Færslur: 2010 Júlí
22.07.2010 04:41
Lognið á Hólmavík er landsþekkt. Svona var sjórinn á Hólmavík um 10 leitið í morgun.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
21.07.2010 03:18
Þennan fugl fann ég við Hrófberg, er ung Súla, sennilega sami fugl sem kom við á Stað um daginn
Skrifað af J.H. Hólmavík.
21.07.2010 03:08
Það hefur verið fallegt veður á Ströndum þessa dagana. Þessar myndir eru teknar í gær og í dag
Skrifað af J.H. Hólmavík.
19.07.2010 11:45
FRÉTTATILKYNNING FRÁ LAUGARHÓL Í BJARNARFIRÐI Á STRÖNDUM.
TÓNLISTARHÁTÍÐ Á LAUGARHÓLI Á STRÖNDUM
MUGISON, PÉTUR BEN, LÁRA RÚNARS OG POLLAPÖNK
LAUGARDAGINN 24. JÚLÍ 2010
Mugison, Pétur Ben, Lára Rúnars og hljómsveitin Pollapönk munu troða upp, hvert í sínu lagi, og hvert með öðru, á tónlistarhátíð sem haldin verður á Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði á Ströndum laugardaginn 24. júlí næstkomandi. Enginn aðgangseyrir er að hátíðinni og allir velkomnir, börn og fullorðnir.
Hótel Laugarhóll er heimilislegt sveitahótel rétt norðan Hólmavíkur og með nýjum vegi um Arnkötludal frá mynni Gilsfjarðar yfir á Strandirnar er þetta skottúr af Höfuðborgarsvæðinu. Um álíka langan veg er að fara frá Ísafirði.
Á Hótel Laugarhóli er kósí kaffihús og fyrirtaks veitingastaður, góð gistiaðstaða í uppbúnum rúmum, en einnig er boðið uppá svefnpokapláss. Þar eru líka vel gróin tjaldstæði með rennandi vatni og salernum.
Gvendarlaug, náttúruleg heit uppspretta sem miðlar geistlegum kröftum frá Guðmundi hinum góða, er við Hótel Laugarhól, og 25 metra löng, ylvolg sundlaug sem Ungmennafélagið Grettir byggði fyrir tæplega 70 árum, vermir líkama og sál.
Á Laugarhóli er einnig að finna Kotbýli kuklarans, annálað safn sem veitir góða innsýn í lifnaðarhætti almúgafólks á Ströndum fyrr á tíð.
Örn Elías Guðmundsson eða Mugison er óþarft að kynna svo rækilega hefur hann heillað tónlistarunnendur um árabil.
Pétur Ben sem hefur troðið upp með Mugison í gegnum tíðina hefur og getið sér firnagott orð fyrir tónsmíðar, meðal annars fyrir kvikmyndirnar Börn og Foreldra.
Hróður söngkonunnar Láru Rúnarsdóttur vex ört um þessar mundir. Hún er einn þeirra ungu tónlistarmanna sem hafa menntað sig í klassískri tónlist og vinna fyrir sér í alþýðuheimum tónlistarinnar. Fyrstu útgáfur Láru hafa slegið í gegn og skorað jafnvel enn hærra en upptroðslur hennar í óperum.
Halli og Heiðar í Botnleðju kalla sig Halli-lúja og Heiðar Aleld á nýútgefinni plötu skipa hljómsveitina Pollapönk. Þeir hafa slegið rækilega í gegn hjá yngstu kynslóðinni sem og þeim sem eldri eru. Pollapönk er hljómsveit fyrir alla. Konur og kalla, krakka með hár og kalla með skalla.
Þegar menn hafa hreiðrað um sig á hótelinu, eða skellt upp tjaldinu og rúllað út svefnpokum, svamlað í lauginni, kíkt í kotbýlið og haft það kósí, hefja Pollapönkarar leikinn kl. 17. Smá grillpása og síðan stíga þau hvert af öðru á sviðið í salnum á Laugarhóli, Lára, Pétur og Mugison, og spila sundur og saman á ljúfum og léttum útilegunótum. Velkomin á Tónlistarhátíð á Laugarhóli í Bjarnarfirði.
Nánari upplýsingar veita staðarhaldarar, Einar og Dísa, í s. 698 5133 eða 862 7695.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
19.07.2010 04:37
Þetta fallega land sem var baðað í sól og hita um 22 gráður í + barði ég augum í dag.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
19.07.2010 04:19
Ögurballið og miðnætursólin mynduð í Ísafjarðardjúpinu í nótt.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
18.07.2010 00:55
Bryggjuhátíð 17 júlí 2010 á Drangsnesi. Fjölmenni eins og alltaf þrátt fyrir sperring í Kára gamla.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
17.07.2010 05:40
Fór til Drangsnes í kvöld í ferkar vindasömu veðurfari, all margir gestir eru mættir á staðin
Skrifað af J.H. Hólmavík.
17.07.2010 01:56
Nú um þessa helgi er Bryggjuhátíð á Drangsnesi sem er sú fimmtánda, fjölbreitt dagskrá er í boði.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
17.07.2010 01:54
Nú er búið að opna fiskbúð á tanganum á Hólmavík, örugglega sú fyrsta á Hólmavík, gott framtak.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
16.07.2010 04:31
Í dag hafa veiðimenn veitt Makríl við bryggjuna á Hólmavík. Fjörðurinn er fullur af þessum fisk.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
16.07.2010 04:28
Þetta sumarhús kom til Hólmavíkur í morgunsárið frá suðurlandinu, og ekki allt búið enn.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
15.07.2010 07:30
Baula var falleg í kvöldsólinni í kvöld, hún verður heimsótt innan fárra daga.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
15.07.2010 07:25
Í kvöld inn í Steingrímsfirði var vaðandi torfur af einhverskonar fiski, hvaða tegund er ?
Skrifað af J.H. Hólmavík.
15.07.2010 07:24
Mér þætti gaman að fá að vita til hvers er ætlast af þessum kofa við ósa Fellsár í Kollafirði.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
14.07.2010 12:08
Bílvelta var nú áðan við bæinn Hnitbjörg, einhver slys var á fólki sem var sent með flugvél suður
Myndir teknar um kl 22.00 í kvöld.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
14.07.2010 10:50
Á sunnudaginn, var opnað lítið og sætt kaffihús á Hafnarbrautinni og heitir það Hólmakaffi
Skrifað af J.H. Hólmavík.
14.07.2010 10:46
Tjaldsvæðið á Hólmavík er búið að vera þétt setið undanfarnar vikur, fjölgun ferðamanna er mikil
Skrifað af J.H. Hólmavík.
14.07.2010 10:31
Ég veit ekki hvað eru mörg ár síðan að Sveitarstjórn Strandabyggðar ætlaði að rífa þetta?
Skrifað af J.H. Hólmavík.
14.07.2010 03:41
Ferðamönnum til Stranda hefur fjölgað til muna eftir að vegurinn um Arnkötludal var gerður.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
14.07.2010 03:37
Upp er komin hugmynd um það að listafólk hér á staðnum fái að mála gamla vatnstankinn, ég bíð
Skrifað af J.H. Hólmavík.
14.07.2010 03:29
Furðulegt að tjalda á þessum stað neðst í Þiðriksvallardal, en alveg í skjóli flestra vinda
Skrifað af J.H. Hólmavík.
13.07.2010 05:21
Sláttur er viða hafin á Strandarsvæðinu. Myndir frá Tröllatungu, Miðhús og Broddanesi.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
13.07.2010 05:16
Skáldið á Strórugrund hættur með búskap og níir bændur teknir við í það minsta næstu 20 árin.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
12.07.2010 05:24
Lambatindur á Ströndum var heimsóttur í dag og það í þriðja sinn í bongó blíðu. Góður dagur.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
11.07.2010 05:30
Í dag. Er ég kom heim í Búðardal var sungið hér forðum, fígúrur listafólks eða þannig myndað í dag
FLEIRI MYNDIR Á NONNANUM.
Skrifað af J.H. Hólmavík.