20.02.2013 15:19
Veiddi kött í staðin fyrir ref við Bjarnastaði í Ísafirðinum.
Hann
Þorvaldur Garðar Helgasson (gæi) refaskytta í hundraðavís hefur aldrei veitt
lifandi kött áður en það var í nótt. Sem oftar er skyttan á ferðinni á flestum
tímum sólarhrings og í nótt átti hann leið um Ísafjörðin við Bjarnastaði sá
hann tvo ketti með kílómetra
millibili en hann náði öðrum en hinn fór
inn í urð. Þannig var fyrir nokkrum
vikum síðan valt bíll við Bjarnastaði og
í bílnum voru tveir kettir sem hurfu út í buskan og hafa ekki sést síðan fyrr
en í nótt. En þessir kettir eru frá Flateyri og eigandinn fær þennan hann
vonandi fyrir helgi en refaskyttan sagðist vera hættur að drepa refi að hann
mundi helga sig við ná/veiða lyfandi ketti og gefa bara frat í refina enda eru
þeir búnir að eta upp allt fuglalíf sem finnst hér vestra vegna kolrangrar stefnu þeirra sem fara með
þennan málaflokk á landsvísu. En í
fyrra fékk skyttan vel á annað hundrað refi og er komin með um 50 fyrir þetta
veiðitímabil, geri aðrir betur, ref hefur fjölgað gríðarlega um allt land þó
mest á þeim svæðum sem eru friðaðar svo sem á Hornströndum og þessum rebbum flæðir
suðurávið