10.10.2007 09:19

Hugleiðingar um heimsmeistaratitilinn

 mynd mynd mynd

Úrslitin í heimsmeistaramótinu munu ráðast í lokamótinu í Brasilíu og Lewis Hamilton á enn mesta möguleika. Hann er með 107 stig á móti 103 stigum Fernando Alonso og 100 stigum Kimi Raikkönen. En heimamaðurinn Felipe Massa gæti orðið hans mesta martröð. Hann vann mótið í fyrra og mun styðja við bakið á Raikkönen.

Massa náði besta tíma í tímatökum í fyrra og leiddi frá upphafi til enda og varð fyrsti brasilíski ökumaðurinn til að vinna síðan Ayron Senna árið 1993. Rétt eins og núna þá var Massa ætlað að styðja við bakið á Michael Schumacher í titilbaráttunni, en það gekk ekki eftir þar sem Michael Schumacher gekk mjög illa og Massa gat ekki komið honum til hjálpar.

Til að landa titli þarf Raikkönen að vinna og að Massa verði í öðru sæti, Alonso þriðji og Lewis Hamilton sjötti eða neðar. Það er því við ramman reip að draga fyrir Raikkönen, sem vann 200 sigur Ferrari um helgina.  Það yrði þó sýnu verra fyrir Hamilton að Alonso næði forystu í keppninni og báðir Ferrari bílarnir yrðu á milli hans og Alonso. Þá yrði Alonso heimsmeistari. .  Ef Massa vinnur mótið þá nægir Hamilton fjór fjórða sætið til að vera meistari.
Hamilton stefnir alltaf á sigur í hverju móti og þó hann segist þegar hafa gleymt martröðinni í Kína, þá hlýtur það að hafa einhver áhrif á kappann. Massa mun sæta færis á sigri, ef Raikkönen er ekki í stöðu til að vinna mótið. Tímatakan hefur ráðið miklu um úrslit mót og það verður því hart tekist á henni að vanda.  Massa mun njóta stuðnings heimamanna og ekki ólíklegt að það muni færa honum einhver sekúndubrot, aukalega.