Færslur: 2011 Apríl
11.04.2011 05:39
Flottar þessar rjúpur sem hafa verið hér um hríð á vappi um Hólmavík nú undanfarið.
09.04.2011 18:36
Borgarnes og nágrenni heimsótt um helgina, í frekar leiðinlegu veðurfari, rok og rigning.
08.04.2011 19:50
Í gær var skrambi fallegur regnbogi upp af Kópnesinu í rokinu og rigningunni.
07.04.2011 05:58
Í morgun fór N1 inn í Kaupfélagið og þetta er mikil framför og líka það að það verður alltaf opið
Opið frá 09.00 til 22.00.
07.04.2011 05:47
Hreindýr til Vestfjarða skapa tekjur. Sauðfjárveikivarnanefnd Strandabyggðar er ekki til.
Í gær 6 apríl á fréttabiðlinum BB.IS var fjallað um nefnd sem er kölluð Sauðfjárveikivarnanefnd Strandabyggðar og nágrennis, vegna áhuga marga Vestfirðinga og annarra Íslendinga um að leifa lausagöngu Hreindýra inn á eignarlönd viðkomandi landeiganda á Vestfjörðum. Það skal tekið fram að Sauðfjárveikivarnanefnd Strandabyggðar er ekki til og hefur aldrei verið til. En þessi fyrrnefnda nefnd kvu vera þriggja manna nefnd úr þremur hreppum sem eru Strandabyggð og þar er Jón Stefánsson á Broddanesi formaður og með honum er Eiríkur Snæbjörnsson Stað Reykólasveit og Bassin Guðbrandur Sverrisson Bassastöðum fyrir Kaldrannaneshrepp. Þessir ágætu menn hljóta hafa komið saman til að funda um hugmyndir allmargra manna og kvenna sem vilja fá Hreindýr til Vestfjarða og þykjast vera drullu hræddir um að þessi fallegu dýr komið með smitsjúkdóma til Vestfjarða og þar og með smitað allt búfé sem þar er. Þessi nefnd sem er svolítið skringilega sett saman og af hverju veit ég ekki varla af þessum þrem hreppum sem þeir nefndarmenn koma frá? En að setja þetta svona upp í áróðurstíl gegn þeim aðilum sem vilja fá Hreindýr til Vestfjarða og þar af leiðandi að skapa talsverða fjármuni á svæðinu og þar af leiðandi hjá bændunum sjálfum skil ég engan vegin að þessir ágætu menn skuli vera á móti því að auka tekjur bænda og landeiganda sem aukabúgrein með því að leifa að Hreindýr komi sem allra fyrst til Vestfjarða. Þessi nefnd má ekki vera með hræðsluáróður gegn þessum dýrum svipað og er gert við ICESAVE ruglið - Jáið eða Neiið . Eitt að lokum sem þessi nefnd mætti taka til umfjöllunar og senda umfjöllina til ráðamanna þjóðarinnar sem er þessi, að þið og allir þeir og þær sem eiga fé á því svæði sem ónýta Sauðfjárvarnargirðingin liggur frá Tóftarvík í Steingrímsfirði og yfir Kollabúðarheiði og til Þorskafjarðar að sú girðing verði tekin og allt hreinsað á kostnað eiganda sinna sem er Íslenska ríkið Ísland, og að það verði gert eigi síðar en í sumar 2011, þessi girðing er öllum stórhættuleg og líka mönnum. Ps. Hreindýr til Vestfjarða sem allra fyrst.
06.04.2011 04:15
N1 söluskálin lokar kl 22.00 í kvöld fyrir fullt og allt.Frá og með morgundeginum flyst allt til KSH
06.04.2011 03:41
Við fjárhúsin hjá Birki olíufursta og bónda í Tröllatungu í dag.
05.04.2011 10:48
Gatnamót yfir Steinadalsheiði og að bóndabænum Steinadal. Jón Bergmann er á jeppanum.
05.04.2011 04:10
Þennan gamla torfbæ hef ég aldey skoðað áður en ek framhjá honum í það minnsta 10 sinnum í viku
05.04.2011 04:07
Voffi Ríkisstjórans er skrambi fallegur en hryllilega gelta gjamma leiðinlegur og er í öllum bílum
05.04.2011 04:05
Algjör sóðaskapur. Austan trésmiðjunar Höfða hefur úrgangs fiskmeti verið hent í fjöruborðið.
05.04.2011 03:59
Í dag náði ég betri myndum af særðu Álftinni, hún hefur greinilega verið bitin af mink,svöðusár
04.04.2011 05:53
Það er oftast nóg að gera hjá Drangi á Drangsnesi, treiler lestaður af sjávarmeti í morgun.
04.04.2011 05:48
Í morgun inn við Hrófberg var særð Álft sem sennilega hefur verið bitin af ref, blóðug á haus
Sú sem er til hægri er alblóðug á haus og bringu. Var í morgun í fjörunni við Hrófberg. Frekar óskírar myndir.
03.04.2011 03:23
Stórkostlegur dagur. Fór til Ófeigsfjarðar og á Eyrarhálsinn og að lokum upp á Háafell. Sól og sæla.
03.04.2011 03:20
Ljósmyndari góður hér í bæ sendi mér þessa mynd tekna frá Skeljavíkurhálsi í gærmorgun
03.04.2011 03:18
Fór síðla dags í smá rölt um Borgirnar í fallegu vorveðri, gerist vart betra.
03.04.2011 03:12
Í dag hefur staðir yfir löndun af áburði, yfir 1000 tonnum er landað úr Wilson Grimsbý .
02.04.2011 05:09
Sleðagarpar að leik efst í Arnkötludal um hádegisbilið í dag, + vegagerðar vefmyndavél.
02.04.2011 05:02
Göngurölt síðla dags í dag við Þiðriksvallavatn í flottu vor veðri.
01.04.2011 10:01
Nú nýlega hefur Sveitarstjórn Strandabyggðar ákveðið að úthluta lóðum við Suðurtún.
Framkvæmdir við gatnagerð hefst mánudaginn 4 apríl næstkomandi.
Framkvæmdir við gatnagerð hefst mánudaginn 4 apríl næstkomandi.