18.07.2017 15:35
Verk dagsins. Rölt upp úr Veiðileysufirði til ræturs Háafells/Stríta/Pottfjall /Nónhnúkur
Í dag fór ég að kanna ástand á mér sjálfum hvort maður væri hæfur til
fjallaferða einungis á löppunum. Útkoman miðað við þetta brattlendi sem ég fór
í dag er kallin bara þolanlegur þó að hann finni til hér og þar. En rigningin
setti strik í verk dagsins ég varð gegnblautur á skömmum tíma og svo gerði
talsverðar vindkviður uppá hjöllunum fyrir neðan Pottfjallið og bara kom mér
til vegarinns og heim. Fer vonandi einhvert um helgina bara hvert.
Skrifað af J.H. Hólmavík.