Færslur: 2012 Maí

22.05.2012 21:11

Verslunin Erllingsen verður með fjórhjól til sýningar á mótorkrossbrautinni 26 maí næstkomandi



Outlander T3 býður upp á einstaka samsetningu af valmöguleikum fyrir bæði á og utan vega.
Can-Am Outlander T3 er EC samþykkt sem götuskráð dráttarvél. Þar sem að það er framleitt sem Can-Am fjórhjól þá hefur það alla þá eiginleika sem þeim fylgja ásamt breytingunum sem dráttarvél.
Með öðrum orðum sterkur vinnuþjarkur í sveitina.

Verður til sýningar við mótorkrossbrautina hér á Hólmavík 26 maí  á milli kl 13.00 til 17.00

21.05.2012 23:10

Hef nú séð margt vitlaust um ævina, Strandabyggð vill byggja hús/íbúðir á barnaleikvellinum, klikkun



Þetta kemur fram í fundarsamþykkt í Umhverfis- og skipulagsnefnd 14. maí 2012, ég bara spyr er fólkið í nefndinni ekki með öllum mjalla, þetta er jafn vitlaust og að ganga inn í Evrópusambandið með buxurnar á hælunum . Þetta er leikvöllur fyrir börnin sem eiga heima hér í Höfðahverfinu og marga aðra sem hingað koma, bygging á þessum stað nei takk.

21.05.2012 22:07

Út við ároddann við Víðidalsána í morgun.

















Ég er skrambi hræddur um það að þetta æðarhreiður sem er nánast í flæðarmálinu fari á haf út ef gerir bara smá vind.

20.05.2012 19:25

Þiðriksvallavatn 19 maí 2012.







                                               Nánar hér á   >  http://nonni.123.is

18.05.2012 20:12

Á þurru landi.