Færslur: 2012 Nóvember
30.11.2012 10:31
Þessi fjallgarður er með þeim fallegri ef ekki fallegasti fjallgarður Vestfjarða austur af Lambatind
30.11.2012 00:54
Það væri gaman að vita það hjá Sveitastjórn Strandabyggðar hvað á að gera við tankinn og taflhúsið
Eins og fram kemur í fundargerð Strandabyggðar 13 nóvember 2012 að tillaga sveitastjórnarmanns samþykktir sem eru þá hverjar . í lið 13. Erindi frá frá Jóni Jónssyni, sveitarstjórnarmanni, ákvarðanir varðandi gamla vatnstankinn á Hólmavík, dagsett 08/11/2012
Sveitarstjórn samþykkir erindið. Nánar er um málefnið að finna hér -- http://strandabyggd.is/stjornsysla/sveitastjorn/Sveitarstjorn_Strandabyggdar_1202_-_13_november_2012/
29.11.2012 22:44
Við Kópnesbrautina í dag samkvæmt beiðni sumardvalagests sem er frá Hólmavík.
27.11.2012 17:37
Nokkrar Hólmavíkurmyndir rétt um það leiti þegar rökkrið var að skella á nú áðan,byttan er stutt
24.11.2012 17:48
Myndirnar teknar á heimaslóðum mínum í dag,eins og sést á myndunum fer ekki mikið fyrir snjónum
24.11.2012 17:44
Vegagerðin innst inn í Steingrímsfirðinum hefur tekið þó nokkurn kipp innávið sem lofar bara góðu
22.11.2012 23:51
Þetta verður sennilega fyrsta og síðasta sinn á mínum veiðiferli sem ég skít ekki svo sem 1 rjúpu
En fyrir 28 árum síðan þegar Vestfirðir fylltust af Grænlenskri rjúpu eftir eitilharðan bil sem stóð í góða viku en birti upp 27 nóvember 1984 þá fékk ég á innan við klukkutíma 127 stk við Víðivelli í Staðardal og dagin eftir 72 rjúpur upp af Stakkamýrinni og í nokkra daga eftir þetta um 50 stk á dag. Og afraksturinn þessa rjúpnavertíð 1984 voru 1176 stk sem gaf ágætis búbót í aðra hönd, en nú er þetta allt búið að sinni vegna stjórnvalda sem skilja ekki eitt eða neitt út á hvað lífríkið gengur út á.
22.11.2012 23:18
Er einelti stundað í minni heimabyggð - svarið er því nú andskotans verr stórt JÁ.
Nú þegar þetta er ritað er fyrirlestur um einelti sem fer fram í félagsheimilinu hér á Hólmavík og byrjaði hann kl 16.30 í dag 22 nóvember 2012.
Er einelti hér á Ströndum og þar á með á Hólmavík er svarið hrópandi stórt JÁ.Hverjir stunda þá einelti hér á Hólmavík? Og hverjir geta gert svona óþveraskap við samborgarasýna. Eineltishátturinn er oftar en ekki stundað af hinu opinbera vegna ef til vill stöðu viðkomandi hjá ríki og eða bæ. Ef einhverjum er illa við einhvern þá er stöðutáknið oft notað til að búa til ótta gagnvart hinum aðilanum og ég tala nú ekki um ef sá opinberi klæðist öðruvísi fötum en flestir hinna þá getur sá skrautlega klæddi skapað enn meiri ótta vegna stöðu sinnar sem birtist oft með óskiljanlegum hroka sem flestir hér um slóðir kannast við en kjósa að halda kjafti, sem kalla má þá stofufangelsi.
Valdníðsla hefur tíðkast hér og annarsstaðar
um land allt og hefur farið vaxandi með níu aðkomufólki sem er auðvitað að öllu
jöfnu ágætis fólk, en samt er alltaf einn og einn svartur sauður í hjörðinni
sem eyðileggur fyrir flestum hinum sem er alveg hábölvað og engin á að kunna að
meta.
Sumir komast upp með allan andskotann og
brosa út að eyrum vegna þessa yfirgangs og skamma sýn ekkert fyrir
eineltisskapinn og hafa á sinni stefnuskrá að brjóta viðkomandi alveg niður á
allan hátt og eru menntaðir í niðurbrotsfræðum, þetta er ekkert annað en
einelti sem er kostað þar á meðal af sjálfu ríkisvaldinu og líka það að ef
maður mótmælir ríkistuddunum þá er það nánast undantekningarlaust að viðkomandi
er kallaður á ríkisteppið þó að viðkomandi ríkistuddi hafi margsinnis brotið
þær laganareglur sem ríkistuddarnir eiga að fara eftir ásamt okkur hinum, en
ríkisreknu eftirlitstuddarnir komast upp með allan fjandann sem við hin verðum
að eta það sem úti frís og án sólarlandaferða nokkrum sinni á ári, enda er
alþíða Íslands ekki á ríkisjötunni.
Hingað til Hólmavíkur vill fólk flytjast til
og það er hryllilega slæmt þegar fólk flyst í burtu eins og hefur verið að
gerast hér á Hólmavík en fleiri hafa þó flutt til Hólmavíkur en farið, en mér
er sagt að einelti hefur verið stundað í stofnunna batteríi Strandabyggðar sem
er alveg örugglega rétt, ég þekki það líka af eigin skinni og hver er það sem
setur einstakling í eineltisstellingar
verður ekki fátt um svör, svörin er að finna í fundargerðum
sveitarstjórnarinnar í gegnum árin.
Þannig að niðurstaðan í gegnum árin er sú
gagnvart síðustjóranum að hann hefur í fjóra áratugi eða svo verið að rita vítt
og breitt um hitt og þetta svo sem um vegagerð hér og þar og um það sem þarf að
gera að hans mati bæði þar og ekki síst um þau mál sem snúa að sjálfum hreppnum
og líka það að taka myndir af hinu og þessu og birta það á netinu er oft ekki
vel séð og viðkomandi refsað á eineltislegan hátt (sjá fundargerðir
sveitarstjórnar) og hver á að túlka það að hver er meiri refur en hinn og
greinilega á að fjölga í refabúi Strandabyggðar sem hefur verið að þenjast út á
kostnað smáfuglana (mófuglanna) sem fer beinustu leið í gin refsins með sama
áframhaldi eins og virðist eiga að vera
ennþá við líði um ókominn ár.
Sum sé að einelti er og hefur verið skipulega
stundað af ríkisvaldinu í mörg ár hér á Hólmavík ásamt stjórnendum
hagsmunasamtakaflokka sem hafa komið að stjórnum Hólmavíkurhrepps og síðar
Strandabyggðar á hverjum tíma fyrir sig og gera það enn, stundað einelti á
sorglegan hátt. Við viljum eiga heima hér á Ströndum í sátt og við allt og
alla, og það er helvíti hart að engin eða fáir sem þora að tjá sig á opinberum
vettvangi um málefni líðandi stundar, þorum vart að gera það áfram án þess að
þurfa að vera með ótta um að það að vera nánast tekin út af hinu Íslenska
sakramenti um ókomin ár er ekki neinum bjóðandi hvorki mér eða þér né nokkrum
öðrum.
Ps. Virðum hvort annað án valdníðslu.
20.11.2012 22:59
Horft frá Ennishálsi og yfir firðina Kollafjörð - Steingrímsfjörð í dag með Selströndina í bakgrunni
20.11.2012 22:48
Kollafjörður í dag og er enn sem betur fer snjóafátækur núna og vonandi verður hann það áfram
20.11.2012 22:43
Miðdalur í Tungusveit í dag er nú frekar eins og er afar snjóléttur eins og myndirnar sína afar vel.
20.11.2012 22:41
Vegagerð á milli Stakkanes og Grænanes þokast smá innávið en tíðarfar er nú ekki gott til vegagerðar
Hörmulegar myndir sem voru teknar í dag í
afspyrnu lélegum birtuskilyrðum og veðurfars.
19.11.2012 22:14
www.123.is kerfið hefur verið í bölvuðu rugli í nokkurn tíma - erfitt að seta inn myndir og texta.
Sæll.
Engin spurning um að teljarinn er í ruglinu - hef ekki komist í að skoða það fyrir öðrum meira aðkallandi málum. Ætla fyrst að finna út hvað veldur innskráningarvandamálum / vandamálum við að setja inn efni. Svo fer ég í teljarann - en fyrst verð ég að koma kerfinu í lag.
Þið verðið að gefa mér smá breik í þessu, allt er gert til að þetta virki 100%
- það planar enginn náttúruhamfarir (má líkja því sem gerðist við það, fór allt
miðlægt netkerfi úr lagi).
Kær kveðja / Med
vänliga hälsningar,
Vefstjóri 123.is
15.11.2012 22:56
Nokkrar endurbirtar myndir frá rifrildi Hilmis ST 1 sem fram fór 18 desember 2008.
Þessa mynd sem birtist á vef Þorgeirs Baldurssonar http://thorgeirbald.123.is/ 17 desember 2008 er svolítið merkileg vegna þess að deginum eftir (18 desember) birtingu myndarinnar var Hilmir ST 1 Rifin í tætlur og hann jarðaður á ruslahaugunum. Þannig fór nú um sjóferð þá.
14.11.2012 23:19
Framundan er rjúpna laus rjúpnahelgi enda er ekkert af henni hér - refurinn hefur etið þær allar
Rjúpna refa
og fiskabaninn með meiru Halldór Logi Fr með nokkrar rjúpur upp í Vatnadal 2008
14.11.2012 22:50
Þessi mynd er tekin af frænda mínum heitnum Guðmundi Trausta Kristinssyni 1986 í Bolungarvík
14.11.2012 15:41
Hebbi - Herbert Guðmundsson stórpoppari kom við hjá gamla á Berginu í janúar mánuði 2007.
14.11.2012 14:58
Sleðaferð norður til Drangaskarða 19 apríl 2008, myndir teknar upp á skörðunum til allra átta
- 1
- 2