Færslur: 2010 Október
15.10.2010 05:17
ÁBESDING TIL RUSLAMÁLARÁÐHERRANS. Ruslahirðirinn á að taka alla svarta ruslapoka við tunnu
14.10.2010 05:34
Á morgun 14 október er eitt ár frá opnun vegarins um Arnkötludal.
Í félagsheimilinu á Hólmavík í fyrra flutti þáverandi Samgönguráðherra KLM þessar þrjár vísur.
Einn talaði oft um veg yfir vegleysur og hraun.
Einn vitnaði í samtök, er ynnu þyngstu raun.
Einn mældi fyrir vegi og vissi upp á hár,
hvar vegur ætti að koma... Svo liðu hundrað ár.
En loksins hætti æskan að lúta þeirra sið.
sem líta fjærst til baka, en aldrei fram á við.
Og æskan, hún er samhent og sagði: Hér er ég.
Og sjá, hún ruddi hraunið og lagði nýjan veg.
Er starfinu var lokið og leyst hin mikla þraut,
fannst lýðum öllum sjálfsagt, að þarna væri braut.
En víða eru í byggðunum björg og keldur enn,
sem bíða ykkar, stórhuga vegabótamenn.
Tilvitnun ráðherra líkur.
Til hamingju allir Vestfirðingar og aðrir landsmenn að vera búinn að hafa þennan veg í eitt ár og það með góðum árangri eins og búast mátti við alla vega hjá þeim sem til þekktu. Og með tilkomu þessarar stórgóða vegar hefur ferðamönnum fjölgað á Ströndum um tugi % sem þíðir meiri veltu hjá þeim sem reka verslanir - ferðaþjónustu - sundlauga gestum fjölgaði helling og svo framvegis. Þannig að útlit á mínu fallega Strandasvæði er bara gott á flesta vegu um ókomin ár. Og ekki má gleyma því að Kaupfélag Steingrímsfjarðar er að stækka sitt húsnæði um þessar mundir vegna fjölgunar ferðamanna til Stranda og svo fer sjoppan hjá N1 inn í Kaupfélagið sem verður frá og með næsta vori opið alla daga sem verður mikil framför fyrir alla. Og í lokin vill fólk flytja til Hólmavíkur en það er húsnæðisskortur á svæðinu eins og er, þannig að það er bara bjart yfir íbúum í það minnsta við Steingrímsfjörðinn.
Hvað er að frétta af þessum minnisvarða sem átti að setja upp í Arnkötludal?
13.10.2010 06:17
Nú er mikið ropað og flogið á milli hverfa á Hólmavík og víðar á Ströndum.
13.10.2010 05:40
Nú hefur Vegagerðin birt mikin doðrant um væntanlega veg sem mun kallast Strandavegur nr 643
Hér kemur vegurinn upp á vegin utanvert við Grænanes. (Sjá Hæl)
Hér er Grænanessnoppan.
Nú hefur Vegagerðin birt mikin doðrant um væntanlega veg sem mun kallast Strandavegur nr 643 og er fyrirhugað að framkvæmd hefjist 2011 og að verkið verði búið 2012. Sum sé nír vegur frá svonemdum Svörtubökkum + ní brú á Staðarána og svo verður vegurinn lagður eftir fjörunni fyrir neðan Stakkanes og Grænanes og kemur upp á vegin utanvrt við Grænanes á svokallaða Grænanesmela. Þetta verður brekkulaus vegur og snjóa lítill þó helst við Grænanessnoppu sem er fyrir neðan Steinabrekku sem fer iðulega á kaf í fyrstu snjóum.
En ég rak augun í nokkrar rangfærslur í þessum doðranti frá Vegagerðinni sem starfsmenn Vegagerðarinnar hér við fjörðin vita jafn vel og ég og flestir aðrir sem til þekkja. Ég er að tala um liðina 1.5 LANDEIGENDUR OG AÐRIR SAMRÁÐSAÐILAR, þar er sagt að Sumarhús sé í landi Stakkanes sem er fyrir framan vegamótin fram á Stað, sem er kolrangt , þetta hrakhólasumarhús er í landi jarðarinnar Staðar ekki Stakkanes, það vita það allir sem til þekkja og Vegagerðin veit það líka, en heldur kjafti.
Nokkrir eigendur Grænanes hafa skrifað Vegagerðinni og óskað eftir því að vegurinn verði ekki lagður í fjöru við Grænanes vegna þess að Grænanes sé sjávarjörð og verðgildi hennar mundi þá hverfa með öllu ef vegur yrði lagður í fjöru jarðarinnar, tilvitnun líkur. Núverandi eigendur Grænanes hafa ekki engin af þeim veitt eitt eða neitt hvorki lax bleikju né sel, enda eru þetta flest orðin gamalmenni og hin sem eftir koma áhugalaus með öllu öðru en bölvuðu nöldri og óskiljanlegri vitleysu á flestum sviðum. Og eru aldrei á Grænanesi á þeim tíma sem er snjór og lítið sem ekkert á sumrin þannig að eigendur Grænanes geta á engan hátt verið að kvarta yfir vegalagningu í fjöruborðinu vegna þess að eigendurnir eru nánast aldrei þarna nema í frekju ferðum og þeim líkt.
Og svo er bréf frá Hauk Alfreðsyni formanni veiðifélags Staðarár og hann fullirðir þar að stjórn ávarfélags Staðarár sé mótfallin þessari framkvæmd vegna röskunar ávarinnar á veiðitíma. Ég fullirði það að þarna er formaður ávarfélags Staðarár að fara fram úr sér í þessu bréfi sem er dagsett 30/09 2010. Það skal tekið fram að Stjórn Staðarár á ekki heima á Ströndum og þar af leiðandi hefur enga hagsmuna að gæta þar, og það að fara þennan níja Strandaveg nema kanski á sumri til. Ég veit að flestir eigendur jarða í Staðardal og víðar skoða þessa síðu (mína) af og til og ég bara bið þá sem vilja koma sínum skoðunum í ljós að koma þeim til mín og ég mun birta það.
Að lokum þetta. Að fólk sem á ekki heima á þessum slóðum sem varðar þennan níja veg hefur oftast hæðst og gjammar mest sem hefur ekki einusinni neinn hag í því að fetta fingur út í þessa framkvæmd sem við heima fólk eru og höfum beðir eftir í áratugi og vel það. Í guðana bænum gjammarar hættið þessari balvaðri aðfinslu sem í raun kemur ykkur lítið sem ekkert við þó að þið teljist 23 aðilar sem eiga Grananesið sem er ekki og hefur aldrei verið nein SJÁVARJÖRÐ og mun aldrei vera það þó að gamli Sigurjón hafi skotið nokkra seli og dregið þá upp með spili og saltað þá í tunnu og etið þá með berstu lyst og gerir það örugglega enn í guðs nafni nonni minn.
Hér er doðrantur Vegagerðarinnar STRANDAVEGUR (643) DJÚPVEGUR - Í STRANDABYGGÐ.12.10.2010 03:50
Kindurnar á Kaldrannanesi voru umflotnar á flóðinu í morgun, nokkrar á hólma og 3 á steini.
11.10.2010 03:45
Varðskip kom í dag þó ekki alveg til Hólmavíkur, og um miðjan dag kom Þyrla, ég missti af henni
11.10.2010 03:41
Myndir teknar síðla dags í dag við Hrófbergsósa á há fjöru.
11.10.2010 03:35
Rölt um Tungugrafar tangana í blíðunni í gær. Flottir tangar og víkur á milli þeirra.
11.10.2010 03:32
Í gær voru þessir Hafernir á leirunum rétt fyrir norðan Ásmundarnes. Myndir eru frekar óskírar.
10.10.2010 04:59
Nú í kvöld er mikil afmælisveisla haldin á Laugarhóli. 60 ár skal það vera með galdra sömum tón.
Til hamingju Magnús og njóttu vel og lengi.