Færslur: 2012 Desember

30.12.2012 17:14

Björgunarsveitin Dagrenning hér á Hólmavík fór eftir hádegið vestur að Nauteyri, þak fauk af húsi


 Munið að kaupa flugeldana hjá Björgunarsveitunum sem eru ávallt til þjónustu reiðubúnir.

27.12.2012 20:20

Jólakötturinn.


26.12.2012 21:55

20 -12- 2012.





26.12.2012 21:39

Fyrrverandi Sjávarútvegsráðherra - Balamaður hélt fund 10 nóvember 2011, stuttu síðar var rekin







Þá er það nú bara spurningin hvernig er staðan núna á þessum stöðum, bara spyr.

24.12.2012 16:38

Strandamaðurinn úr Staðardalnum frá fallega hólnum Sigmar B Hauksson Víðivöllum lést í nót.


Það er ekki spurt um aldur né gert manngreiningarálit þegar illvígur sjúkdómur ber að dyrum og það á nokkrum dögum síðar er maðurinn frá fallega hólnum fallin frá okkur. Fyrr hefði ég átt von á dauða mínum en að stórvinur minn og frændi frá Víðivöllum í Staðardal Sigmar Bent Hauksson mundi falla svona skyndilega frá. En svona er lífið engin veit hver er næstur í þetta ferðalag sem við öll verðum að fara í, spurningin er bara hvenær hún hefst. En í stuttu máli að Sigmar var sannur vinur vina sinna og var alltaf heimagangur á mínu æskuheimili Hrófbergi og síðar hjá mér á Hólmavík. Það leið vart sú vika að hann hringdi í mig að spyrja frétta af sveitinni sinni og auðvitað var talað um veiðar sem við þektum báðir vel til. Ég þakka honum fyrir þau mörgu ferðalög sem við áttum saman sem eru vart teljanleg á öllum árstíðum bæði á bílum og gangandi og ekki síst þegar rjúpnaveiðitímabilið 15 október rann upp voru margar sögur sagðar á hólnum á Víðivöllum og margar hverjar vel kryddaðar hjá flestum sem tóku til máls. Enda var Sigmar afburðargóður sagnamaður sem allir tóku eftir. En það óraði ekki að mér í haust að sú heimsókn hans til Stranda skildi vera sú síðast að sinni ó nei, en svona er lífið og ég votta mínu dýpstu samúð til systkina hans, Jón Víðir og Guðrúnu og sonum Sigmars, Hauk Bent og Gudjon Bent og fjölskyldum þeirra sem hlut eiga að máli. Guð verði með ykkur og styrki ykkur á þessum erfiðu tímum.

23.12.2012 22:19

Jólasveininn/sveinarnir komu nú áðan með jólakortin í hús, fækkun jólakorta er greinileg nú í ár



Gleðileg jól  góðu síðuskoðendur og góðar þakkir fyrir innlitið síðustu mánuði og ára, njótið hátíðanna.