Blog records: 2008 N/A Blog|Month_6
28.06.2008 23:11
Hamingjudagar á Hólmavík kaldir og blautir en samt góðir. Fleiri myndir síðar.
28.06.2008 00:47
Skreytingar á Hamingjudögum og drekktu betur keppnin sem var haldin í Bragganum í kvöld.
26.06.2008 22:48
Það er allt að ske á Hólmavík. Sólin tekur vel á móti hamingjusömum gestum Hólmavíkur.
Þetta leiðsögukort er mikil snilld sem er ný komið út. Teiknari er Ómar Smári Kristinsson.
24.06.2008 21:36
Jónsmessunótt var æðisleg í litadýrðum sólar, sjávar og skýja. Sólin er í botni Selárdals.
22.06.2008 22:31
Sauðfjárveikivarnir lokið hliðinu. Nú er hliðið galopið og ef til vill mikil vá framundan?
21.06.2008 20:30
Verktaki kaupir bát ásamt sundlaugaverði. Sjóstöng og sólböð á sólpalli verður reynt innan skamms.
21.06.2008 20:25
Mótorhjólaliðið hér í bæ er að taka próf á sýn hjól um þessar mundir.
21.06.2008 20:14
Hólmavík úr lofti séð þegar sól er hæðst á lofti 20 júní um kl 21.20 .
20.06.2008 22:51
Fór í kvöld í smá flug túr inn fyrir Hrófberg í bongó blíðu.
Þetta eru starfsmenn Atlanta. Flugmenn og kontoristi.
19.06.2008 22:53
Vegagerð í Arnkötludal athuguð í dag. Sjö mánaða stopp í dalnum er með öllu óskiljanlegt.
Efir kl 5 í dag brunaði ég uppá Tröllatunguheiði og rölti mér svo síðan yfir í efsta hluta Arnkötludals og vita hvað eða hvort einkvað hefði verið gert þar síðan í október 2007. Því miður er enga breytingu að sjá frá því í október í firra. Ekkert verið gert í veginum Arnkötludalsmegin á Þessu árinu 2008. Að vísu sá ég beltagröfu uppundir Þröskuldum, annað sá ég ekki af þeim tækjum sem verktakinn er með á sinnu könnu. Og þetta hlýtur að segja manni það svart á hvítu að mér finnst það óhugsandi með öllu að við sem vorum búin að vonast eftir því að getað ekið fram Arnkötludal og yfir í og niður Gautsdal á haustmánuðum nú í haust 2008 sé því miður óraunhæft. Það verður að gerast mýkið kraftaverk ef sú hugsun sé raunhæf. En ég lifi alltaf samt í smá vonar neista, en hvort sá neisti muni kvikna er afar hæpið á árinu 2008.
17.06.2008 22:16
Umhverfisnefnd Strandabyggðar veitir viðurkenningar í fjórum flokkum.
16.06.2008 22:56
Handverkshús Hafþórs hefur verið opnað.
Fjöllistamaðurinn Hafþór Þórhallsson hefur opnað handverks búð í gamla Ráðaleisynu eða bara Salthúsinu eins og það var nú bara kallað hér á árum áður. Ég kíkti til listamansins í dag og skoða það sem hann hefur verið að gera er algjör snilld. Hann er búin að búa til heilan helling af allskonar fuglum stórum sem smáum úr birki sem hann tálgar út. Í dag þegar ég hitti meistarann var hann að búa til Spóa sem seldust upp í gær. Ég hvet alla til að skoða það sem Hafþór er að gera, þar er snillingur á ferðinni sem lítið fer fyrir dags daglega. Og væntanlega verður kaffi á könnunni innan fárra daga hjá þessum mikla handverks meistara. Kíkið á kallinn, hann hefur gaman að því, og þið líka.
14.06.2008 22:39
Nokkrar myndir á NONNANUM þegar hann rölti um Borgirnar í sól og brakandi blíðu.
Nokkrar myndir er að sjá á forðíðu á NONNANUM
14.06.2008 22:34
Það er allt að gerast á sumar húsa sveitarsetrinu í Kollafirði Undralandi.
13.06.2008 23:24
Beltagrafan hjá Ingileifi Jónssini hf var á bóla kafi í dag, jaðítan fór sömuleiðis á kaf.
13.06.2008 23:22
Þessi Húsbíll er ansi líkur húsbíl Villa og Júllu en er með drifi á öllum.
13.06.2008 23:17
Þessi aftaníkerra var skilin eftir á miðjum veginum uppaf Grænanesi í morgun.
12.06.2008 22:32
Umfjöllun Vísir.is í gær 11 júní um 8 miljóna króna styrk vegna heitavatnsborunnar í Hveravík.
Það skal eindregið tekið fram að ég sem síðustjóri á þessari Hólmavíkur vefsíðu ætla ég ekki að fara velta mér uppúr þeim skrifum sem birtust á Vísi.is í gær sem ég hef sett tengil inná þá báða pistla svo og greinagerð frá Orkuráði sem úthlutaði títtnemdum 29 styrkjum. Orkuráð starfar í tengslum við Orkustofnun og er meginhlutverk þess að sjá um rekstur Orkusjóðs, sem veitir áhættulán fyrir jarðhitaverkefnum og styrkir rannsóknir og fræðsluverkefni um endurnýjanlega orku, orkunýtingu og -sparnað. Iðnaðarráðherra skipar menn í ráðið og sitja þar nú Mörður Árnason, formaður, Bryndís Brandsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Guðjón Guðmundsson og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir.
Stuttlega um þá umfjöllun sem birtust á Vísi.is í gær vil ég segja það skírt að sú umfjöllun er að mestu leiti röng. Vísir.is hefði þurft að afla sér miklu betri heimildir en er gert í þessum Vísis fréttum. Það mætti halda það samkvæmt Vísir.is í gær að þessar 8 miljónir sem eru eirnarmerktar Magnúsi Magnússini vegna Hveravíkur mundi alfarið renna til eiganda Hveravíkur, það er öðru nær. Það er ekki í fyrsta sinn að Vísir.is reyni að búa til æsifréttir sem eru svo rangar. Það er lámarkið hjá þeim á Vísir.is að afla sér skotheldra heimildarmanna áður en er hlaupið er með það á vef og prentmiðla á fróninu góða.
Sjávarútvegsráðherra: Tilhæfulausar ásakanir. Gagnrýna að veiðifélagar ráðherra fái milljónir í styrk. 172 milljónum úthlutað til jarðhitaleitar á 29 stöðum.
11.06.2008 22:55
Mótorkross félagar Geislans æfa sig stíft fyrir hátíð Strandamanna Hamingjudagana 27.- 29 júní.
- 1
- 2