Blogghistorik: 2011 N/A Blog|Month_11
30.11.2011 21:39
Snjórinn er mættur til Hólmavíkur eins og má nú sjá.
30.11.2011 21:09
Vetur mættur á Drangsnes. Bóndinn spilimann að moka snjó á Kvíabalanum í morgun.
29.11.2011 23:04
Ætlar Sveitarstjórn Strandabyggðar að gera minna en ekki neitt gagnvart þessu skipulagsslysi?
Þetta er orðið talsvert þreytandi gagnvart þessum ósköpum sem spratt upp úr jörðinni þegar Sveitarstjórn Strandabyggðar var í sumarfríi í fyrsta skipti í sögu Hólmavíkur. Sum sé að sveitarstjórnin var tekin hreinlega í bólinu og hefur verið í því síðan. Flestir ef ekki allir íbúar Kópnesbrautar vilja þessa hörmung í burt. Nú er komin vetur og jólamánuðurinn senn runnin upp og snjórinn mættur til Hólmavíkur og það segir honum (Snjónum) engin hvar hann lendir. Með svona vitleysu eins og þetta skipulagsslys er þá er það deginum ljósara að svona hryllingur mun alltaf skapa mikla snjóa og bölvuð leiðindi sem fylgir þeim hvíta, sem eigendum virðast koma lítið við enda eru þeir allir með tölu langt fyrir utan þetta Strandabyggðarsvæði og virðast bara hlæja að aðgerðarleysi sveitarstjórnarinnar. Það gerir lítið sem engum eitt eða neitt. Sveitarstjórnin fækkar nefndum hér og þar og breyta og bæta í mannaflan á ótrúlegustu stöðum. En í fljótu bragði virðast þessi skipulagsklúður Sveitarstjórnarinnar sem þau eru með á herðum sér vera svipað og eða álíka vandamál og vandamál Jóhönnu og Steingríms við Austurvöllinn, með fyrrum Balamanninn og líka fyrrum BSRB manninn sem styðja hvern annan - ef Balamanninum verður hent fyrir borð þá er ómyndin fallin. Ps - Sveitarstjórn látið rífa skotbyrgið fyrir jólin komandi 2011, annars verða allir í bölvaðri fýlu út í þá sem ráða þessari óskiljanlegu aðgerðarleysi Sveitarstjórnar Strandabyggðar. Jafnt skal yfir alla ganga en það gerir það greinilega ekki.
Myndir teknar í dag 30 nóvember 2011 af Skotbyrgjaklúðri á Kópnesbraut. Smá él gerði þessa fönn.
Viðbótamyndir - snjóamyndir sem þessi hryllingur skapar, skömm.
Myndir teknar í dag 30 nóvember 2011 af Skotbyrgjaklúðri á Kópnesbraut. Smá él gerði þessa fönn.
28.11.2011 22:01
Frekar leiðinlegt veður á Ströndum seinnipartinn í dag.Nokkrar myndir frá Strandapóstinum í dag
26.11.2011 20:51
Fór í dag á frábæra ljósmyndasýningu hjá Haraldi Auðunssyni fyrrum kennara hér á árunum 76 -77
Flottar myndir af Strandamönnum. Takk fyrir myndasmiður og fyrrum kennari hér á Hólmavík.
26.11.2011 20:49
Í gær var Hrefna sem oftar að svamla út af Hólmavík.
26.11.2011 20:30
Morgun. Myndir teknar í gærmorgun þegar sólin var að brjótast upp á himininn í rauðari lagi.
25.11.2011 22:03
Hólmavík í dag. Gott veðurfar á Strandarsvæðinu í dag.
24.11.2011 20:24
Nú er niðurrekarinn - drellirinn stóri komin til starfa við nía brúarstæðið við ósa Staðará.
24.11.2011 20:14
Kom við í nía húsinu hennar Pat á Bakka í Bjarnarfirðinum og myndaði það og eigandann líka,flott
Takið eftir því sem Ámi er að henda til jarðar, horfir beint á það.
Flott útsýni út konijakturninum hennar Pat, sést um allan Bjarnarfjörð.
23.11.2011 20:27
Myndir teknar eftir liðlega fjögur í dag við Hólmavíkurhöfnina þegar var að dimma og gera smá él
23.11.2011 20:24
Við níu einkahöfnina í Bakkagerði Ströndum í morgun og gamalt og gott fylgir með í bónus
22.11.2011 22:16
Í dag kíkti ég í bílskúrinn hjá GB þjónustunni,ný uppgerð vél í RUT ST 50 er klár + Unnar ráðgjafi
22.11.2011 22:12
Í dag var verið að tengja frá níu brúarstæði og yfir til Svörtubakkana.Brúarflokkurinn fer að koma
21.11.2011 21:41
Sölubann á rjúpu og annarri bráð er fallið, kaupmenn flytja inn rjúpur í þúsundum sem aldrei fyrr
Hræsnin er
yfirgengileg hér á fróni. Sölubann á rjúpum hefur verið við líði nú um nokkra
ára skeið og margir hafa farið eftir þeim tilmælum en þó ekki allir. Og hafa
veitt margfalt meira en þann stykkja fjölda sem var nefndur í tilögum frá
ríki og fræðingum náttúrunnar.
Í
kvöldfréttum nú áðan var talað við verslunarmann sem er að fá nokkur þúsund
rjúpur frá Skotlandi, þessi frétt kom mér afar á óvart vegna þess að sala á rjúpum
til og frá verslunum og líka frá veiðimunum hefur verið bönnuð með öllu þó að
maður viti það að veiðimenn selja rjúpur til vina og ættingja en ekki til
verslana.
Ég er
alveg rasandi á þessari frétt sem var á rúv nú í kvöldfréttum og þá sagði þessi
verslunarmaður að hann hefði líka flutt inn rjúpur í firra til að selja út úr
búðum til sinna kúnna. Ég skil ekki þessa heimskulegu vitleysu að leifa
innflutning á rjúpu til verslana en Íslenskir veiðimenn mega ekki selja sína
villi bráð einum eða neinum, hvaða villimannaþjóðfélag búum við í Íslendingar,
þetta eru fávitar fávitanna sem gera svona fjanda. Skrattinn hirði þessa
reglugerðar skrifræðispakk.
Nöfnin
magnveiði og sölubann snúast einvörðungu um aumingja rjúpuna, það virðist
aldrei vera magnveiði á gæs - skarf -
svartfugli - öndum og lunda og svo framvegis, ég skil ekki þessa kolrugluðu
hugsun að kalla bara magnveiði á rjúpum og öll sú umræða sem hefur farið í
blöðum og vefmiðlum Íslendinga hefur á flestum sviðum ekki verið veiðimönnum
til framdráttar. En að lokum vil ég koma því til ykkar allra þarna sem nenna að
skoða þetta að allir þeir sem fá sinn rjúpnaskammt eða ríflega það að þeim sé
heimilt að selja sínar fáu rjúpnaskjátur til þeirra sem vilja kaupa rjúpur og
aðra villibráð hver sem hún er alveg eins og verslunarmenn sem hafa gert og
gera enn og munu gera áfram um ókomin ár. Næst förum við að selja veiðileyfi og
það dýr á bragðarefi sem leynast í náttúru Stranda, það er nóg til af að Strandaref sem örugglega margir
vildu fella og ef til vil grilla ann og eta með góðu rauðvíni, allavega er hann
etin á Patreksfirði með góðri list.
Nánar hér á vef ruv.is http://www.ruv.is/sarpurinn/nr/4590942/
19.11.2011 17:33
Göngutúr dagsins á gamlar slóðir. Myndir teknar fremst í Vatnadal uppá Álftahnúkum.
Vatnadalur. Til vinstri er Miðmundavatn og til hægri er Hrófbergsvatn.
Fitja og Hrófbergsvötn.
Hrófbergsvatn.
Miðmundavatn og Háafell í baksýn.
Víðivallaborg með Lambatind í baksýn.