17.04.2007 22:39

Olíuhreinsistöð á Strandirnar.

Í dag og í gær hafa allir fjölmiðlar Íslands tröllriðið öllum fréttatímum með það að það séu miklar líkur á því að olíuhreinsistöð verði reist á Vestfjörðum, nánar tiltekið í Dýrafirði. Gott og vel hugmyndin er býsna góð ef? þessi magnaða frétt reynist rétt. Þessi frétt dunkaði upp í Skagafirðinum fyrir átta árum síðan, og þá var allt orðið klappað og klárt með land fyrir þessa stöð og fjármuni líka, en þessi frétt dó eftir kosningarnar 1999.

En ef þetta er allt satt og rétt sem þessir höfðingjar segja sem fjölmiðlarnir töluðu við, ráðamenn og þann mann sem var talað við í Kastljósþætti í fyrradag Ólaf Egilsson sennilega sendiherra? þá væri albesta lausnin að hafa þessa olíuhreinsistöð skammt frá Gjögri í Árneshreppi þar sem nægt er landrými til allra átta ásamt því að aðdjúpt er við Gjögurbryggjuna og lítið mál að gera góða höfn þar, og þar er líka góður flugvöllur. Og líka það að rafmagn er skammt undan Gjögri með virkjun Hvalár í Ófeigsfirði, plús öllu því sem fylgir svona batteríi. Nýr vegur norður í Árneshrepp á næstu 3 til 8 árum væri algjör demantur fyrir allar Strandirnar og Vestfirðinga í heild.

En til vara væri hægt að reisa þessa olíustöð á Bjarnarnesi á Selströnd þar sem landrými er örugglega alveg nægt fyrir svona starfssemi. Gerum meira en tölum um svona hugmynd, komum Ströndunum á Íslandskortið. Tími Strandanna er að skella á.

           
           Gjögur svæðið í allri sinni mynd.
           
           Gjögurflugvöllur og Reykjarneshyrnan í baksýn.
        
        Varðan á Bæjarfellinu. Bjarnarnes í baksýn og Húnaflóinn.