Færslur: 2012 Ágúst

31.08.2012 20:47

Hólmavíkurhöfnin á hafísárunum köldu sem vonandi koma aldrei aftur. Myndir Þórarinn Reykdal
























Hólmavíkurhöfnin á hafísárunum köldu sem vonandi koma aldrei aftur. Myndir úr myndasafni  Þórarins Ó. Reykdal.

27.08.2012 21:11

Þessar gömlu myndir frá 1954 fékk ég frá Hrafni Heimissyni Hornafirði, strandaður bátur og Hólmavík








Eigandi myndana Hrafn Heimisson Hornafirði telur miklar líkur á því að þessi bátur sé í Strandafjöru en hvar er ekki vitað. Faðir hans var kennari við Hólmavíkurskóla 1954 til 1955 og tók slatta af myndum. Svo er skrifað aftaná Hólmavíkurmyndina og sagt frá nokkrum húsanöfnum sem þar eru, og það sést greinilega að beinaverksmiðjan er í fullum gangi. Breytingin á tanganum er talsverð frá 1954 til ársins 2012.

26.08.2012 21:52

Hólmavík.








24.08.2012 22:13

Höfnin



22.08.2012 23:06

Raggi og Sigga á Heydalsá fengu nýlega ofur dráttarvél af flottari gerðinni John Deere 6330



Ragnar og Sigga á Heydalsá fengu nýlega afhenta nýja John Deere 6330 dráttarvél, að sögn sölumannsins er þó alveg pláss fyrir fleiri almennilegar dráttarvélar á Ströndum! 

21.08.2012 23:59

Fyrrum vinsæla Hólmavíkurhljómsveitin Þyrlarnir (Þyrlaflokkurinn) koma saman á Réttarballi.




Hljómsveitin Þyrlarnir eða bara sem kallaði sig síðar Þyrlaflokkurinn sem starfaði frá um 1970 og til 1984 eða svo hafa ákveðið að koma saman á ný og spila á réttarballi á Laugarhóli Í Bjarnarfirði 22 september næstkomandi.

Það verða flestir fyrrum meðlimir sveitarinnar með í för að sögn eins meðlima sveitarinnar Gunnlaugs Bjarnarsonar Strandveiðisjómanns og prestakalls og gamansagnarmanns með meiru, og það má nefna líka að Gunnar Jóhannsson athafnarmaður og Hveravíkurbóndi og reiðhestakall og líka Grímseyjareiganda hinn nýi  ásamt mörgum öðrum verður með í för og líka verður Leifur Hauksson útvarps og sjónvarpsmaður og líka Bakkabúi í Bjarnarfirði svona af og til og líka verður Guðmundur Jóhannsson burt fluttur Hólmvíkingur og söngfugl góður og síðast en ekki síst er Rut Bjarnadóttir Hólmvíkingur og Svíþjóðarbúi og húseigandi á Kópnesbrautinni sem ætlar að mæta á svæðið og þenja sína rödd, og svo hefur hljómborðsleikarinn og söngfuglinn stórgóði Stefán Jónsson ruslakall hér á Hólmavík og granni minn góður bæst í þennan föngulega hóp.

En þegar þetta er ritað rétt fyrir tólf á miðnætti 21 ágúst 2012 er ekki alveg á tæru með trommara sveitarinnar hver hann verður Ingimundarson eða Ragnarsson eða einhver annar kemur bara allt í ljós þegar nær dregur réttarballsins.

En það verður örugglega gaman hjá þeim að koma saman og halda alvöru sveitaréttarball eins og þau voru best á Laugarhóli og víðar á Ströndum og á landi voru á síðustu öldinni sem kemur aldrei aftur sem er hrikalega slæm og rugluð þróun á flestan hátt. Þá er bara að fara gera ballskóna klára og mæta á réttarballið á Laugarhóli 22 september næstkomandi.