Færslur: 2012 Febrúar
16.02.2012 22:40
Strandahestar í Húsadal í júní 2010, Viktor - Rúna Stína og Kristján í bongóblíðu í fögrum dal.
16.02.2012 22:39
Gamall braggi í Heiðarbæ með fagra Háafellið í bakgrunni á haustdögum 2011.
16.02.2012 22:33
Í hvert sinn sem maður sér þennan stórbrotna mann sést gróft og hrjóstrugt landslag, þó ekki hér
16.02.2012 22:25
Myndatökur og bloggfærslur verða með minna móti um sinn vegna handabrots síðustjóra.
Ferlega vont og pirrandi.
15.02.2012 18:07
Myndir Þorkell Jóhannsson myndasmiður poppari kennari eða bara Gilli Soffíu.
Þessi vörubílafloti var í gatnagerð í götum Hólmavíkur 1978. Bílanúmerin sem eru þessi frá vinstri - E 320 - T 350 - T 450 - A 1940 - R 14.388 og síðustjórinn T 216. Menn á gangi frá vinstri Ingimundur Ingimundarsson Svanshóli, Guðfinnur Finnbogason Miðhúsum og Vígþór Jörundsson þá skólastjóri Hólmavík, Hellu.
T 71 og eigandinn Vilhjálmur Sigurðsson Hólmavík maðurinn í mið er að öllum líkindum Vígþór Jörundsson frá Hellu og Jón Kr. Kristinsson fyrrum sveitastjóri Hólmavík.
Götur steyptar á Hólmavík 1978. Frá vinstri sem ég tel mig þekkja, síðustjóri þá með hárið, Árni sennilega Jóhannsson Balamaður þá verkstóri í gatnagerð á Hólmavík, Ragnar Valdimarsson Hólmavík, Jón Kr. Kristinsson þá sveitarstjóri. Hægramegin á myndinni má þekkja Ólaf Björn Halldórsson Hólmavík og sá ljóshærði með brosið sýnist mér vera Karl Þór Björnsson Smáhömrum.
Myndir Þorkell Jóhannsson myndasmiður poppari kennari eða bara Gilli Soffíu.
15.02.2012 18:00
Myndir úr myndasafni Þórarins Reykdals fyrrverandi orkuveitustjóra hér á Hólmavík.
15.02.2012 17:59
Grímsey ST 2 frá Drangsnesi er með fallegri bátum af eldrigerðinni sem enn eru í notkun á Íslandi
14.02.2012 22:41
Bekkjarmynd af flottum unglingum við grunnskóla Hólmavíkur ásamt kennara á síðustu öldinni
Mynd Þorkell Jóhannsson myndasmiður poppari kennari eða bara Gilli Soffíu. Skemmtileg mynd.
14.02.2012 22:40
Þessi er bara skrambi flottur þessi steingerfingur með stóranefið í Sandskerinu hér við Hólmavíkina.
12.02.2012 18:15
Smá sleðaskrepp upp í Vatnadalinn í dag, frekar var vindasamt á fjöllum í dag.
11.02.2012 17:58
Kleppustaðir - Víðivellir í Staðardal og Bassastaðir við Steingrímsfjörð í dag.
10.02.2012 21:29
GAMALT. Frábærar myndir sem teknar eru að haustitil í Kálfanesrétt, annað hvort 1975 eða 1976
Myndasmiðurinn er engin annar en Þorkell Jóhannsson Guðmundssonar eða bara Gilli Soffíu fyrrum stórpoppari í sveit Þyrlaflokksins sem var starfandi hér á Hólmavík um árabilaskeið. Meira væntanlegt síðar.
10.02.2012 21:28
Myndir teknar við Fúlavík við Broddanesskóla í snjókomunni í dag, í bakgrunni er Broddadalsá
10.02.2012 21:26
Þetta kallast alvörubúskapur hjá stórbændunum Jóni Stefánssyni og Ernu Fossdal á Broddanesi
10.02.2012 21:26
Mynd tekin á ferð upp Ennishálsinn í gær þar sést Kollafjörður - Steingrímsfjörður + Strandir
09.02.2012 20:36
Flottur er Víkurdrangurinn sem er utanvert við Guðlaugsvík við Hrútafjörð.
09.02.2012 20:34
Í dag. Víkurbæirnir í Skálholtsvík og Guðlaugsvík við Hrútafjörð.
09.02.2012 20:29
Fór síðla dags í dag inn í Bitrufjörð og tók nokkrar myndir af jörðum og fasteignum á þeim.
09.02.2012 20:27
Í dag. Flottir klettadrangar og kall með grashúfu sunnanvert við Skriðnesenni.
08.02.2012 21:35
Fallnar hetjur. Þessar stórgóðu myndir fékk ég sendar í dag og á von á fleirum á næstu dögum.
Þessar myndir eru teknar 1977.
08.02.2012 21:28
Eru þetta mælingamenn á vegum Vegagerðarinnar eða hvað, eða eru þeir að mæla brúarsmiðina.
08.02.2012 21:05
Í gær lentu ferðalangar að sunnan í hálkuhrakningum á Bassastaðarhálsinum,dekkjaloftið of mikið
Heimildir herma að þeir hefðu hleypt töluvert úr dekkjunum í gær en samt var um 30 punda þrístingur í dekkjunum þegar var mælt í þeim í dag. En þessi bíll er vel dekkaður en hámarks loftþrístingur á svona þungum bíl í hálku eins og var í gær er 15 pund - hámark 20 ef dekkin eru mjúk.