allir vita hvernig fór um sjóferð þá sem var engin innistæða var fyrir sem er mjög grátlegt.

Og að ætla til þess að íbúar Strandasýslu kaupi þetta ritverk bara si svona til að bjarga orðstír síðustu ritstjóra er engum bjóðandi og hvað þá hvernig var og er staðið að þessu ritverki er engum bjóðandi þó að það séu að koma að kosningum séu í vor í endaðan maí 2014.

Ég bið fólk að endingu að hugleiða ef allir mundu haga sér svona þá væri heimili Strandverja löngu komin á höfuðið og litla sem enga fjármuni þar að fá enda eru flest öll heimili heiðarleg og vilja standa í skilum við allt og alla þó að flestir sitji ekki við sama peningaborðið á þeim bænum. Eitt skal jafnt yfir alla ganga eða hvað. Ef ég sem Landpóstur mundi ekki skila af mér póstinum á þeim dögum sem á að fara þá væri ég rekin hið snarasta svo einfalt er það. Punktur.

16.04.2014 21:16

Kokkálsvíkurhöfn.





16.04.2014 21:14

Vík á Selströnd.