Færslur: 2011 Maí
11.05.2011 05:16
Grímsey ST 2 á Kræklingaveiðum út af Hellu í dag, sennilega verður þá sendur út gámur nr 3
11.05.2011 05:09
Ekki er nú nýja skiltið hjá þessari stofnun fagurt, og að við skulum vera komin undir Vesturland
10.05.2011 05:32
Aflaskipið Hlökk ST 66 var tekin á land í dag til árlegrar yfirferðar og tiltektar, glæsilegt skip.
10.05.2011 05:19
Lognið og sólarbirtan sem var hér á Ströndum í gær var alveg magnað og ólýsanlegt.
10.05.2011 05:09
Nú hefur Æðarkollan orpið tveimur eggjum á fallega skerinu hér við Hólmavík Sandskerið.
10.05.2011 02:40
Glaður kapteinn á Glað ST 10 kom sæll og mikið glaður að landi og landaði hátt í 500 kílóum.
09.05.2011 16:01
Eyborg ST 59 fer til veiða frá Hólmavíkurhöfn og út Steingrímsfjörðinn seinnipartinn í gæ
09.05.2011 15:55
Bátarnir Lundi ST 11 og Herja ST 166 koma að landi á Hólmavík í gær.
09.05.2011 05:15
Tildra. Þessa fallegu fugla hef ég aldey séð áður svo að ég muni, voru í Sandskerinu í dag.
09.05.2011 05:02
Landbúnaðar - og dreifbýlisnefnd Strandabyggðar, Sveitarstjórn Strandabyggðar, refir og minkar.
Nefndin fór yfir drög að reglum um refa-og minkaveiðar.
Nefnin leggur til að eftirtaldir veiðimenn verði ráðnir:
Indriði Aðalseinsson Mórilla/Ísafjarðará.
Marta vék af fundi.
Magnús Steingrímsson Selá/Grjótá
Marta mætir á fund.
Þorvaldur Garðar Helgason/Sigurður Marinó þorvaldsson Grjótá/Hrófá Ennisháls/Þambárvellir.
Jón og Magnús viku af fundi.
Ragnar Bragason/Torfi Halldórsson Hrófá/Ennisháls.
Magnús Sveinsson þambárvellir.
Jón og Magnús mæta á fund.
Lagt var til að greitt verði fyrið 15 hlaupadýr á ári, og að kvótaárið verði 1. september ár hvert, einnig leggur nefndin til að greni verði ekki yfirgefin fyrr enn að búið sé að vinna alla hvolpa og annað dýrið eða bæði dýrin.
Sveitastjóri ákveður þá daga hvenær verði tekið á móti skottum.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstórn Strandabyggðar 3 maí 2011.
Varðandi lið nr. 1 þá samþykkir sveitarstjórn Strandabyggðar að veiðiár hefjist 1. september ár hvert og að fyrir næsta veiðiár, 2011-2012, verði auglýst eftir minka- og refaveiðimönnum fyrir einstök svæði í Strandabyggð. Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að greitt verði fyrir sama fjölda hlaupadýra að hámarki eins og verið hefur. Sveitarstjórn samþykkir að bæta við reglur um refaveiðar að eingöngu verði greidd verðlaun fyrir hlaupadýr, en ekki akstur og tímakaup.
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir tillögu Landbúnaðar- og dreifbýlisnefndar um að gera skriflega samninga við minka- og refaveiðmenn sem gilda fram að næsta veiðiári, 1. september 2011.
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að fresta að taka afstöðu til liðar 2.
Fundargerð samþykkt að öðru leyti.
Fundi slitið kl. 20:13.
Jón Gísli Jónsson (sign)
Jón Jónsson (sign)
Ásta Þórisdóttir (sign)
Katla Kjartansdóttir (sign)
Bryndís Sveinsdóttir (sign)
Athugasemd til Sveitarstjórnar Strandabyggðar.
Landbúnaðar - og dreifbýlisnefnd Strandabyggðar fundaði um ráðningu refa og minkaveiðimanna í Strandabyggð. 2 maí 2011. Þar er settur á fót leikþáttur sem mætti halda að væri komið frá Barbabrellaranum Brelli furðulega svo að ég segi nú ekki meira um þessa furðulegu fundargerð, flestir víkja af fundi þegar er verið að fjalla um ráðningu veiðimannanna sem tengjast flestir þvers og kruss eins og flestir vita. Og bullið með Refakvótann 15 stk á mann (hlaupadýr ) og engin má yfirgefa grenið fyrr en nánast öllu er náð þó að mundi gera kolvitlaust veður, og hvenær á að ákveða skottadaginn og svo framvegis, þessi fundargerð virkar á mig sem argasta bull og léleg Barbabrella og sama er með samþykkt Sveitarstjórnar Strandabyggðar sem varðar þetta mál og tekur nú hattinn alveg af hausnum þegar á ekki einu sinni að greiða TÍMAKAUP OG KÍLÓMETRAGJALD 10 refi og bara verðlaun á skotið dýr. Maður hefur séð margt um ævina en þessar fundargerðar um þetta refa og minkamál er grátlega sorglega vitlausar, það er varla hægt að hafa þær vitlausari en þær eru.
Eitt að lokum um ráðningu refaskyttu á milli Selár og Grjótár skal það skýrt tekið fram sem Sveitarstjórn Strandabyggðar á að hafa kynt sér að jarðirnar Hrófberg og Víðivellir eru utan við þessa samþykkt Sveitarstjórnar Strandabyggðar og Landbúnaðar - og dreifbýlisnefndar Strandabyggðar, þessar fyrrgreindu nefndir geta engan vegin vaðið yfir eignarjarðir sem eru í einka eigu með þessum hætti, þó að ég viti það að sá sem var ráðin viti fyrri samþykktir jarðana tveggja og fyrri samþykktir Sveitarstjórna Strandabyggðar til margra ára. Ps. Ég á sjálfur tugi refaskotta fyrri ára og minkaskott vill einhver kaupa þau? Varla fæ ég krónu fyrir þau hjá Sveitarstjórn Strandabyggðar, í fyrradag 7 maí fór ég á sleða upp á Hólafjall og Staðarfjall yfirundir Þjóðbrókargil, á þessari stuttu leið sá ég SEX refi og fjöllin öll út sporuð eftir refi kvað þá bragðarefi sem virðast vera út um allt hvert sem litið er.
09.05.2011 04:52
Margar fjörur hér eru fullar af Rauðbrystingum sem bera nafnið með rentu og fljúga í rindlum
Takið eftir fuglunum sem eru þvert yfir myndina.
08.05.2011 10:11
Hólmavík og Steingrímsfjörðurinn skartaði sínu fegursta í vorsólarblíðunni í gær.
08.05.2011 04:56
Fór í dag í smá göngurölt kringum Þiðriksvallarvatn í frekar svölu veðri miðað við í gær.
08.05.2011 04:53
Inní þessu röri streyma miklir fjármunir allt árið um kring, og við borgum herlegheitin
08.05.2011 04:39
Nýr bátur er væntanlegur til Kaldrannaneshrepps á Ströndum innan fárra daga, Fönix ST 5
7694. Fönix ST 5, nýr bátur af gerðinni Sómi 797, frá Bláfelli ehf, í húsakynnum fyrirtækisins á Ásbrú © myndir Emil Páll, 8. maí 2011.
Myndir Emil Páll http://emilpall.123.is/