Færslur: 2018 Júní
23.06.2018 19:31
Hólmavíkurrall 2018 og Hamingjudagarnir 2018....
Dagskrá Hamingjudaga 2018
Hamingjudagar verða fimmtudaginn 28. júní - sunnudagsins 1. júlí.
Þessi dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.
Nýjasta útgáfan kom inn á vefinn 17. júní kl 23:00
Fimmtudagur 28. júní
13:00 - 17:00 Náttúrubarnaskóli með hamingjuþema á Sauðfjársetrinu í Sævangi fyrir náttúrubörn á öllum aldri á 3.000 kr. Skráning í síma 661-2213, á facebook-síðu Náttúrubarnaskólans eða á netfanginu natturubarnaskoli@gmail.com
18:00 Fótboltamót HSS á Grundum
Föstudagur 29.júní
17:00 Setning hátíðar og menningarverðlaun afhent í Hnyðju
17:00 Sýningaropnun á ljósmyndasýningunni Frjáls eftir Brynhildi Sverrisdóttur í Hnyðju
18:00 Nerf-byssubardagi 10 ára og eldri í Íþróttahúsinu
18:00-21:00 Hlaðborð hjá Café Riis, borðpantanir í síma 451-3567
18:00 Hamingjugrill í Fiskmarkaðinum, öll hverfi grilla saman
20:00 Brenna við minnismerkið og Pétur Örn Guðmundsson (Pétur Jesú) spilar fyrir gesti
21:00 Hulda - Hver á sér fegra föðurland, tónleikar með Hildu Kvam og Þórhildi Örvarsdóttur í kirkjunni. Aðgangseyrir á tónleikana er 3000 krónur, eldri borgarar og öryrkjar 2000 krónur,ókeypis inn fyrir 12 ára og yngri
22:00 Pub quiz fyrir 18 ár og eldri með Pétri Erni Guðmundssyni (Pétur Jesú) á Café Riis, 1.000 kr. inn
23:00 Ball með hljómsveitinni Króm fyrir 18 ára og eldri á Café Riis
Laugardagur 30. júní
08:00 Rallý hefst, staðsetning auglýst síðar
10:00 Hamingjuhlaupið hefst við vegamótin Vestfjarðarvegar (nr. 60) og gamla Tröllatunguheiðarvegarins
10:00 Ganga með Félagi eldri borgara, lagt verður af stað frá N1 merkinu á Kaupfélagsplaninu og gengið að Gvendarbrunn í Kálfanesi
10:00 Krakkazumba í Íþróttamiðstöðinni
11:00 Aquazumba í Íþróttamiðstöðinni
13:00 Viðgerðarhlé í rallý á planinu fyrir framan Félagsheimilið
13:30 Rallý hefst, staðsetning auglýst síðar
13:00-17:00 Frjáls, ljósmyndasýning eftir Brynhildi Sverrisdóttur í Hnyðju
13:00-17:00 Hamingjumarkaður í Hnyðju
13:00-16:00 30 ára afmælissýning í leikskólanum Lækjarbrekku
13:00-15:00 Hólmadrangur býður í vöfflur
13:00-15:00 Opið hús á ýmsum stöðum um bæinn
13:00-17:00 Karnival á Galdratúninu
Hoppukastalar og önnur leiktæki
Strandahestar og teymingar
Blaðrarinn með blöðrudýr
Strandanornir á vegum leikfélags Hólmavíkur með spádóma og leiksýningu
Hamingjuhlauparar mæta í mark
Hnallþóruhlaðborð
Gunnar Jóhannsson, Gunnlaugur Bjarnason og Guðmundur Jóhannsson spila fyrir gesti
Rjómatertukast
17:00 Leikhópurinn Lotta í Kirkjuhvamminum
18:00-21:00 Hlaðborð hjá Café Riis, borðpantanir í síma 451-3567
21:00 Tónleikar með Bjartmari Guðlaugssyni fyrir 18 ára og eldri á Café Riis, 1.500 kr inn
23:00 Ball með hljómsveitinni Króm fyrir 18 ára og eldri á Café Riis
Sunnudagur 1. júlí
11:00-14:00 Brunch/morgunverðarhlaðborð á Café Riis, borðpantanir í síma 451-3567
11:00 Úti-fjölskyldumessa í Tröllatungu
11:00 Jóga á Galdratúninu
13:00 Furðuleikar í Sævangi
23.06.2018 19:21
Sumarsólstöður. Kvöldsólin þegar sólin er hæðst á lofti um miðnættið 21.6 2018
23.06.2018 18:37
Ísafjarðarferð - Möngufossog á Snæfjallaströnd og Vigur.....
10.06.2018 20:24
Þá er steypuvinnu að mestu lokið við nýju brúna á Bjarnarfjarðaránni
Þessir steypubílar ásamt mörgum öðrum bílum komu með 328 rúmetra af steypu í fyrrinótt og í gær. Steypan kom frá Borgarnesi.
10.06.2018 20:23
Smábátahöfn - Ásmundarnes og Kaldrannaneskirkja í dag.
10.06.2018 20:14
Í dag. Alskona furðuverur í fjörunni við Sléttuvík sunnan Kaldrannanes á Ströndum.
10.06.2018 20:02
Laugardagsrúnturinn keyrt fyrir Vatnsnes og Hvítserkur myndaður.
10.06.2018 19:33
Stolt álftamóðir með sitt afkvæmi á Drangavatni á Stikuhálsi..
07.06.2018 20:01
Reykhólahreppur. Keirt uppundir Laxárdalsheiðinna upp af Geitafelli
02.06.2018 21:09
Helgarferð til Djúpuvíkur í smá kaffi og nokkrir fossar Stranda myndaðir
- 1