23.04.2009 21:49

Skotfélag Hólmavíkur var stofnað í kvöld á sumardeginum fyrsta.



Skotfélag Hólmavíkur var stofnað í kvöld í Björgunarsveitarhúsinu hér á Hólmavík. Stofnfélagar eru nú þegar orðnir 24 og von er á fleirum á næstunni. Og á fundinum var samþykkt að kanna hvort að ekki væri hægt að fá sem æfingastað svæði uppí Húsadal, sem virðist vera gott svæði til skotæfinga.

Stjórn var kosin sem er þessi, Gunnar Sigurður Jónsson formaður, Gunnar Logi Björnsson, Alferð Gestur Símonarson, Sigurður Marinó Þorvaldsson og Úlfar Hentze Pálsson, og til vara Már Ólafsson og Arnar Barði Daðasson.