14.11.2011 21:14
Ég vil minna á stofnfund áhugamanna um Hreindýr til Vestfjarða verður 3 desember á Hólmavík.
Fréttatilkynning.
Félag áhugafólks um hreindýr á Vestfirði.
Laugardaginn 3 desember verða stofnuð samtök áhugafólks um "Hreindýr á Vestfirði" . Tilgangur samtakanna er að beita sér fyrir því að gerðar verði rannsóknir á heilbrigði hreindýranna, það er að segja hvort hætta sé á að þau geti smitað sauðfé af búfjársjúkdómum. Einnig að gerð verði rannsókn á gróðurfari á Vestfjörðum í þeim tilgangi að athuga hvort nægjanlegt æti sé fyrir dýrin. Félagsmenn geta þeir orðið sem eiga lögheimili á Vestfjörðum, eiga þar fasteignir eða jarðir. Þeir sem vilja gerast félagsmenn í samtökunum skrái sig sem allra fyrst á hreindyr@skotvis.is Á stofnfundi samtakanna verður kosin stjórn þeirra, skipað í starfshópa og lög samtakanna rædd og síðan borin upp til samþykktar. Fundurinn verður haldinn á Hólmavík 3 desember næstkomandi. Undirbúningsnefndin.
Ps. Kíkið á viðtalið við Strandamanninn Magnús Ólafs Hansson sem var í Kastljósinu 14 nóvember http://www.ruv.is/sarpurinn/kastljos/14112011