Færslur: 2016 Febrúar

22.02.2016 16:52

Snjóamyndir frá deginum í dag.



138

139


144





17.02.2016 16:32

Sveitarfélagið í Kaldrananeshreppi bókaði eftir farandi á sveitarstjórnarfundi 10.02.2016.


Sveitarfélagið í Kaldrananeshreppi bókaði eftir farandi á sveitarstjórnarfundi 10.02.2016. 

Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps mótmælir harðlega þeirri skerðingu sem íbúar sveitarfélagsins eru beittir með boðaðri skerðingu á póstþjónustu í dreifbýli. Öllum má ljóst vera að flestir sem skert póstþjónusta bitnar nú á búa ekki við neins konar aðra þjónustu af sama eða svipuðum toga auk þess sem sömu svæði búa við algerlega ónothæft netsamband sem útilokar að fólk geti sinnt störfum eða námi á netinu. 

Sveitarstjórn mótmælir einnig harðlega þeim ójöfnuði sem enn og aftur er boðaður fólki í dreifðari byggðum þessa lands og kemur berlega í ljós í reglugerð, nr. 868/2015 um breytingu á reglugerð nr. 365/2003 þar sem stendur í 10 gr. 
"Á dreifbýlissvæðum, þar sem kostnaður við dreifingu er þrefaldur eða meiri miðað við sams konar kostnað í þéttbýli, er rekstrarleyfishafa heimilt að fækka dreifingardögum í annan hvern virkan dag" 
Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps skorar jafnframt á ráðamenn þjóðarinnar að endurskoða áður nefnda breytingu á reglugerð nr.365/2003 um skerta póstþjónustu í dreifbýli og jafnframt að snúa við þeirri hugsun að í lagi sé að festa í lög og reglugerðir ójafnræði milli íbúa þessa fámenna lands"   
Meira um sama efni  ­-  http://holmavik.123.is/blog/2016/01/27/743338/

  • 1