22.11.2012 23:18
Er einelti stundað í minni heimabyggð - svarið er því nú andskotans verr stórt JÁ.
Nú þegar þetta er ritað er fyrirlestur um einelti sem fer fram í félagsheimilinu hér á Hólmavík og byrjaði hann kl 16.30 í dag 22 nóvember 2012.
Er einelti hér á Ströndum og þar á með á Hólmavík er svarið hrópandi stórt JÁ.Hverjir stunda þá einelti hér á Hólmavík? Og hverjir geta gert svona óþveraskap við samborgarasýna. Eineltishátturinn er oftar en ekki stundað af hinu opinbera vegna ef til vill stöðu viðkomandi hjá ríki og eða bæ. Ef einhverjum er illa við einhvern þá er stöðutáknið oft notað til að búa til ótta gagnvart hinum aðilanum og ég tala nú ekki um ef sá opinberi klæðist öðruvísi fötum en flestir hinna þá getur sá skrautlega klæddi skapað enn meiri ótta vegna stöðu sinnar sem birtist oft með óskiljanlegum hroka sem flestir hér um slóðir kannast við en kjósa að halda kjafti, sem kalla má þá stofufangelsi.
Valdníðsla hefur tíðkast hér og annarsstaðar
um land allt og hefur farið vaxandi með níu aðkomufólki sem er auðvitað að öllu
jöfnu ágætis fólk, en samt er alltaf einn og einn svartur sauður í hjörðinni
sem eyðileggur fyrir flestum hinum sem er alveg hábölvað og engin á að kunna að
meta.
Sumir komast upp með allan andskotann og
brosa út að eyrum vegna þessa yfirgangs og skamma sýn ekkert fyrir
eineltisskapinn og hafa á sinni stefnuskrá að brjóta viðkomandi alveg niður á
allan hátt og eru menntaðir í niðurbrotsfræðum, þetta er ekkert annað en
einelti sem er kostað þar á meðal af sjálfu ríkisvaldinu og líka það að ef
maður mótmælir ríkistuddunum þá er það nánast undantekningarlaust að viðkomandi
er kallaður á ríkisteppið þó að viðkomandi ríkistuddi hafi margsinnis brotið
þær laganareglur sem ríkistuddarnir eiga að fara eftir ásamt okkur hinum, en
ríkisreknu eftirlitstuddarnir komast upp með allan fjandann sem við hin verðum
að eta það sem úti frís og án sólarlandaferða nokkrum sinni á ári, enda er
alþíða Íslands ekki á ríkisjötunni.
Hingað til Hólmavíkur vill fólk flytjast til
og það er hryllilega slæmt þegar fólk flyst í burtu eins og hefur verið að
gerast hér á Hólmavík en fleiri hafa þó flutt til Hólmavíkur en farið, en mér
er sagt að einelti hefur verið stundað í stofnunna batteríi Strandabyggðar sem
er alveg örugglega rétt, ég þekki það líka af eigin skinni og hver er það sem
setur einstakling í eineltisstellingar
verður ekki fátt um svör, svörin er að finna í fundargerðum
sveitarstjórnarinnar í gegnum árin.
Þannig að niðurstaðan í gegnum árin er sú
gagnvart síðustjóranum að hann hefur í fjóra áratugi eða svo verið að rita vítt
og breitt um hitt og þetta svo sem um vegagerð hér og þar og um það sem þarf að
gera að hans mati bæði þar og ekki síst um þau mál sem snúa að sjálfum hreppnum
og líka það að taka myndir af hinu og þessu og birta það á netinu er oft ekki
vel séð og viðkomandi refsað á eineltislegan hátt (sjá fundargerðir
sveitarstjórnar) og hver á að túlka það að hver er meiri refur en hinn og
greinilega á að fjölga í refabúi Strandabyggðar sem hefur verið að þenjast út á
kostnað smáfuglana (mófuglanna) sem fer beinustu leið í gin refsins með sama
áframhaldi eins og virðist eiga að vera
ennþá við líði um ókominn ár.
Sum sé að einelti er og hefur verið skipulega
stundað af ríkisvaldinu í mörg ár hér á Hólmavík ásamt stjórnendum
hagsmunasamtakaflokka sem hafa komið að stjórnum Hólmavíkurhrepps og síðar
Strandabyggðar á hverjum tíma fyrir sig og gera það enn, stundað einelti á
sorglegan hátt. Við viljum eiga heima hér á Ströndum í sátt og við allt og
alla, og það er helvíti hart að engin eða fáir sem þora að tjá sig á opinberum
vettvangi um málefni líðandi stundar, þorum vart að gera það áfram án þess að
þurfa að vera með ótta um að það að vera nánast tekin út af hinu Íslenska
sakramenti um ókomin ár er ekki neinum bjóðandi hvorki mér eða þér né nokkrum
öðrum.
Ps. Virðum hvort annað án valdníðslu.