Færslur: 2007 Nóvember

30.11.2007 22:57

Snarvitlaust veður á Ströndum í dag.

Varla var hundi út sigandi í dag vegna veðurofsa. En hitastigið var um núllið í byggð nema uppá Bassastaðarhálsi, þar var þreifandi bylur. Eg smellti í nokkur skipti á myndavélinni í dag en það var ekki gott að ná góðum myndum í dag, en eg reyndi og hér eru myndirnar sem skíra sig nokkuð sjálfar.
Mynd númer 67

Mynd númer 69

Mynd númer 70

Mynd númer 71

Mynd númer 72

Mynd númer 73

28.11.2007 23:37

Skipt um ræsi í Staðardal.

Mynd númer 66

Í gær og í dag hafa starfsmenn Vegagerðarinnar verið að skipta um vegræsi við Þureyrarnef í Staðardal. Ræsið var að niðurlotum komið.

28.11.2007 23:34

Hornstrandir. Þar sem náttúran er aðalmálið.

Mynd númer 16

Mynd númer 30

Nú í dag fékk eg auðvitað með póstinum mynddisk sem gamall og góður kunningi minn Ísak Lárusson Stranda Hellumann á Selströnd til margra ára tók í sumar sem leið þegar hann ásamt fleirum fóru til Hornstranda. Eins og myndirnar bera með sér eru Strandir norður yndislega fagrar. En auðvitað er alltaf best þegar ferðalangar sem heimsækja þessa fallegu staði fái gott veður, en veðurfar á Íslandi er algjört lottó. En kíkið á nokkrar myndir frá þessari ferð Ísaks og hanns ferðafélugum.

27.11.2007 22:59

Gott veður á Ströndum í dag.

Í dag var blessuð sólin að rembast við það að komast upp fyrir fjöllin til að ilja okkur um vanga og létta lund. En ef sólin náði að komast rétt upp fyrir fjallgarðinn þá voru nokkur dökk ský sem huldu sólina, þannig að myndirnar sem ég var að rembast við að taka bera þess augljós merki um það að sólin virkar á þessum árstíma gulari og fjöllin dekkri. En samspil náttúrunnar og árstíðana sem eru fjórar er eitt undur sem vart er hægt að lýsa, þó einna helst í myndum. Myndirnar sem eru hér neðar á síðunni eru teknar frá Fiskinesi, Bæ 3, Bjarnarnesi, Laugarhóli svo og á bryggjunni á Hólmavík.
Mynd númer 57

Mynd númer 58

Mynd númer 59

Mynd númer 60

Mynd númer 61 
Mynd númer 62

Mynd númer 63 
Mynd númer 64

26.11.2007 23:12

Strandavegur 643, Drangsnesvegur útboði sennilega frestað.

Mynd númer 56

Öllum líkindum mun Vegagerðin ekki bjóða út þann kafla sem er merktur fyrirhuguð útboð Strandavegur (643),Drangsnesvegur sem er merkt í framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar að eigi að fara í útboð 2007. Eftir því sem eg kemst næst ef það er rétt að eigi ekki að bjóða út þetta verk fyrr en á vordögum 2008, og líka vegna þess að í Vegagerðinni (topparnir) eru ekki sammála kvaða leið eigi að fara. Það eru þrjár leiðir sem koma til álita, að endurbyggja þann veg sem er nú til staðar, eða að hafa vegin nánast á sama stað en þó ekki alveg og þriðji kosturinn og sá besti að vegurinn verði nánast allur lagður í fjörunni, frá Svörtubökkum sem eru fyrir framan Hrófberg og yfir Hrófbergsósin og fyrir neðan Stakkanes og Grænanes og kemur svo uppá Grænanesmelana. Síðasti kosturinn er lántum bestur sem kostar að gera þurfi nýja brú á Staðarána. En ég er ekki sáttur við ef það reynist rétt að þetta verk verður ekki boðið út fyrr en á vordögum 2008, eða breitir það nokkru? .

23.11.2007 01:14

Matti vert og fararstjóri á Laugarhóli.

Mynd númer 39

Í dag þegar eg kom til Matta verts og fararstjóra á Laugarhóli var kappinn að setja upp gerfihnattadiskinn sem hafði fokið af stalli sínum. Og hann sagði að það mundi taka hann einhvern tíma að hitta á rétta gerfihnöttinn. Annars var kappinn kátur og hress eins og hann er oftast, hvað annað enda nýlega komin frá sinni heimabyggð, Frakklandi.

23.11.2007 01:03

Og meira af olíutönkunum.

Og í dag var síðari olíutankurinn rifin af Hringrásarmönnunum sem hafa bútað þá niður í nánast í ekki neitt, og voru snöggir að því. Þannig að ásýnd svæðisins er orðin talsvert breytt.
Mynd númer 40

Mynd númer 41

Mynd númer 43

Mynd númer 44

Mynd númer 45   
Mynd númer 46

21.11.2007 23:02

Bjartur og sólríkur dagur á Ströndum og olíutankur rifin.

                           Fleiri myndir frá deginum í dag er að finna hér.

Mynd númer 17

Mynd númer 22

Mynd númer 23

Mynd númer 35

21.11.2007 22:59

Athugasemd vegna eyddra athugasemda á þessu bloggi 14 nóvember 2007.

Að gefnu tilefni verð eg að taka eftirfarandi fram. Að síðustjóri á þessum vef hefur ekki eytt 14 athugasemdum sem voru komin um klukkan 20.30 nú í kvöld. Einhver annar sem hefur komist yfir notendanafn og lykilorð hefur eytt fyrnefndum athugasemdum. Eg harma þennan gjörningarþjófnað sem hafa verið gerð eftir klukkan 20.30. En eg viðurkenni það að notendanafn og lykilorð sem eg hef haft voru nánast auðfundin ef vilji væri fyrir hendi að finna þau og síðan að eyða athugasemdum. Sá hann eða hún hafi skömm fyrir þennan gjörning. Og eg endurtek það sem áður hefur komið fram að sá sem ætlar að gera athugasemd við bloggfærslu skrifi það nafn sem hann eða hún heita réttu nafni, ekki bara Jón eða Sigga.

20.11.2007 20:48

Er þetta minnisvarði um fyrirtæki sem er nýlega hætt?

Eg hef verið að velta því fyrir mér í nokkra mánuði með þennan blessaða stóra stein sem var reistur uppá endan síðasta vor af Fyllingu hf sem var með verkið innanvert við Hermannslundin, hvort að þessi steinn sé minnisvarði um Fyllingu hf? . Ef þetta á að vera minnisvarði um Fyllingu hf heitina þá vantar áletrunina á steinin. Er ekki alveg kjörið fyrst að minnisvarði er af Hermanni Jónassyni fyrir ofan vegin að týndi/nýji sonurinn Lúðvík Hermannsson verði á þessum steini sem Fylling hf reisti varla handa sér? sem er fyrir neðan vegin. Eða kannski var þessi steinn reistur upp á endan sem ef til vill átti að standa þetta? , þetta verk var síðasta verk Fyllingar hf sem tók hálft ár að klára, en ekki hálfan mánuð.

Mynd númer 9

20.11.2007 20:40

Treilerbílstjóri ekur grjóti að Fellsbrúnni.

Gengur afar hægt. Undanfarna allmargar vikur hefur treilerbílstjóri komið með eitt og eitt grjóthlass og sturtað því við Fellsbrúna í Kollafirði. Treilerbílstjórinn virðist reyndar vera talsvert hæggengur hvað þetta varðar. Ekki veit eg hvenær hann á eða átti að skila þessu verki. En það á örugglega eftir að aka meira grjóti en það sem er nú komið. Fellsáinn hefur étið talsvert af efni sem var við brúarvængin, svo er símastrengur við brúna. Ef til vill klárast verkið á nýju ári.

Mynd númer 8

Mynd númer 11

Mynd númer 7

18.11.2007 22:55

Sköpunarverk á fjöllum og farið inní Hrútafjörð.

Morguninn hjá mér byrjaði á því að fara til fjalla ásamt frænda mínum Halldóri Loga stórskyttu. En um einhverja veiði minnist eg ekkert á, enda var veðrið í dalnum mínum alveg dásamlgkt. Á miðju Fitjavatninu rakst eg á stórskrítna og ægifagura náttúrusmíð sem er vart hægt að lýsa með orðum. Hringlaga hröngl á glærum ísnum var tilkomumikil sjón að sjá. Eg vona að þessi mynd sýni það hvað skaparinn er einstakur í sínu handbragði.       Og svo skutlaðist eg með Heklu mína innað Brú í Hrútafirði í veg fyrir Norðurleiðarútuna og tók nokkrar dimmuskulegar myndir þegar myrkur var að skella á og tunglið hálfa gletti við tönn. Og að lokum hitti eg Birgir Pétursson og hans fröken sem vóru á suðurleið en ætluðu sér að koma á Jólahlaðborðið á Riis sem er viku af desember
Mynd númer 1

Mynd númer 5

Mynd númer 2

Mynd númer 3

Mynd númer 4

Mynd númer 6

14.11.2007 22:38

Flott myndskeið frá sjóferð skólakrakka á Dröfn RE

                   
                      Flott myndskeið frá sjóferð skólakrakka á Dröfn RE. Gunnar Jóhannsson.

13.11.2007 22:48

Sólstofan hjá Bjössa Pé.





                                        Sólstofan hjá Bjössa Pé er að verða flott.

13.11.2007 22:44

Jónsvegrið sett á vegkantinn uppaf Kleifum. En ekkert vegrið sett upp í Kollafirði.

Í morgun voru starfsmenn vegagerðarinnar hér á Hólmavík að setja upp vegrið á vegkantinn uppaf Kleifum. Það er löngu þörf á því að setja á þennan vegarspotta vegrið. En að mínu mati eru staðir margfalt hættulegri en þessi ágæti staður sem vegagerðarmenn settu upp vegriðið í morgun. Í Kollafirði norðan megin frá þeim stað sem Hólmavíkurhreppsskiltið var utanvert við Forvaðan og innfyrir Hlíð er miklu hættulegri staður, sennilega er þessi kafli hættu mesti staðurinn frá Brú í Hrútafirði og norður undir Kaldbakshorn. En forgangsröðin er klárlega röng. Þessvegna eins og einn starfsmaður Vegagerðarinnar sagði í morgun að þetta væri Jóns vegrið, örugglega er það réttnefni. En eins og áður sagði, þá vantar annað Jónsvegrið og það strax í Kollafjörðinn.







12.11.2007 23:23

Frétt nú rétt áðan í rúv um loftþrýsting í hjólbörðum.

                                                 
Fréttin á rúv fjallaði um norska könnun sem var gerð hvort loftþrýstingur í hjólbörðum hefði einhver áhrif á eyðslu bifreiða. Samkvæmt þessari könnun ef loftþrýstingur á meðal stórum fólksbíl til dæmis 25 pund þá eyddi hann 15% meira bensíni ef loftþrýstingur væri 33 pund. Nú spyr eg þessa könnunarfræðinga sem örugglega ekki skoða þessa síðu eftirfarandi þetta. Í fyrsta lagi að hafa loftþrýsting í meðalstórum hjólbarða sem er undir fólksbíl yfir 25 pundum og þar fyrir er nú ekki gott, bíllinn verður rásgjarnari á malarvegum og þar af leiðandi mun erfiðara að stjórna honum. Og ef menn vilja losna við naglana þá er kjörið að hafa loftið í hjólbarðanum um 20 pund. Við akstur eykst þrýstingur í dekkjunum um allt að 5 pundum, þannig að 25 punda þrýstingur verður þá þrýstingur komin eftir skamma stund komin í 30 pund. 15 punda þrýstingur er kjörin fyrir hálku og þar undir. Þannig að eg er alslkostar ekki hrifin af svona könnun sem gerir örugglega suma áhrifagjarna ökumenn stórhættulega í umferðinni. Þá sé ekki talað um bullið með 17, 18 og jafnvel 19" dekkin sem ætti að mínu mati að banna, minni fjöðrun er í þeim dekkjum, enda er felgan stærri en miðja hjólbarðans ? fjöðrun hjólbarðans frá munstri að felgu er miklu minni. Fræðingar eru bara fræðingar, þetta er mín reynsla í gegnum árin sem eru orðin talsverð mörg. Eða skilur þetta nokkur? .

11.11.2007 22:43

Framtíðarvegurinn okkar allra var skoðaður í dag.

Eg skutlaðist í dag yfir í þá dali sem eg hef haft syngjandi í höfði mér vel á annan áratug Arnkötludal og Gautsdal. Tröllatunguheiðin eins og hún var í dag er einungis fær fyrir fjórhjóladrifsbíla, en vegurinn sem er búið að gera efst í Arnkötludal og svo nánast allan Gautsdal sést varla nema snjóföl á þessum vegi. En hvað um það verktakin hefur flutt öll sín tæki nær byggð eða að fossinum í Gautsdal sem er aftur er byrjað að sprengja klöppina sem er fyrir neðan sjálfan fossin, og svo eru tæki líka komin niður fyrir sjálfan Gautsdalsbæin þar sem er byrjað að gera klárt fyrir stóran hólk sem verður settur í ána. Þannig að mér sýnist það að verktakin ætli sér að ljúka við veginn að vestfjarðarvegi nr 60 fyrir jól. 



 
   




  

10.11.2007 21:35

Kíkt til rjúpnaveiða í dag.



 


Stórskyttan hann Halldór Logi Friðgeirsson frá Drangsnesi ásamt síðustjóranum fengu sér smá göngutúr í dag til að kanna rjúpnastofninn. Ekki var mikið að sjá af rjúpu á því svæði sem var farið á, en samt náði stórskyttan sínum skammti. En það var eftirtektarvert hvað var mikið af refaförum sem voru út um allt.

07.11.2007 23:03

Lítilsháttar hugleiðingar um jarðarverð á Ströndum sem fer ört hækkandi.

Mynd númer 87

Fyrir örfáum árum hefði fáum eða jafnvel engum dottið í hug að söluverð jarða í Strandasýslu mundi seljast innan fárra ára á tugir miljóna. Í Kaldrannaneshreppi fyrir nokkrum árum og sömuleiðis í fyrrum Fellshreppi seldust jarðir á rúmar tuttugu milljónir, önnur jörðin að mig minnir var seld án kvóta. Og í hinum forna Nauteyrarhrepp seljast jarðir nálægt 100 miljónum, og í Kollafirði hefur jarðarverð margfaldast. Í dag var opnað tilboð í jörðina Kollafjarðarnes sem var í eigu Ríkisins og hæðsta boð í jörðina var 67,7 milljónir staðgreitt. Og það komu 30 tilboð í Kollafjarðarnesið sem telst gríðalegur fjöldi sem hefur áhuga á að eignast jarðarskika. En skráður tilboðsgjafi/kaupandi að Kollafjarðarnesi er Kirkjuhóll ehf. Þetta segir manni það að áhugin er mikill að komast yfir jörð á Ströndum og jarðarverð hefur margfaldast á örfáum mánuðum. Svona að endingu það væri gaman að vita það hvort tilvonandi eigandi á Kollafjarðarnesi hafi skoðað húsakostin áður en hann gerði tilboðið, ekki veit eg um það.

06.11.2007 09:54

Starfsmenn Grunnskólans á Hólmavík afþakka styrk.



Borist hefur bréf frá starfsmönnum Grunnskólans dags. 24. október 2007 þar sem veittum styrk að fjárhæð 1.500 kr. pr. mann til kaupa á flíspeysum er hafnað vegna skilyrða sveitarstjórnar um að peysurnar verði merktar Grunnskólanum. Þá er einnig gefin sem skýring að sveitarstjórn var ekki sammála við afgreiðslu málsins sem sýni vilja og viðhorf sveitarstjórnar gagnvart starfsmönnum, hræðslu sveitarstjórnar við almenningsumræðuna, skorti á starfsmannastefnu og þakklæti til starfsmanna sem mætti koma fram í jólakortum, jólagjöfum og að árshátíð sé haldin fyrir starfsmenn með pompi og prakt. Í lok bréfsins er kallað eftir umræðum hjá meiri- og minnihluta og óskað eftir svari vegna þeirra efnisatriða sem fram koma í bréfi þeirra, en undir bréfið skrifa allir starfsmenn skólans að skólastjóra undanskildum. Sveitarstjórn þakkar ábendingarnar og mun taka þær til greina og mun vinna að gerð opinberrar starfsmannastefnu. Samþykkt samhljóða.
Heimild (fundagerð) Sveitarstjórnar Strandabyggðar 30 október 2007.

05.11.2007 23:08

Bassastaðarbóndinn Bassi nr 1 og frú stækka óðal sitt.

Guðbrandur Sverrisson (Bassi nr 1) ásamt sínum smiðum hafa verið undanfarna daga að byggja við og stækka íbúðarhúsið á Bassastöðum. Í morgun þegar Landpósturinn kom við á Bassastöðum voru menn á fullu við bygginguna og stemmt að klára þakið og loka því í dag. Snikkari sem sér um þessa byggingu er Ómar Pálsson.