21.11.2011 21:41
Sölubann á rjúpu og annarri bráð er fallið, kaupmenn flytja inn rjúpur í þúsundum sem aldrei fyrr
Hræsnin er
yfirgengileg hér á fróni. Sölubann á rjúpum hefur verið við líði nú um nokkra
ára skeið og margir hafa farið eftir þeim tilmælum en þó ekki allir. Og hafa
veitt margfalt meira en þann stykkja fjölda sem var nefndur í tilögum frá
ríki og fræðingum náttúrunnar.
Í
kvöldfréttum nú áðan var talað við verslunarmann sem er að fá nokkur þúsund
rjúpur frá Skotlandi, þessi frétt kom mér afar á óvart vegna þess að sala á rjúpum
til og frá verslunum og líka frá veiðimunum hefur verið bönnuð með öllu þó að
maður viti það að veiðimenn selja rjúpur til vina og ættingja en ekki til
verslana.
Ég er
alveg rasandi á þessari frétt sem var á rúv nú í kvöldfréttum og þá sagði þessi
verslunarmaður að hann hefði líka flutt inn rjúpur í firra til að selja út úr
búðum til sinna kúnna. Ég skil ekki þessa heimskulegu vitleysu að leifa
innflutning á rjúpu til verslana en Íslenskir veiðimenn mega ekki selja sína
villi bráð einum eða neinum, hvaða villimannaþjóðfélag búum við í Íslendingar,
þetta eru fávitar fávitanna sem gera svona fjanda. Skrattinn hirði þessa
reglugerðar skrifræðispakk.
Nöfnin
magnveiði og sölubann snúast einvörðungu um aumingja rjúpuna, það virðist
aldrei vera magnveiði á gæs - skarf -
svartfugli - öndum og lunda og svo framvegis, ég skil ekki þessa kolrugluðu
hugsun að kalla bara magnveiði á rjúpum og öll sú umræða sem hefur farið í
blöðum og vefmiðlum Íslendinga hefur á flestum sviðum ekki verið veiðimönnum
til framdráttar. En að lokum vil ég koma því til ykkar allra þarna sem nenna að
skoða þetta að allir þeir sem fá sinn rjúpnaskammt eða ríflega það að þeim sé
heimilt að selja sínar fáu rjúpnaskjátur til þeirra sem vilja kaupa rjúpur og
aðra villibráð hver sem hún er alveg eins og verslunarmenn sem hafa gert og
gera enn og munu gera áfram um ókomin ár. Næst förum við að selja veiðileyfi og
það dýr á bragðarefi sem leynast í náttúru Stranda, það er nóg til af að Strandaref sem örugglega margir
vildu fella og ef til vil grilla ann og eta með góðu rauðvíni, allavega er hann
etin á Patreksfirði með góðri list.
Nánar hér á vef ruv.is http://www.ruv.is/sarpurinn/nr/4590942/