Færslur: 2010 September
22.09.2010 03:59
Nagladekkin eru aftur komin í umræðuna.Naglar í dekkjum eru um 40% öruggari en áður var haldið
Nagladekkin öruggust.!
Heimild bgs.is
21.09.2010 05:12
Sveitarstjórn Strandabyggðar fær bréf frá Þjóðfræðistofu og Lýður Jónsson fékk ekki tankinn
Tilboð frá Lýð Jónssyni í gamla vatnstankinn . Sveitarstjórn þakkar fyrir tilboðið en hafnar erindinu. Sveitarstjórn hefur ekki tekið ákvörðun um framtíð gamla vatnstanksins á Hólmavík að svo stöddu.
Erindi frá Þjóðfræðistofu um lista- og fræðimannsíbúð á Hólmavík. Katla Kjartansdóttir kynnti erindi Þjóðfræðistofu þar sem óskað er eftir styrk frá sveitarfélaginu Strandabyggð fyrir leigu á Hafnarbraut 7 með það að markmiði að nýta húsið sem lista- og fræðimannaíbúð á Hólmavík. Sveitarstjórn finnst hugmyndin mjög áhugaverð og vísar erindinu til Menningarmálanefndar þar sem Þjóðfræðistofa hefur áhuga á að kynna erindið enn frekar.
Í skýrslu sveitarstjóra er fjallað um framkvæmdir í sveitarfélaginu. Unnið hefur verið að viðgerð eftirtalinna rétta: Kirkubólsrétt, Staðarrétt og Skeljavíkurrétt. Þá hefur verið unnið að gatnaviðgerðurm: Malbik var yfirlagt í brekkunni á Vitabrautinni og upp að skóla og á planið þar. Eins hefur verið farið í holufyllingar í Lækjartúni. Gámasvæði í Skothúsvík er tilbúið fyrir flutning gáma á svæðið. Þessi sveitarstjórnarfundur er svolítið grár? Nánar á vef Strandabyggðar.
20.09.2010 00:54
Þá er vetur kallin farin að minna á sig hér á Ströndum,Heiðarbæjarheiðin gránaði í nótt,svalt veður
19.09.2010 02:39
Í dag var smalaður Selárdalur og syðsti hluti Trékyllisheiðar og safnið rekið og réttað á Skarði
19.09.2010 02:36
Ágúst Guðjónsson stórverktaki hefur í mörg horn að líta, að sækja bíla - hræra steypu og keyra rútur
18.09.2010 05:42
Fallegasta skip á Ströndum kemur að landi í dag Hlökk ST 66, og í febrúar 2011 kemur nítt fley
18.09.2010 05:39
Gamla Ráðaleysi er að ganga í nía lífdaga,það á að skipta um megnið af járninu og ef til meira síðar
18.09.2010 05:37
Í dag var orðið fjölmennt í Odda í Bjarnarfirði vegna þess að á morgun er smölunardagur þar og víðar
18.09.2010 05:33
Í morgun náði ég betri myndum af klettinum Davíð ritstjóra MBL, hann er skrambi líkur fyrrum X D
18.09.2010 05:30
Skrapp í gær upp í Þiðriksvallardal á mínum reiðskjóta, frekar slæmt fyrir svona malbiksfarartæki
17.09.2010 03:44
Í morgun var Vegagerðin að bera ofaní vegin frá Drangsnesi og til Bakkagerðar. Bjarnarfjörður? nei
17.09.2010 03:41
Á laugardaginn 18 september verður réttarball á Laugarhóli, Maggi Kjartans og Sigga Beinsteins spila
17.09.2010 03:39
Svona var veðurblíðan á Hólmavík í dag. Frábært haustveður og spáir góðu um helgina.
17.09.2010 03:35
Enn eru Grímseyjarmenn á ST 2 að Kræklingast á firðinum í góða veðrinu í dag.
16.09.2010 09:32
Jólamaturinn flögrar um Hólmavík og víðar, það virðist vera talsvert af rúpu núna.
16.09.2010 02:23
Haustlitirnir eru flottir og eru í óð og önn að birtast okkur þessa dagana.
15.09.2010 17:30
Rakst á þetta í netheimum. Fell og Kollafjarðarnes í Kollafirði eru til sölu á samanlagt 152 millur
15.09.2010 03:27
Litadýrðin í regnboganum í Bjarnarfirði í morgun var stórfengleg, að mynda þetta var ekki gott
15.09.2010 03:21
Mér var bent á þessa hausmynd af Davíð ritstjóra MBL,þetta er rétt við kirkjugarðinn á Drangsnesi
Reyni að mynda Dabba kallin betur seinna.