Færslur: 2011 Ágúst
18.08.2011 20:33
Skildi þetta vera Jólarjúpurnar hjá frænda G.J? sem voru á vappi fyrir utan sumar höllina í dag
18.08.2011 20:29
Í gærkveldi varð umferðaróhapp á milli Bakka og Framnes, erlent ferðafólk á ferð, ekkert slys
17.08.2011 22:47
Meira af Makrílveiðum, nú eru menn farnir að kanna og prufa annan veiðimáta á þessu dýri.
17.08.2011 22:44
AFTURFÖR/nítt. Ef einhver ætlar að hitta Sveitarstjórann þá verður maður að panta viðtalstíma
Það er víst nóg að þurfa panta viðtalstíma hjá doxa sem er með komugjaldi en hvort maður þurfi að ef til vill greiða Sveitarstjórakomugjald til sveitasjóðs svo að Sveitarstjórn komist oftar í sumarfrí. En af öllu gríni sleppt er mikil afturför að þurfa panta viðtalstíma hjá Sveitarstjóranum, en góðu hálsar það mun ég aldrei gera, en þetta er svipað og með girðingarmúrinn - dragið þessa vitleysu báðar tvær til baka,annað er klikkun.
17.08.2011 22:42
Hermann Ingimundarson eins og fleiri, hefur undanfarið veitt talsvert af Makríl í Hveravíkinni
17.08.2011 22:38
Í dag var verið að merkja bílastæði á nílagða malbikinu við Kaupfélagið hér á Hólmavík.
17.08.2011 22:34
Þessi farartæki voru hjá torfærukappanum í dag, skrautlegur ferðamáti og svolítið frumlegur
16.08.2011 20:21
Í dag hitti ég í fyrsta sinn nýja eigandann að Felli í Kollafirði sem kemur alla leið frá Hollandi.
16.08.2011 20:18
Torfærukeppni fer fram á Blönduósi 20 ágúst næstkomandi kl 13.00. Mikið fjör og mikið gaman.
20 Ágúst næstkomandi kl 13.00 heldur Formula Offroad Club fjórðu umferð Íslandsmótsins í Torfæru. Þessi keppni sem fram átti að fara síðastliðinn laugardag var frestað og var ákvðið að færa hana til 20 Ágúst og verður keppt á Blönduósi að þessu sinni en síðast var keppt þar 2009 þar sem Leó Viðar Björnsson sigraði en hann er einmitt nýr formaður Formula Offroad Club. Nánar hér á http://motor-sport.is
16.08.2011 20:13
Haustið er skuggalega mikið komið á Strandasvæðinu, þungbúið og drungalegt veðurfar - fúlt
15.08.2011 21:44
Nokkrar myndir frá grönnum okkar í vestrinu frá því í gær. Frá Þorskafirði, Bjarkarlundi og víðar
15.08.2011 21:36
Ufsinn dansaði um allan sjó 12 ágúst á Sveinbjarnargrunni í Húnaflóanum. Myndir Röfn Friðriks
Góðar þakkir fyrir myndirnar Röfn.
14.08.2011 21:26
Flottir mótorfákar á ferð um malbikaða Vestfirði þar að segja þar sem malbik er til staðar
14.08.2011 21:23
Þörungar verksmiðjan á Reykhólum í dag.
Þetta eru skrítin sjávarfarartæki sem kvu vera þangsláttuvélar Þörungar verksmiðjunnar
14.08.2011 21:11
Við sjávarsíðuna í Reykhólasveit í dag. Bátar- Staðarhöfn á Reykjanesi og Reykhólahöfn.
13.08.2011 21:30
Í dag. Víðidalsá - reiðhöll Viktors og Steina og Hnitbjörg auðvitað á Ströndunum fögru.
12.08.2011 21:26
Í morgun hitti ég hljómsveitina Prins Póló á Laugarhóli, spiluðu í gær á Cafe Riis hér á Hólmavík.
Flott sveit.
12.08.2011 20:45
Síðla dags í dag fór ég út á bryggju og þar var Ingimundur Pálsson að veiða Makríl og gekk bara vel
Hann Mundi veiddi í fullan innkaupapoka á korteri, sjórinn iðar af líflegu lífi sem er bara gott.
Síðustjóri á Makrílveiðum í dag, Makríll búin að bíta á.
Síðustjóri að landa Makríl með miklum tilþrifum eða þannig. Myndir Sigurbjörn Jónsson.
11.08.2011 22:44
Skrítin vinnubrögð Byggingar - umferðar - og skipulagsnefndar og Sveitarstjórnar Strandabyggðar
Kópnesbraut 3A.
Nú ætlar síðustjóri ekki að tjá sig (mikið) meira um þetta kolklikkaða skotbyrgja og forljóta Berlínarmúr sem verður tafarlaust að fara eins og gamli Berlínarmúrinn þegar hann féll og síðar var rifin í tætlur. Ég er 100% viss um það að allir þeir sem eiga heima við Kópnesbrautina vilja þetta skrípi verði rifið áður en snjóa tekur að falla til jörðu, ef þetta verður látið standa svona þá má búast við því og nokkuð öruggt að gatan mun vera ófær flestum vélknúnum farartækjum nema þá vélsleðum og einstaka ofurfjallabílum. Ps. Ég hvet íbúana við Kópnesbraut á Hólmavík og líka stjórnendur Strandabyggðar að þessi fyrrnefndi vanskapningur og sá ljótasti sem hefur sést á Vestfjörðum þó víðar væri leitað verði fjærlæður og að allir skuli sitja við sama borð hvað byggingarmál varðar hverju nafni sem þau nefnast.
Fundargerð Byggingar-, umferðar- og skipulagsnefndar, dags. 4. ágúst 2011 .. 4. Girðing við Kópnesbraut 3A, dags. 2. ágúst 2011... Nefndin vill að leitað verði eftir skriflegum umsögnum nágranna um byggingu girðingarinnar og tekur í framhaldi af því ákvörðun um málið.