Færslur: 2019 Febrúar
28.02.2019 19:26
Vorið nálgast. Tjaldurinn er mættur í Steingrímsfjörðinn....
28.02.2019 15:53
Rölt dagsins í blíðunni í dag upp að Hrófbergsvatni í Vatnadal....
26.02.2019 18:40
NEI TAKK Umhverfisráðherra.
NEI TAKK Umhverfisráðherra.
Margt er nú reynt að hræra í heilabúum Íslendinga með alskonar fyrirsögnum svo sem um mikil víðerni ef ekki stæðstu í Evrópu sem eiga að vera á Ófeigsfjarðarheiðinni. Það vita það Kanski ekki allir hvernig landið liggur frá Steingrímsfjarðarheiðinni og til Ófeigsfjarðar land sem fáir hafa séð vegan snjóa sem fer oft á tíðum ekki fyirr en seinni parts Júní þá koma vatna súpan í ljós sem engin hefur nitjað í aldanna rás en það mun klárlega breytast þegar verður búið að reisa mannvirkið Hvalárvirkjun. Það skal upplýst að ég undiritaður hef oft veitt fallega bleikju í mörgum vatnanna á þessu svæði þó mest að vorlagi. (Smá inskot frá vinnu minni í Blönduvirkjun.) Ég var nokkrar vikur í Blönduvirkjun sem bílstjóri á vörubíl, þar komu mótmælendur í tuga vís og fréttaliðið elti þessa vittleysinga út um allar koppa grundir og líka til Kárahnjúkavirkjunnarinnar og koma öruglega til Ófeigsfjarðarheiðarinnar á næstu mánuðum í nafni náttúrunnar og eru atvinnu mótmælendur og fá borgað fyrir það frá miljarðaliðinu sem hafa klárlega aldrei komið á svæðið bara séð það á myndum og myndskeiðum frá þekktum lækni og öðrum álíka hryðjuverkasinna úr verslunnargeiranum. Margir spyrja og eða bara staðhæfa að Vestfirðingar hafa ekkert að gera með svona virkjun því að rafmagnið muni fara allt suður eða jafn vel til útlanda. Svo eru það helvíti margir sem hafa ekki hugmynd um það hvaðan rafmagnið kemur, það kemur bara úr innstungunni á veggnum puff þetta blessaða lið virðist vera heiladautt. Hringtenging vegarinns frá Ófeigsfirði til Ísafjarðardjúpsins mundi gjörbreyta öllu hvað ferðamanninn varðar og allskonar þjónustu tengda ferðamanninum öllum tímum ársins svo sem jeppa og snjósleðafeðir á sumrum sem vetrum. Mesta ógnin sem flæðir yfir okkur Íslendinga eru þessir umhverfisfræðingar með ógnvaldin sjálfan Umhverfisráðherran sem var ekki einu sinni kosin inn á Þjóðþing okkar Íslendinga VG liðið sótti þessa ógn útfyrir sjálft Alþingi Íslendinga sem er VG til háborunnar skammar. Mér er nákvæmlega sama hvað aðrir segja um þessi skrif mín og stafsettningarvillur hér og þar breytir engu þeir skilja það sem vilja skilja það sem ég set hér nokkur orð á blað/net alþýðunnar, þetta er ég og það er engin að hvetja mig eða að biðja mig að skrifa þetta ég geri það sem mig langar til að gera að koma mínum skoðunum til annara þó að sumir verða brjálaðir það er þeirra mál en ekki mitt. Ps. Stöndum saman um framtíð Vestfiarða og látum ekki milljarðanna renna óbeyslaða til sjávar og vonandi getum við ekið að sumarlagi á ágætis vegum frá Ófeigsfirði til Ísafjarðardjúps 2024 það væri tær snilld.
23.02.2019 20:35
Strandagangan var í dag í Selárdal og það var metfjöldi sem kepptu eða 172 + allir hinir
19.02.2019 21:26
Rjúpa. Nú eru allmargar rjúpur hér við Hólmavík og á fleirum stöðum á Ströndum.
19.02.2019 21:17
Nýi vegurin um Bjarnafjarðarháls (Skarð) er nánast ófær í fyrstu snjóum ekki gott það.
14.02.2019 20:24
Kaldbaksvíkin í dag 14/02 2018. Fuglin komin í Kaldbakshornið þá er vorið rétt handan við hornið.
13.02.2019 21:37
Myndir dagsins 13 febrúar 2019.
13.02.2019 21:12
Hrútafjarðarskrepp 9 febrúar....
09.02.2019 16:46
Hólmavík í dag 9 Febrúar 2019.
09.02.2019 16:43
Um daginn. Morgun upprisa sólar með Grímsey í forgrunni....
09.02.2019 16:37
Ein gömul frá 1988. Mynd tekin frá Hrófbergshólnum og horft fram dalin sem er frekar snjóþúngur
09.02.2019 16:21
Samanburður á myndum. Steinabrekka 6 febrúar 2019 hin eldri neðri er frá 1988
09.02.2019 16:07
Fann þessa á netinu. Vegavinna við Líkfaralá og tjöld á Brekkutúninu
04.02.2019 17:42
Skarpp suður yfir heiðar í góða veðrinu í dag.
01.02.2019 16:05
Verður endurbygt eða rifið?. Gamla hrörleka Kópnesið er afar hættulegt öllum ef hreifir vind.
01.02.2019 16:01
Nokkrar snjó vetrar myndir frá póstferðinni í dag 1 Febrúar 2019.
- 1