Blogghistorik: 2010 Mer >>
30.06.2010 15:58
Dagskrá Hamingjudaga á Hólmavík 2010 1 til 4 júlí.
Dagskrá Hamingjudaga á Hólmavík 2010.
Fimmtudagur 1. júlí
Kl 13:00-17:00 Kassabílasmiðja við Handverkshús Hafþórs. (Hefst kl 13 miðvikudaginn 30. júní)
Kl 21:00-23:30 Deep purple tribute í Bragganum. Stórtónleikar með frábærum tónlistarmönnum. Miðaverð kr 1.500.-
Föstudagur 2. júlí
Kl 13:00-17:00 Kassabílasmiðja við Handverkshús Hafþórs.
Kl 18:00-21:00 Hlaðborð á Café Riis. Fjölbreyttir fiskréttir.
Kl 20:00-21:30 Furðufataball fjölskyldunnar í Félagsheimilinu (fyrir 0-100 ára). DJ Darri og Einar sjá um fjörið.
Kl 20:00-21:30 Svavar Knútur og Raddbandafélag Reykjavíkur, undir stjórn Steingríms Þórhallsonar,
með tónleika í Bragganum..
Kl 22:00-00:30 Setningarathöfn Hamingjudaga í fjörunni við Kópnes:
"Hamingjan sanna" - Jón Jónsson á Kirkjubóli ávarpar samkomuna.
Gísli Einarsson og Rögnvaldur gáfaði hjálpa gestum að höndla hamingjuna með almennu uppistandi.
Laglausi kórinn verður formlega stofnaður með tilheyrandi hamingjutónum og inntökupróf framkvæmd.
Fjöldasöngur við hamingjueldinn.
Kl 23:00-03:00 Bjarni Ómar og Stebbi leika fyrir dansi á Café Riis.
Laugardagur 3. júlí
Kl 10:30-11:30 Polla- og pæjumót HSS á Skeljavíkurgrundum.
Kl 10:45-14:00 Hamingjuhlaupið.
Stefán Gíslason leggur upp frá vegamótum Vestfjarðarvegar (60) og Djúpvegar (61) við Ingunnarstaði.
Öllum velkomið að slást í för, alla leið eða hluta úr leiðinni.
Tímaáætlun liggur frammi á Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík og á www.strandabyggd.is/hamingjudagar
Kl 11:00-12:30 Morgunganga um Hólmavík. Lagt upp frá Íþróttamiðstöðinni.
Kl 12:30-13:30 Kassabílarallý í Höfðagötu, skráning á staðnum.
Kl 13:00-14:00 Trommuhringur undir stjórn Arnars S. Jónssonar. Mæting á Vitabraut 21.
Gestir geta komið með hvaða ásláttarhljóðfæri sem er, en einnig verða hljóðfæri á staðnum.
Leitað að hinum eina sanna hamingjutakti.
Kl 14:00 Útiskemmtun á Klifstúni
Svavar Knútur kynnir dagskrána
Hamingjuhlaupinu lokið
Ávarp oddvita Strandabyggðar, Jóns Gísla Jónssonar
Hamingjulagið 2010 flutt
Tónlistaratriði
Menningarverðlaun Strandabyggðar afhent í fyrsta sinn
Svavar Knútur og Loftur skemmta börnum á öllum aldri
Götuleikhús SEEDS hópsins
Jón Víðis töframaður töfrar viðstadda upp úr skónum
Kl 14:00-18:00 Vinnustofa Einars Hákonarsonar listmálara opin fyrir gesti og gangandi.
Kl 16:00-17:00 Brúðuleikhúsið Dúkkukerran sýnir Þjóðbrók í Hlein.
Kl 18:00-21:00 Hlaðborð á Café Riis. Íslenskt þema: lambakjöt, kótilettur, fiskréttir og margt fleira.
Kl 20:30-22:30 Geirmundar tónleikar og söngkvöld á Café Riis. Miðaverð kr 1.500.-
Kl 20:30-21:00 Hamingjugöngur úr hverju hverfi: gulir mæta við kirkjuna, rauðir efst á Hafnarbraut,
appelsínugulir við Grunnskólann og bláir við Kvenfélagshúsið. Gengið verður að hátíðarsvæði við bryggjuna.
Kl 21:00-22:30 Hnallþóruhlaðborð og Hamingjutónar:
Verðlaun veitt fyrir hamingjuskreytingar
Tónlistaratriði
Söngkeppni barna
Laglausi kórinn kemur fram í fyrsta sinn
Verðlaun veitt fyrir hnallþórur
Kl 22:30-24:00 Jón á Berginu með tónleika í Bragganum. Aðgangur ókeypis. Tilvalin upphitun fyrir dansleikinn
Kl23:00-03:00 Hamingjudansleikur með hljómsveitinni Hraun í Félagsheimilinu á Hólmavík. 16 ára aldurstakmark.
Sunnudagur 4. júlí Kl 11:00-12:00 Léttmessa í Hólmavíkurkirkju. Sr. Sigríður Óladóttir messar. Kl 12:00-17:00 Hamingjumót Hólmadrangs í golfi á Skeljavíkurgrundum. Vegleg verðlaun fyrir þátttöku og fyrir efstu sætin. Skráning á staðnum. Kl 13:00-18:00 Furðuleikar í Sauðfjársetrinu í Sævangi (12 km frá Hólmavík). Óvenjuleg íþróttahátíð fyrir alla fjölskylduna, trjónufótbolti, skítkast o.fl. Kl 13:00-18:00 Kaffihlaðborð í Kaffi Kind í Sævangi.Kl 14:00-18:00 Vinnustofa Einars Hákonarsonar listmálara opin fyrir gesti og gangandi.
Sýningar víðs vegar um bæinn:
* Ljósmyndasýning Brynju Bjarnfjörð í gamla Fiskmarkaðnum (Furuvöllum).
*ar listmálara opin laugardag og sunnudag kl 14-18 í Lækartúni 23.
* Vorsýning Leikskólans Lækjarbrekku opin kl 9-21 alla dagana í Íþróttamiðstöðinni.
Ljósmyndasýning Jóns Halldórssonar í Fiskmarkaðnum.
* Stefnumót á Ströndum, atvinnumála og menningarsýning, opin alla dagana kl 9-21 í Íþróttamiðstöðinni.
* Vatnslitamyndir Dóru Kristínar Halldórsdóttur í Handverkshúsi Hafþórs.
* Vinnustofa Einars Hákonarson
30.06.2010 11:57
Rauð hverfingar voru í kvöld að setja upp sýnar rauðu veifur.
30.06.2010 11:54
Það er komið nýtt skilti við Broddanes, sem vísar vegin að gistihúsinu á Broddanesi.
30.06.2010 04:47
Kríurnar upp af Bakkagerði í morgun reyndu eins og þær gátu að gera árás á póstinn. Flottir fuglar.
30.06.2010 04:38
Appelsínuhverfið hefur sett upp sýnar veifur í gær.
30.06.2010 04:30
Svona var Hamingjukvöldsólin á Hólmavík á Ströndum um kl 23.00 í gærkveldi. Rauða hverfið er flott.
29.06.2010 04:08
Hólmavíkurhöfnin og nágrenni hennar á flottum degi í dag. Sjálfur J R er í aðalhlutverkinu.
29.06.2010 04:01
Bölvaðir sóðar eru þetta sem henda fiskhræjunum í höfnina. Þessir ungu piltar voru alveg gáttaðir.
28.06.2010 05:57
Þetta var og er ákjósanlegt æfingarsvæði fyrir skotleikni. En Orkubú Vest er ekki á sama máli.
27.06.2010 06:03
Steindepill er afar fagur fugl og hann er ágengur ef einhver reynir að koma nálægt óðali hans.
27.06.2010 05:54
Fótboltasparkverjar voru að sparka tuðru í allar áttir á Skeljarvíkurgrundum í dag.
27.06.2010 05:47
Þessir rebbar eru bara flottir, voru að leik um daginn á óðali fjölskyldunnar.
26.06.2010 06:13
FRÉTTATILKYNNING. VEIÐILEYFI Í BJARNARFJARÐARÁNA ERU TIL SÖLU Á HÓTEL LAUGARHÓLI Í BJARNARFIRÐI
Veiðileyfin í Bjarnarfjarðará eru núna seld á Hótel Laugarhóli sími 4513380 eða laugarholl@laugarholl.is Veiðitímabilið er hafið og eru 4 stangir leyfðar í ánni á dag.
25.06.2010 11:52
Í kvöld var síðasti Menningarmálafundurinn hjá þessari nefnd. Ný nefnd tekur við í byrjun júlí
Frá vinstri á þessari mynd. Kristín S. Einarsdóttir framkvæmdastjóri Hamingjudagana 2010, Rúna Stína Ásgrímsdóttir, Guðrún Guðfinnsdóttir, Salbjörg Engilbertsdóttir, Ása Einarsdóttir og undirritaður.
Þessi menningarmálanefnd hefur starfað síðustu 4 árin og hefur fundað mikið um allskonar menningarmál og þeim tengt, þeirra mest hefur verið skipulagning Hamingjudagana sem er orðið talsvert stórt batterí. Ég vil þakka mínu nefndarfólki fyrir gott og farsælt starf á þeim 4 árum sem ég hef starfað með því.
Í næstu viku eru Hamingjudagarnir á Hólmavík og bærinn okkar og sveitin eru á fullu við að fegra og taka til og líka það að hvert litahverfi kemur með sinn baráttusöng sem koma allir saman við Klifs tún(Kirkjuhvamminn) þar sem Hnallþóruhlaðborð og Hamingjutónar hljóma, svo er skundað á tónleika í Bragganum áður en er farið á ballið með hljómsveitinni Hraun og Svavari Knúti.
Góða skemmtun.
25.06.2010 11:49
Rauði fáni rauðahverfisins á Hólmavík er komin upp og sést víða að. Rauðahverfislagið er klárt
25.06.2010 04:46
Strandveiðadallurinn Rut ST 50 sem prestakallin á Hólmavík á,var á veiðum í morgun út af Sandnesi
25.06.2010 04:41
Máfarnir hafa nægt fóður að eta sem kemur frá rækjuvinnslu Hólmadrangs.
24.06.2010 13:00
Nítt upplýsingarskilti af Hólmavík var sett upp á Hólmavíkurvegi upp við Skeiði í morgun.
24.06.2010 12:45
Kríurnar eru frekjur sem oftast, þessar myndir eru teknar á afleggjaranum við Smáhamra
24.06.2010 05:59
Þessar myndir voru teknar á hlaðinu á Heydalsá í dag.
22.06.2010 11:54
Sauðfjárveikisvarnargirðingin upp á Vatnadal, stórhættuleg fyrir alla.Hver ber ábyrgð? ríkið?
Vond mynd en svona er þetta samt.