Færslur: 2012 Október
17.10.2012 11:33
Svarthvítt frumvarp um búfjárbeit
Neikvæðar aukaverkanir
Fáum blandast hugur um mikilvægi þess að "efla landvernd og sjálfbæra
búfjárbeit". Hins vegar er hætt við að sú aðferð sem lögð er til í
frumvarpinu stuðli síður en svo að "sjálfbærri búfjárbeit". Í þessu
sambandi er óhjákvæmilegt að taka tillit til ólíkrar stöðu landshlutanna.
Þannig myndi algjört lausagöngubann líklega leiða til þess að sauðfjárrækt
legðist að mestu leyti af á Vestfjörðum, víða á Austurlandi og á fleiri svæðum
þar sem sauðfé er einmitt beitt í mestri sátt við náttúruna og þar sem
sauðfjárrækt vegur þyngst í atvinnusköpun og viðhaldi byggðar. Um leið myndi sú
kjötframleiðsla sem eftir væri færast nær því að vera verksmiðjubúskapur með
öllum þeim neikvæðu aukaverkunum sem honum fylgja, svo sem aukinni
áburðarnotkun og hækkandi hlutfalli korns í fóðri á kostnað gróffóðurs.
Vestfirðir sem dæmi
Tökum Vestfirði sem dæmi. Þar er byggð mjög dreifð og gróður- og
jarðvegseyðing í lágmarki, ef nokkur. Búin er flest lítil og rúmt í högum, enda
hefur bæði jörðum og sauðfé fækkað til muna á síðustu árum og áratugum.
Ræktunarland er víðast af skornum skammti og því byggir afkoma búanna á
skynsamlegri nýtingu þess mikla beitilands sem til staðar er. Þetta beitiland
tilheyrir í mörgum tilvikum öðrum jörðum, sem komnar eru í eyði. Nýting þeirra
kallar á gott samkomulag bænda og annarra jarðeigenda, en það er út af fyrir sig
annað mál. Aðalmálið er að landrými á svæðinu er yfirdrifið þegar á heildina er
litið og fátt sem bendir til að það sé ofnýtt. Þrátt fyrir að þarna fáist hvað
mestar afurðir eftir hvern grip eiga búin mjög erfitt með að mæta auknum
rekstrarkostnaði, smæðar sinnar vegna. Ófrávíkjanlegar lagakröfur um
uppsetningu girðinga útiloka líklega áframhaldandi rekstur margra þeirra.
Lækningin verri en sjúkdómurinn?
Sá fjárhagslegi baggi sem krafan um girðingar myndi binda vestfirskum búum og
öðrum búum af svipuðu tagi, er aðeins hluti ástæðunnar fyrir því að "sjálfbærasta
búfjárbeitin" myndi líklega leggjast af að mestu. Þau bú sem hefðu
fjárhagslega burði til að setja upp girðingar myndu óhjákvæmilega nýta mun
minna land til beitar eftir breytinguna, sem þýðir einfaldlega að gengið yrði
nær þeim hluta landsins en áður. Hér þarf einnig að taka umhverfisleg áhrif
girðinganna sjálfra með í reikninginn. Sums staðar hagar reyndar þannig til að
uppsetning girðinga er óframkvæmanleg, en annars staðar yrði gróðureyðing og landrask vegna
framkvæmdanna sjálfra vafalítið langt umfram það sem sjálf beitin getur
valdið. Þetta á í það minnsta við þar sem rásir eru ristar í ósnortið land til
að búa til gott undirlag fyrir girðingar, eins og nú má víða sjá í sveitum landsins.
Svolítill útúrdúr
Reyndar er hægt að hugsa sér einfalda lausn hvað Vestfirði varðar. Þetta er
bara spurning um þann skilning sem lagður er í orðin "innan girðingar".
Það vill nefnilega svo vel til að Vestfirðir eru lokaðir frá öðrum landshlutum
með varnargirðingu milli Gilsfjarðar og Bitrufjarðar. Kannski er þá hægt að
líta á að öllu búfé á Vestfjörðum sé beitt "innan" þeirrar girðingar. Ég
geri þó frekar ráð fyrir að þessi skilningur þyki fela i í sér útúrsnúning á
orðum frumvarpsins.
111. meðferð á landi og búfé!
Sums staðar á landinu eru svæði þar sem varla er eftir
stingandi strá, en þar sem búfé er engu að síður beitt. Sjálfur hef
ég t.d. bæði séð kindur á beit á Mývatnsöræfum og uppi undir Veiðivötnum,
þrátt fyrir að þar væri varla meira en ein gróin þúfa eða einn grasbrúskur.
Slíka meðferð á landi og búfé hefði átt að stöðva fyrir löngu. Reyndar gafst
kjörið tækifæri til þess fyrir svo sem 30 árum þegar ljóst var að draga þyrfti
úr lambakjötsframleiðslunni. En í stað þess að skoða í alvöru hvar væri forsvaranlegt
að halda fé til beitar og hvar ekki, var farin sú leið að beita flötum
niðurskurði og gera í engu upp á milli þeirra sem beittu fé sínu í sátt við
náttúruna og hinna sem níddust á landinu. Þarna brást menn kjark, ekki bara
stjórnmálamenn, heldur einnig og ekki síður forystu bændahreyfingarinnar.
Betri tillaga:
Með hliðsjón af framanskráðu legg ég til að þingmennirnir dragi frumvarp sitt
til baka og leggi þess í stað fram tillögu til þingsályktunar um gerð
markvissrar áætlunar um nýtingu beitilands á Íslandi, þar sem
raunverulegt tillit væri tekið til hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Í
slíkri áætlun þarf að sjálfsögðu að taka áhrif allra grasbíta með í
reikninginn. Líklegt má telja að í framhaldinu yrðu lögð fram frumvörp sem gera
það mögulegt að banna alfarið beit á viðkvæmum svæðum og beita sektum ef út af
er brugðið. Þarna hlýtur krafan um upprunamerkingu búfjárafurða einnig að koma
við sögu. Það er hreinlega kjánalegt að neytendum skuli ekki gert kleift að sjá
hvort lambinu sem þeir hyggjast leggja sér til munns hafi verið beitt á
Hornstrandir eða Mývatnsöræfi.
Til vara
Lítist þingmönnunum ekki á að draga frumvarp sitt til baka, legg ég til að þeir
striki út úr því allar tilvísanir í sjálfbærni. Því hugtaki er gáleysislega
beitt í frumvarpinu.
Lokaorð í lit
Ég fagna umræðunni um nýtingu beitilands. Það er löngu kominn tími til að taka
alvarlega til í þeim málum. En sé horft á viðfangsefnið í svarthvítu er hætt
við að lausnin verði jafnvel verri en vandamálið.
Höfundur er Stefá Gíslason fyrrverandi Sveitarstjóri á Ströndum
Strandamaður og útivistarmaður
Margskonar fræðimaður um náttúru Íslands og fleira.
http://stefangisla.com/2012/10/16/svarthvitt-frumvarp-um-bufjarbeit/
15.10.2012 20:43
Frábært útivistarveður í dag. Rölti mér upp um allt Kálfanesfjall og myndaði grimmt til allra átta.
15.10.2012 20:27
Kosningarplaggött fyrir nokkrum áratugum síðan og vel það, skildi þau virka í pólitíkinni í dag?
15.10.2012 20:24
Í tilefni dagsins 15 október fór ég í könnunarleiðangur upp um fjöll og firnindi - sá bara 9 stk.
15.10.2012 20:22
Göngu Hrólfarnir voru fáir í dag - kynjaskipting var þó kór rétt.
14.10.2012 19:12
Það er talsvert af Skógarþröstum hér við fjörðinn núna með meira móti miðað við árstíma.
13.10.2012 20:00
Byggingarvertakinn Hornsteinar hér á Hólmavík er að hefja byggingu á þremur íbúðum við Miðtún
13.10.2012 00:09
Vegagerðin við botn Steingrímsfjarðar gengur frekar hægt en potar samt áfram í lágadrifinu.
13.10.2012 00:09
Söngskemmtun í gamla bragganum á Hólmavík 13 október 2012 kl 20.00.-
|
Fyrri umferð |
|||||||
Röð |
Keppendur |
Lag |
Upphaflegur flytjandi |
Fyrirtæki |
||||
|
1 |
Andri Ívarsson |
Sultans of Swing |
Dire Straits |
Tónskólinn á Hólmavík |
|||
|
2 |
Hildur Emilsdóttir og Aðalbjörg Guðbrandsdóttir |
Danslagið |
Dúmbó og Steini |
HVE og KSH |
|||
|
3 |
Ingibjörg Emilsdóttir og stuðningsfulltrúarnir Kolbrún, Agnes, Hrafnhildur og Sóley |
Wannabe |
Spice Girls |
Grunnskólinn á Hólmavík |
|||
|
4 |
Agnes Jónsdóttir |
Skyscraper |
Demi Lovato |
Ferðaþjónustan Kirkjuból |
|||
|
5 |
Barbara Ósk Guðbjartsdóttir |
Bound To You |
Christina Aquilera |
Félag sauðfjárbænda í uppsveitum Kollafjarðar Group |
|||
|
6 |
Salbjörg Engilbertsdóttir |
Vegir liggja til allra átta |
Ellý Vilhjálms |
Skrifstofa Strandabyggðar |
|||
|
7 |
Jón Halldórsson |
Vökunótt |
Jón Halldórsson |
Jón Halldórsson |
|||
Seinni umferð |
||||||||
Röð |
Keppendur |
Lag |
Upphaflegur flytjandi |
|||||
1 |
Andri Ívarsson |
Piano man |
Billy Joel |
Tónskólinn á Hólmavík |
||||
2 |
Hildur Emilsdóttir og Aðalbjörg Guðbrandsdóttir |
O O O O Opið á gamlársdag |
Maggi Mix |
HVE og KSH |
||||
3 |
Ingibjörg Emilsdóttir |
Poker Face |
Lady Ga Ga |
Grunnskólinn á Hólmavík |
||||
4 |
Agnes Jónsdóttir |
Nobody´s Wife |
Anouk |
Ferðaþjónustan Kirkjuból |
||||
5 |
Barbara Ósk Guðbjartsdóttir |
Crno I Belo |
Kaliope |
Félag sauðfjárbænda í uppsveitum Kollafjarðar Group |
||||
6 |
Salbjörg Engilbertsdóttir |
Fire |
Pointer Sisters |
Skrifstofa Strandabyggð |
||||
7 |
Jón Halldórsson |
Hamingjudagur |
Jón Halldórsson |
Jón Halldórsson |
||||
Krossið fyrir fram nöfn tveggja bestu flytjendanna |
Skemmtilegasta atriðið/Flytjandinn |
|
||||||
Fyrri umferð |
||||||||
Röð |
Keppendur |
Lag |
Upphaflegur flytjandi |
Fyrirtæki |
||||
|
1 |
Andri Ívarsson |
Sultans of Swing |
Dire Straits |
Tónskólinn á Hólmavík |
|||
|
2 |
Hildur Emilsdóttir og Aðalbjörg Guðbrandsdóttir |
Danslagið |
Dúmbó og Steini |
HVE og KSH |
|||
|
3 |
Ingibjörg Emilsdóttir og stuðningsfulltrúarnir Kolbrún, Agnes, Hrafnhildur og Sóley |
Wannabe |
Spice Girls |
Grunnskólinn á Hólmavík |
|||
|
4 |
Agnes Jónsdóttir |
Skyscraper |
Demi Lovato |
Ferðaþjónustan Kirkjuból |
|||
|
5 |
Barbara Ósk Guðbjartsdóttir |
Bound To You |
Christina Aquilera |
Félag sauðfjárbænda í uppsveitum Kollafjarðar Group |
|||
|
6 |
Salbjörg Engilbertsdóttir |
Vegir liggja til allra átta |
Ellý Vilhjálms |
Skrifstofa Strandabyggðar |
|||
|
7 |
Jón Halldórsson |
Vökunótt |
Jón Halldórsson |
Jón Halldórsson |
|||
Seinni umferð |
||||||||
Röð |
Keppendur |
Lag |
Upphaflegur flytjandi |
|||||
1 |
Andri Ívarsson |
Piano man |
Billy Joel |
Tónskólinn á Hólmavík |
||||
2 |
Hildur Emilsdóttir og Aðalbjörg Guðbrandsdóttir |
O O O O Opið á gamlársdag |
Maggi Mix |
HVE og KSH |
||||
3 |
Ingibjörg Emilsdóttir |
Poker Face |
Lady Ga Ga |
Grunnskólinn á Hólmavík |
||||
4 |
Agnes Jónsdóttir |
Nobody´s Wife |
Anouk |
Ferðaþjónustan Kirkjuból |
||||
5 |
Barbara Ósk Guðbjartsdóttir |
Crno I Belo |
Kaliope |
Félag sauðfjárbænda í uppsveitum Kollafjarðar Group |
||||
6 |
Salbjörg Engilbertsdóttir |
Fire |
Pointer Sisters |
Skrifstofa Strandabyggð |
||||
7 |
Jón Halldórsson |
Hamingjudagur |
Jón Halldórsson |
Jón Halldórsson |
12.10.2012 23:29
Stórkostleg náttúrusmíð er á Strandarsvæðinu upp af Nesströndinni við Bæjarskarð
11.10.2012 21:56
Í dag var settur í jörðina olíu og bensíntankurinn við níu Olís söluna sem er og verður á Skeiðinu
11.10.2012 21:50
Enn er þessi gata drullu malar holu vegur enn til staðar hér á Hólmavík og brátt er árið 2013 komið
11.10.2012 21:43
Heldrafólkið hér á Hólmavík er til fyrirmyndar með allar þessar útivistargöngur - flott hjá þeim
11.10.2012 21:38
Hvað eiginlega hefur skeð þarna, var landið of blautt fyrir drulluna, hreppararnir redda þessu
10.10.2012 22:17
Góðir frændur mínir úr Reykhólasveitinni við kirkjugarðinn á Stað í Staðardal 1994.
09.10.2012 22:32
Hvað segja síðuskoðendur við þessu plaggi? Landsbyggðarþingmenn munu nánast hverfa - viljið það?
09.10.2012 22:16
Sá þessar stórkostlegu (myndir) mannvirki á veraldarvefnum í óbyggðum Perú, alveg ótrúlegt
08.10.2012 22:54
Myndir teknar upp við Borgavörðuna þar sem útsýnið er mikið.
08.10.2012 22:47
Þrír kjaftaskar upp við Hrófbergsvatn fyrir mörgum árum síðan.
08.10.2012 22:42
Hérna átti Gísli Gíslason á Uppsölum í Selárdal heima, myndir teknar í september 1992.
08.10.2012 22:39
Höfðingi og mikill hugsjónamaður var hann Magnús Ólafsson Vesturbotni, mynd tekin sept 92
08.10.2012 22:34
Þessar myndir fékk ég frá Strandamanninum og ekki síst víkingnum Heimi Berg Gíslasyni
Myndir teknar í Brasilíu – fæ vonandi fleiri myndir frá kappanum.