Færslur: 2011 Nóvember
16.11.2011 19:57
Vegagerð fyrir botni Steingrímsfjarðar potast smá áfram, það er verið að gera klárt fyrir brúargerð
16.11.2011 19:55
Lognið og uppgufunin og auðvitað raki og hitinn sem er og hefur verið hér myndaði flotta þoku
16.11.2011 19:54
Í morgun sem oftar stóð Hveravík undir nafni, heitavatnsgufan myndaði flott ský eins og sést
16.11.2011 19:52
Fiskveiðibáturinn Ólafur Jóhannsson ST 45 var að sigla til hafnar þegar Canon kallin átti leið hjá
15.11.2011 21:32
Bjarnarfjörður í morgun, Laugarhóll - Klúka - og Framnes í rauðu umhverfi.
14.11.2011 21:21
Hólmavíkurblíðan og auðvitað Strandablíðan klikka sjaldan, logn um allar sjávarsveitir og víðar
14.11.2011 21:14
Ég vil minna á stofnfund áhugamanna um Hreindýr til Vestfjarða verður 3 desember á Hólmavík.
Fréttatilkynning.
Félag áhugafólks um hreindýr á Vestfirði.
Laugardaginn 3 desember verða stofnuð samtök áhugafólks um "Hreindýr á Vestfirði" . Tilgangur samtakanna er að beita sér fyrir því að gerðar verði rannsóknir á heilbrigði hreindýranna, það er að segja hvort hætta sé á að þau geti smitað sauðfé af búfjársjúkdómum. Einnig að gerð verði rannsókn á gróðurfari á Vestfjörðum í þeim tilgangi að athuga hvort nægjanlegt æti sé fyrir dýrin. Félagsmenn geta þeir orðið sem eiga lögheimili á Vestfjörðum, eiga þar fasteignir eða jarðir. Þeir sem vilja gerast félagsmenn í samtökunum skrái sig sem allra fyrst á hreindyr@skotvis.is Á stofnfundi samtakanna verður kosin stjórn þeirra, skipað í starfshópa og lög samtakanna rædd og síðan borin upp til samþykktar. Fundurinn verður haldinn á Hólmavík 3 desember næstkomandi. Undirbúningsnefndin.
Ps. Kíkið á viðtalið við Strandamanninn Magnús Ólafs Hansson sem var í Kastljósinu 14 nóvember http://www.ruv.is/sarpurinn/kastljos/1411201113.11.2011 21:26
Logn og aftur logn á Ströndum en þokuskömmin er af og til að laumast hér og þar án heimildar
12.11.2011 20:41
Í gær bættist í smábátaflota Hólmavíkur þegar Pollux SH 40 verður Frigg ST 69 kom til Hólmavíkur
Þennan
bát þekkja allmargir Strandamenn hann var í eigu Guðmundar Ragnars fátæka á
Drangsnesi og hét þá Kristbjörg. Þannig að hann er nánast aftur komin heim,
allavega heim til Hólmavíkur. Ég vil óska eigendum til hamingju með þetta
flotta Strandafley.
11.11.2011 21:57
Rjúpnavertíðin eins og hún var hér árum áður er horfin, en þessar rjúpur hafa verið hér afar lengi
11.11.2011 21:53
Í morgun fór ég til hafnarverktakans Stefáns í smá morgunkaffi og myndaði hann og vinnumanninn
Smá viðbót við þessar myndir. Fyrir 22 árum vann ég með Stefáni verktaka út í Grímsey á Skjálfanda í flugvallargerð - frábær tími. Með honum á myndinni eru frá vinstri Víkingur Viggósson Brynjólfssonar frá Broddadalsá á Ströndum, Stefá verktaki þá frá Sauðárkrók, Jósteinn Guðmundsson Hólmavík og Árni Hansen frá Sauðárkrók.
11.11.2011 21:45
Þessar myndir voru mér sendar frá Bjarnarfirðinum, hvaða fólk er þetta, svör óskast
10.11.2011 21:45
Í morgun við sólarupprás fyrir ofan Grænanes í Steingrímsfirði og fjörðurinn rennisléttur
10.11.2011 21:43
Einn síðuskoðenda minna bað um þessar myndir fyrir föður sinn sem er ættaður frá þessum stað
10.11.2011 21:40
Jón Bjarnason Landbúnaðar og Sjávarútvegsráðherra hélt fund á Hólmavík í kvöld ásamt fleirum
09.11.2011 20:11
Nokkrar tjarnir sunnan Hólmavíkur rétt þegar myrkur er að skella á. Drungalegar myndir.
09.11.2011 20:09
Gamalt og væntanlega ónýtt en litli burrinn lífgar það gamla vonandi við aftur af einhverjum hluta
09.11.2011 20:02
Löndun í fullum gangi á Hólmavíkurbryggjunni í dag og fyrr í dag kom og fór Grímsey ST 2
09.11.2011 19:56
Magnaðar myndir sem ég rakst á, á veraldarvefnum af YE 139 ELIZABETH
08.11.2011 19:18
Gamli - miðlungs og nýi tíminn í Bjarnarfirðinum.Bakki - húsbyggjandinn - snikkarinn og Laugarhóll
07.11.2011 18:06
Vegurinn fyrir utan Heydalsána er algjört ógeð og sömuleiðis í Kollafirðinum og líka á Hólmavík
07.11.2011 18:02
Skítaveður hefur verið á mínum vegarslóðum í dag, slagveður og bölvaður vindgangur.
07.11.2011 18:00
Í morgun var flughálka að hluta til í Bjarnarfirðinum á milli Skarðs og Laugarhóls.
Við Skarðsklif.