Færslur: 2011 Febrúar
18.02.2011 07:01
Ávalt léttir í lundu Jónas Ragnarsson Strandamaður og Þórður Halldórsson bóndapóstur Djúpmaður
Skrifað af J.H. Hólmavík.
17.02.2011 06:14
Í dag. Snyrtipinnar níu bændurnir á Stórugrund, búið að taka til og snurfusa á flestum sviðum.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
17.02.2011 06:11
Smá getraun, mjög einföld fyrir þá sem vel þekkja til. Hvar er þessi mynd nákvæmlega tekin?
Hvar er þessi mynd tekin?
Skrifað af J.H. Hólmavík.
17.02.2011 06:08
Rigningar slyddu sudda tíð hefur verið í dag á Strandasvæðinu með tilheyrandi lúmskri hálku
Skrifað af J.H. Hólmavík.
17.02.2011 06:05
Mynd tekin í fyrradag af fegursta tindi Vestfjarða Lambatindi til vinstri, til hægri er Skrælingur
Skrifað af J.H. Hólmavík.
17.02.2011 06:02
Þetta hljóta vera Gísli, Eiríkur og Helgi þessir staurar sem standa enn uppi í Skeljavíkinni.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
16.02.2011 13:45
Getur verið að búið sé að finna heitavatnið á Hólmavík ?????
Í dag þegar ég var að koma úr göngunni með hr. Gordon rakst ég á Guðmund Björnsson og nokkra kappa sem voru að mæla hitan í holunni sem Guðmundur lét bora.
Hitinn í holunni reyndist vera þó nokkur eða 12,4°¨C á 145 metra dýpi gerir það ekki 80¨°C á 935 metrum . Þá er nú bara spurningin að bora og finna vatnið.
Allt var skráð í votta viðurvist til að ekki væri hægt að rengja niðurstöðuna eins og gert hafði verið áður.
Veit að það átti að mæla hitan í holunni hjá Sæsa Ben en veit ekki um niðurstöðu úr þeim mælingum.
Hef ekki trú á því að þær séu verri eftir því sem Sæsi sagði mér um daginn.
Myndir og texti frá Bjössa Pé http://bspsola.123.is/
Skrifað af J.H. Hólmavík.
16.02.2011 04:40
Landað úr Eyborgu ST 59 eða EA 59, einkvað er á reiki með þessa skráningu.
Eyborg ST 59 eða EA 59?
Skrifað af J.H. Hólmavík.
16.02.2011 04:35
Hólmavík mynduð ofarlega á Skeljavíkurhálsi laust eftir kl fimm í gær í logninu sem þá var.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
16.02.2011 04:26
Eyborg ST 59 kemur að landi í morgun með einkvað yfir 60 tonn af rækju.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
15.02.2011 05:03
Lognið á Ströndum er löngu landsþekkt, svona var veðráttan á Ströndum í dag.
Við botn Kollafjarðar á Ströndum.
Eyjarnar út af Broddanesi með Bæjarfellið í baksýn.
Steingrímsfjörður alveg renni sléttur og fagur.
Sléttur sjór.
Vegurinn um Smáhamrahálsin sést vel og Gálmaströndin og flöllin í vestur hún.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
14.02.2011 04:42
Afmælisveisla aldarinnar á Ströndum var í gær þegar Sigurður Atlasson galdramaður varð 50 ára
Skrifað af J.H. Hólmavík.
13.02.2011 03:22
12 febrúar er fyrsti sólardagur á mínu óðali ár hvert,og 12 er líka brúðkaupsdagur minna foreldra.
Sólin sést 12 febrúar ár hvert í skarðinu við svonemda Töflu.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
12.02.2011 14:49
Staðardalur á Ströndum er nær snjólaus með öllu og það 11 febrúar 2011.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
12.02.2011 06:43
Rok á heimaslóðum Gísla Ágústsonar frá Hvalsá á Ströndum, þarna á fjöru er fótboltavöllur
Skrifað af J.H. Hólmavík.
12.02.2011 06:42
Fallandi lystaverk að falla til jarðar, átti þetta í alvörunni að vera lystaverk? Skelin kvað
Skrifað af J.H. Hólmavík.
12.02.2011 06:39
Grunaði ekki Gvend gamla sem klikkar sjaldan á því, sorptunnu/gámur ómyndin á hliðinni
Skrifað af J.H. Hólmavík.
12.02.2011 06:32
Hólmavíkurhöfnin er alltaf einkvað fyrir myndavélaaugað, ekki satt.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
11.02.2011 13:00
Mjólkurbíllin frá Ísafirði var stopp fyrir neðan Bröttugötuna í dag, sennilega hefur farið hjólalega
Greinilega vantar legurnar.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
11.02.2011 12:41
Frétt dagsins í Strandabyggð eru fyrirhuguð sala á Skeiði 3 á Hólmavík til Sorpsamlagsins á Ströndum
Í frétt BB.IS í morgun var frétt um það að Sorpsamlag Strandasýslu væri um það bil að festa kaup á skemmunni sem er að Skeiði 3 á Hólmavík og að kaupverðið væri fjórtán miljónir og að Sveitarstjórn væri samþykk að ganga til samninga við eigendur að Skeiði 3, tilvitnun líkur. Nú spyr ég hver á Skeiði 3, eftir því sem ég best veit er það Sauðfjársetur á Ströndum sem er skráður eigandi af því. Nú er þá að spyrja hverjir eru í - Sveitastjórn Strandabyggðar þá er það vonandi komið á hreint. Nú finnst mér vera svolítill óþefur af þessum gjörningi, þó að ég segi ekki meira. Í vor þegar VG félagar í Strandabyggð héldu framboðsfund á Kaffi Riis þá kom það skírt fram hjá VG foringjanum að allt sem mundi koma til álita með einhverjar ákvarðanir hverju nafni sem þær mundu nefnast þá yrði upplýsingarflæðið og umræðistigið að vera allt upp á borðunum og öll mál yrðu sett á vef Strandabyggðar þannig að allir mundu getað fyllst með öllum ákvörðunartökum hverju nafni sem þau nefnast. Nú eru liðnir níu mánuðir frá valdatöku þessarar sveitastjórnar Strandabyggðar sem er með völdin í sýnum höndum og hefur sveitastjórnin farið eftir því sem foringi VG sagði á framboðsfundi á Kaffi Riis um að öll mál yrðu sett inn á vef Strandabyggðar áður en ákvörðunin væri tekin samanber þetta Skeiðis 3 mál, svarið er afar einfalt NEI, þetta skil ég ekki vegna skrifa VG foringans á vef hans sjálfs á www.strandir.is fyrir kosningarnar síðustu og árunum þar á undan. Þetta er mér alveg óskiljanlegt hvernig er hægt að snúast svona á skömmum tíma. Íbúarnir í Strandabyggð eiga að halda sveitastjórninni við efnið með aðhaldi eins og VG foringinn í Strandabyggð bað um fyrir síðustu kosningarnar, en það virðist gleymt og glatað eins og flest annað sem er svo algengt hjá þeim sem hafa komist í valdastöður þá er oft ekki alltaf hugsað um eigin hag eins og manni finnst að það sé í þessu tilfelli, því er nú ver og miður. Það er aldrei gott að þurfa að fetta fingur út í eitt eða neitt hvað þá hjá þeim sem maður þekkir talsvert vel og sé þá og hitti nær daglega vegna minnar vinnu og svo framvegis. Ef allir mundu halda kjafti og engin mundi segja eitt eða neitt hvernig mundi staðan vera þá? Það getur engin rekið mig af mínum vef, það er einungis ég sjálfur sem get rekið mig sjálfan frá mínum ritstörfum ,frá vef sem landsmenn hafa verið ánægðir með síðan hann var stofnaður í aprílmánuði 2008. Þessi skrif mín eru einungis skrifuð sem áminning til þeirra sem fara með völdin núna í Strandabyggð, engin leiðindi eiga að þurfa að skapast eins og ég rita um það sem maður sér á líðandi stundu á netheimum. Og eitt að lokum, svona lagað sem ofan greinir gerir maður ekki og það eftir bankahrun á landi voru og núna er árið 2011 munið það. Kíkið á fésbókina mína http://www.facebook.com/profile.php?id=1027454590
Skrifað af J.H. Hólmavík.
11.02.2011 10:09
Félagsvist verður í félagsheimilinu á Hólmavík laugardaginn 12 febrúar kl 15.00 vegna Rósu Jósepsd
Félagsvist verður í félagsheimilinu á Hólmavík laugardaginn 12 febrúar kl 15.00 til styrktar Rósu Jósepsdóttur bóndi frá Fjarðarhorni í Hrútafirði, sem hefur verið mikið veik undafarna mánuði og hefur kostað hana og fjölskildu hennar mikið á öllum sviðum. Allur sá ágóði sem kemur inn rennur óskiptur til hennar.
Skrifað af J.H. Hólmavík.
11.02.2011 01:47
Í fyrramálið kl 09.00 verða þeir félagar Einar Kr og Ásbjörn Ótt með fund í Rósubúð - Höfðagata 9
Einar Kr Guðfinnsson og Ásbjörn Óttarsson alþingismenn verða með fund kl níu í fyrramálið (morgun föstudag 11 febrúar) í Rósubúð í húsi Björgunarsveitarannar Dagrenningar Höfðagötu 9 Hólmavík.
Skrifað af J.H. Hólmavík.