21.08.2012 23:59
Fyrrum vinsæla Hólmavíkurhljómsveitin Þyrlarnir (Þyrlaflokkurinn) koma saman á Réttarballi.
Hljómsveitin
Þyrlarnir eða bara sem kallaði sig síðar Þyrlaflokkurinn sem starfaði frá um
1970 og til 1984 eða svo hafa ákveðið að koma saman á ný og spila á réttarballi
á Laugarhóli Í Bjarnarfirði 22 september
næstkomandi.
Það verða
flestir fyrrum meðlimir sveitarinnar með í för að sögn eins meðlima
sveitarinnar Gunnlaugs Bjarnarsonar Strandveiðisjómanns og prestakalls og
gamansagnarmanns með meiru, og það má nefna líka að Gunnar Jóhannsson athafnarmaður
og Hveravíkurbóndi og reiðhestakall og líka Grímseyjareiganda hinn nýi ásamt mörgum öðrum verður með í för og líka
verður Leifur Hauksson útvarps og sjónvarpsmaður og líka Bakkabúi í
Bjarnarfirði svona af og til og líka verður Guðmundur Jóhannsson burt fluttur Hólmvíkingur
og söngfugl góður og síðast en ekki síst er Rut Bjarnadóttir Hólmvíkingur og Svíþjóðarbúi
og húseigandi á Kópnesbrautinni sem ætlar að mæta á svæðið og þenja sína rödd, og
svo hefur hljómborðsleikarinn og söngfuglinn stórgóði Stefán Jónsson ruslakall hér
á Hólmavík og granni minn góður bæst í þennan föngulega hóp.
En þegar
þetta er ritað rétt fyrir tólf á miðnætti 21 ágúst 2012 er ekki alveg á tæru
með trommara sveitarinnar hver hann verður Ingimundarson eða Ragnarsson eða
einhver annar kemur bara allt í ljós þegar nær dregur réttarballsins.
En það
verður örugglega gaman hjá þeim að koma saman og halda alvöru sveitaréttarball
eins og þau voru best á Laugarhóli og víðar á Ströndum og á landi voru á
síðustu öldinni sem kemur aldrei aftur sem er hrikalega slæm og rugluð þróun á flestan hátt. Þá er bara að fara gera ballskóna klára og mæta á
réttarballið á Laugarhóli 22 september næstkomandi.