Færslur: 2010 Nóvember

15.11.2010 02:47

Nú langar mig að vita hvað er að ske á Bassastaðarhálsi og vestanvert við Staðarárbrúna í Staðardal?


























Á Bassastaðarhálsi sunnanmegin þar virðist vera reisa einhverskonar líkan af Eskimannahúsi  og ég sá inn í bílnum voru gamlir munir þar á meðal gjörðartunna (sjá mynd), og sömuleiðis stein snar frá vegamótunum í Staðardal við brúna var hópur fólks að störfum með myndavélar og allskonar leikmunabúnað.  Þá er spurt hvað er verið að gera, er verið að taka upp kvikmynd? Eða er verið að taka upp auglýsingu? Eða einkvað annað, veit einhver um þetta.

14.11.2010 06:30

Miðtúnið í dag.



12.11.2010 06:32

Allir sveitarstjórnarfundir verði teknir upp og hljóðskrár verði settar á vef sveitarfélagsins.



Ég nú áðan rakst á kosningasnepil frá því í vor 2010, frá V listanum, eða öllu heldur frá nafna mínum á Bóli, þar er skrambi góð hugmynd frá honum að allir sveitastjórnafundir verði hljóðritaðir og settir á hljóðskrá á vef Strandabyggðar, þannig að þá mundi maður getað heyrt hvað fer fram á þessum merku fundum, ekkert bólar enn af þessari hugmynd. En ég verð að segja með vef Strandabyggðar hefur lítið sem ekkert lagast þó að nýir aðilar hafa tekið hann yfir. Og eins með bókanir fundagerða sem hafa ekkert breyst, þó að þaulvanir ritpennar séu þarna innanborð.  Já ekki má gleyma íbúahandbókinni um starfsemi og þjónustu Strandabyggðar, þá er það nú spurningin hverjir mundu lenda í þessari Strandabyggðarbók, varla ég, alla vega ekki í þessari bók, en aftur á móti er mér farið að langa að sjá bókina Strandir sem átti að vera komin út fyrir einhverjum XX mörgum árum síðan en ekkert bólar á henni enn þá, KREPPA.

11.11.2010 06:31

Hólmavíkurhöfn.



11.11.2010 06:25

Sveitarstjórn vantar ábendingar. Ábending um algjört bann á hundaskít og hundum á Hólmavík


Sveitarstjórn Strandabyggðar, takið ykkur á og bannið allan hunda skít og hunda á götum og lóðum Hólmavíkur.