Færslur: 2008 Júlí
11.07.2008 22:14
Þetta eru tveir af hreppurum Strandabyggðar í fullum skrúða, Steinar og Áskell Gunn.
Skrifað af JH.
10.07.2008 22:51
Víkingar vestursins kepptu um Svansbikarinn í sundlaug Hólmavíkur í dag.
Skrifað af JH.
10.07.2008 22:46
Rækju skeljar ýldufíla og selhræ fyrir neðan prestbústaðinn. Sóðaskapur af verstu gerð.
Skrifað af JH.
08.07.2008 22:42
Útboði frestað. Vegagerðin bíður ekki út í ár verkið sem fram átti að fara í Bjarnarfirði.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum verður verkið sem átti að bjóða út í Bjarnarfirði í sumar ferstað fram á næsta ár vegna þess að útboðsgögn myndu ekki vera tilbúin fyrir 1 september. Einn af forkólfum Vegagerðarinnar tjáði einum af þeim landeigendum sem á land þar sem hin níi vegur mun ligga að útboðsgögn væru ekki klár og myndu ekki vera klár fyrir 1 september næstkomandi. Þetta kemur flatt uppá alla, því er ekki að leina. En þetta segir manni það að oft eru forkólfar Vegagerðarinnar ráðandi toppar að sega viljandi ósatt til að friða um tíma þá landeigendur sem eiga land að viðkomandi vegastæði sem til stóð að gera. Örugglega er sama uppá teningnum með stubbinn sem átti að bjóða út í ár 2008, á milli Staðarár og Selá?
Skrifað af JH.
08.07.2008 22:38
Þetta eru vitringar vitringanna, góðir betri bestir í einum haug í bryggjubátnum nú í dag.
Skrifað af JH.
08.07.2008 09:43
Bullandi umferð í Arnkötludal. Birtuskilyrðin til myndatöku í gær séð frá Hrófá voru frekar slæm.
Skrifað af JH.
06.07.2008 22:41
Skutlast yfir í Kaldalón og rölt upp að Drangajökli í bongó blíðu. Kíkið á NONNANN.
Skrifað af JH.
05.07.2008 22:53
Fellströndin mynduð ásamt fisvélum sem komu til Hólmavíkur í dag.
Fellströndin og nágrenni mynduð í dag ásamt fisvélum sem komu til Hólmavíkur í 25 stiga hita og bongó blíðu og gerðu svo árás á bergið í gríð og erg.. Kíkið á fleiri myndir inná NONNANUM.
Skrifað af JH.
04.07.2008 21:45
Þetta bar einna helst fyrir augu myndavélarinnar í dag og síðustu daga.
Skrifað af JH.
02.07.2008 22:49
Gistihús rís á Drangsnesi, grunnur tekin fyrir nýju íbúðarhúsi í Miðhúsum og Hamingjubíllinn Hörbí.
Skrifað af JH.
01.07.2008 22:25
Svona að gamni gert. Hvaðan er þessi mynd tekin og hvað sést á myndinni.
Þetta er myndatökustaðurinn upp við mastur á Hátúngum á Steingrímsfjarðarheiðinni.
Skrifað af JH.
- 1
- 2