Blogghistorik: 2013 N/A Blog|Month_2
28.02.2013 21:15
Enn einn steinkallinn fann ég nú í Skeljavíkinni, hann liggur á bakinu með hendur á maga
28.02.2013 21:14
Þessi flotbryggja kom í einu óveðrinu í vetur en hvaðan er ekki vitað, svar óskast við því
28.02.2013 20:58
Það spáir vetri síðla helgar og fram í næstu viku, þegar veðri slotar verða beltatækin ræst
27.02.2013 22:27
Sorgardagar hafa flætt yfir hjá minni ætt og mér tengdum síðustu daga.
Það eru nú
takmörk á því hvað er hægt að leggja á suma með gjörninga náttúruhamförum og
það á ungt og upprennandi fólk sem á lífið allt framundan. En sumum er ekki
ætluð að vera í okkar lyfandi lífi en takast þá örugglega á við önnur verkefni
á æðri stöðum. Ég er afar stoltur að
eiga heilsteypta ættingja og vini á öllum aldri og ekki síst að eiga heilsteypt
og hraust börn sem eru mér allt. Á erfiðum tímum eins og hefur verið nú síðustu
daga þegar dóttir mín Hekla Björk og unnusti hennar Oddur Logi eignuðust lítinn
strák síðla kvölds 25 síðastliðin komin 21 viku á meðgöngu er öllum ofiða að
horfast í augun á þeirri staðreynd að litli snáðinn verði ekki á meðal vor nema
í huga okkar og hjá öllum förnum ættingjum á æðri stöðum og ég líka veit það að
móðir mín heitin og langamma snáðans Svava Pétursdóttir frá Hrófbergi hafi
tekið vel á móti honum og vermi hann á allan hátt eins og hún var vön að gera
með okkur og alla sem hún kom með sinni nærveru. Góðar þakkir góðu vinir fyrir allar þær hughreystandi
kveðjur til okkar sem tengjumst litla stráknum okkar á einn eða annan hátt. Guð
blessi ykkur.
Ungamærin
mæta
mín elskulega
og fín.
Ég skal
ávallt gæta
Þín indæl
Hekla mín.
Þú situr
hér hjá ömmu
heiðurs mærin
fín.
Ert ástinn pabba og mömmu
og allra silki lín.
Höfundur Svava Pétursdóttir gjört í október 1992.
26.02.2013 21:11
Loksins er myndavélin komin úr viðgerð virkar vel, tók nokkrar í dag þegar hitinn fór yfir 10 stigin
26.02.2013 20:46
Stóra hríslan í garðinum hjá mér er farin að vakna til lífsins sem er góðum 2 mánuðum of snemmt
22.02.2013 10:13
Inn við Selá í morgunsólinni sem er yfir Kálfanesborgunum með glitrandi fögrum litatónum.
22.02.2013 10:11
Á morgun 23 verður opnunnar tilboð á eldneyti hjá OB níu sjálfsafgreiðslustöðinni á Skeiðinu
22.02.2013 10:09
Séð úr gömlu myndavélarauganu frá Sandskerinu í gær.
21.02.2013 22:53
Nýr fréttavefur er komin í loftið og heitir því skemmtilega nafni Strandamenn.is hvað annað
Strandamannavefurinn hinn nýi er á þessari slóð > http://www.strandamenn.is
20.02.2013 15:19
Veiddi kött í staðin fyrir ref við Bjarnastaði í Ísafirðinum.
Hann
Þorvaldur Garðar Helgasson (gæi) refaskytta í hundraðavís hefur aldrei veitt
lifandi kött áður en það var í nótt. Sem oftar er skyttan á ferðinni á flestum
tímum sólarhrings og í nótt átti hann leið um Ísafjörðin við Bjarnastaði sá
hann tvo ketti með kílómetra
millibili en hann náði öðrum en hinn fór
inn í urð. Þannig var fyrir nokkrum
vikum síðan valt bíll við Bjarnastaði og
í bílnum voru tveir kettir sem hurfu út í buskan og hafa ekki sést síðan fyrr
en í nótt. En þessir kettir eru frá Flateyri og eigandinn fær þennan hann
vonandi fyrir helgi en refaskyttan sagðist vera hættur að drepa refi að hann
mundi helga sig við ná/veiða lyfandi ketti og gefa bara frat í refina enda eru
þeir búnir að eta upp allt fuglalíf sem finnst hér vestra vegna kolrangrar stefnu þeirra sem fara með
þennan málaflokk á landsvísu. En í
fyrra fékk skyttan vel á annað hundrað refi og er komin með um 50 fyrir þetta
veiðitímabil, geri aðrir betur, ref hefur fjölgað gríðarlega um allt land þó
mest á þeim svæðum sem eru friðaðar svo sem á Hornströndum og þessum rebbum flæðir
suðurávið
20.02.2013 13:16
Sendlingarnir (fjörufuglarnir á vetrum) virtust vera þreytulegir og kjafta fáir þegar
20.02.2013 13:15
Nú er bryggjuhausinn orðin breiðari og lengri eftir framkvæmdir síðastliðnu mánuði eða svo
20.02.2013 13:10
Hvað mátti maður halda þegar sást til mikils reiks við skólann í gær, þar kvu hafa verið brunaæfing
17.02.2013 20:18
Ekki er nú mikil samkeppni á milli N1 og ÓB hér á Hólmavík nánast engin 20 aurar sem er skömm
17.02.2013 20:17
Leifi hjá umsjónarmanni er skilti í þessum gamla freðmýrartæki sem reindust bara nokkuð góð
13.02.2013 20:08
Svona er staðan á vegaframkvæmdum í botni Steingrímsfjarðar í dag, örlítið potast verkið áfram
13.02.2013 19:56
Hver djöfullin er að ske sem hreppar á Ströndum tóku EKKI þátt í.Hvar er sérstakur ÓH yfir til þín
Þessu
leyni plaggi var gaukað að mér í skjóli nætur og með heimildarmenn verða ekki
gefnir uppi vegna hagsmuna minna heimildarmanna sem eru í öllum Strandahreppum
á Ströndum. Og þetta er bara smá sýnishorn með meintar 20 millur það mætti
tvöfalda hana og gott betur en það. Þetta furðu verk er búið að vera í smíðum
um 20 ára skeið eða svo. Alla vega kæri ég mig ekkert um það að vera um 20 árum
yngri í þessu verki en ég er í dag og hvað þá börnin mín sem eru orðin
fullorðin og ég gráhærður og háratæpur. En ég ásamt mínum heimildarmönnum munum
fjalla um þetta peninga ryksuguverk ef þurfa þykir á næstu dögum. En að lokum
hvet ég sveitarstjórnir á Ströndum að láta ekki glepjast að samþykkja þessa
hörmung því að sveitarstjórnir hafa aldrei komið nálægt þessum gjörningi þó að
sumir gera það núna um skamma hríð.
13.02.2013 19:55
Menn frá OB eru hérna núna að gera allt klárt fyrir opnun sem verður vonandi á næstu dögum.
12.02.2013 20:55
Hólmavíkin sælu og sólu prýdd í dag ásamt logninu alkunna í eftirrétt.
12.02.2013 20:47
Svellin á Kálfanesflóanum og á flugvellinum og víðar er orðið ansi þykkt - bændur óttast kal á túnum
Sumir sem
hafa gott lyktarskin eru farnir að finna rotnunarlykt frá rotnandi gróðrinum
sem er undir öllu svellinu sem hefur sjaldan verið eins mikið og er nú. Þannig
að útlitið hjá bændastéttinni hvað kal varðar er ekki gott eins og staðan er
núna sum sé jörð ísilögð.
- 1
- 2