19.08.2007 21:21
Stórafmæli fyrrum vörubifreiðarstjóra S.H.G.
Í gærkveldi hélt öðlingurinn Sigurgeir H.Guðmundsson uppá 75 ára afmæli á kaffihúsinu Malarkaffi á Drangsnesi hjá þeim vildarhjónum Bjössa og Völku. Og vegna þessara tímamóta hélt Sigurgeir H.Guðmundsson frá Hamravík uppá sitt sjötugasta og fimmta aldursár sem hann ber býsna vel sá gamli. Það mættu allmargir af hans vinum og ættingjum vegna þessara tímamóta. Og það voru nokkrir sem stigu á stokk og tóku lagið með afmælisbarninu, en með textum eftir sjálft afmælisbarnið. það eru nokkrar myndir af kappanun T 79 að finna hér.