Færslur: 2012 Maí
31.05.2012 22:27
Triton ST 100 nýjasti og hraðskreiðasti Strandveiðibátur Strandamanna í prufusiglingu í dag.
31.05.2012 00:32
Laust eftir miðnættið kom til Hólmavíkur glænýtt og flott skip Triton ST 100. Til hamingju eigendur
30.05.2012 22:49
Drangarnir á Gálmaströndinni eru flottir og í það minnsta er einn þeirra með flottan steinhaus
30.05.2012 22:43
Á þessum tíma sem flestum öðrum er afar erfitt að mynda lita fugla hvað þá Músarindill
30.05.2012 22:37
Kaldrannanes við Bjarnarfjörð.Þessar myndir eru sérstaklega teknar af beiðni árgerðar 07/12 1956
30.05.2012 22:35
Kálfanes á laugardaginn var, útsýnið er frábært frá hólnum.
30.05.2012 22:34
Hnitbjörg í morgun, en ekki finnst mér nú fögur sjón að sjá skelfinguna handan Víðidalsár hauganna
29.05.2012 21:32
Ennþá hefur Æðukollan sloppið frá sjónum við ósa Víðidalsár en er skrambi nálægt flæðarmálinu
28.05.2012 23:29
Tilboð óskast. 11-048 Strandavegur (643), Djúpvegur - Geirmundarstaðavegur 29.05.12 19.06.12
Samkvæmt nýjustu framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar er þetta staðreynd.
Strandavegur (643), Djúpvegur -
Geirmundarstaðavegur 11-048
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endur og nýlögn
Strandavegar (643) frá Djúpvegi að Geirmundarstaðavegi
í Steingrímsfjarðarbotni. Lengd Strandavegar á
útboðskaflanum er 2,8 km. Aðrir vegir eru 0,4 km langir.
Framkvæmdin er í sveitarfélaginu Strandabyggð.
Helstu magntölur eru:
Fylling og fláafleygar . . . . . . . . . . . . . 94.750 m3
Rof og slettuvarnir . . . . . . . . . . . . . . . 9.800 m3
Skeringar í vegstæði . . . . . . . . . . . . . . 63.800 m3
þar af bergskeringar. . . . . . . . . . . . . 16.900 m3
Bergskeringar í námum. . . . . . . . . . . . 12.700 m3
Neðra burðarlag . . . . . . . . . . . . . . . . . 11.600 m3
Efra burðarlag . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4.700 m3
Tvöföld klæðing . . . . . . . . . . . . . . . . . 21.000 m2
Verkinu skal að fullu lokið 15. nóvember 2013.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut
66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka)
frá og með þriðjudeginum 29. maí 2012. Verð
útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þriðjudaginn 19. júní 2012 og verða þau opnuð þar
kl. 14:15 þann dag.
28.05.2012 21:42
Gulltindur ST 74 frá Ingólfsfirði á Ströndum á þurru landi, og Gvendur á Eyrinni HU 15 kom að landi
28.05.2012 21:39
Brúargerðin í Steingrímsfirðinum gengur vel, verður hún minnisvarði um veg sem aldrei kom?
27.05.2012 22:16
Í dag fór ég upp á vestasta hluta Byrgisvíkurfjalls í sól og talsverðum hita og myndaði dýrðina
27.05.2012 22:05
Reykhólar heimsótt í rigningu og koki og þoku kenndu veðurfari í gær.
26.05.2012 21:16
Strandamaðurinn Þorlákur Guðbrandsson frá Veiðileysu var að kinna fjórhjól hér á Hólmavík í dag
Kynningin var á vegum www.ellingsen.is sem er umboðsaðili fyrir þessi fjórhjól og önnur samskonar tæki ásamt fleiri tækjum sem þar eru.
26.05.2012 21:13
Karrarjúpan var frekar dapurleg og blaut á að líta í rigningunni í dag.Myndir teknar upp við virkjun
26.05.2012 21:11
Tjaldurinn og Rauðbrystingur inn í og í fjöru við Stórugrund í gær.
25.05.2012 22:22
Golfklúbburinn á Hólmavík í stóræðum um þessar mundir.
Nú stendur Golfklúbburinn á Hólmavík í stóræðum er búinn að gera púttvöll við galdrasamnið, held að það sé frítt fyrir börn og gamlingja, en talið verður í Efrum , Kanadadollurum og noskum krónum ef búið er að þvo olíuna af þeim. Einnig hef ég heyrt að velkomið sé að fá Golfskálann og völlinn, fyrir fyrirtæki og hópa til að halda golfmót og grilla, þeir félagar í klúbbnum ætla að lána kylfur
Á Grundunum eru þeir bræður Þórður og Ninni aðalverktakarnir en verið er að gera allavega 4 ný grín. Aðal grashirðirinn er meistari Mundi Páls sem sér vélum og tækjum gangandi, hann er svo áhugasamur að Guðmundur V er hættur í golfi og farinn á sjóinn aftur.
25.05.2012 22:08
Tillaga til þingsályktunar um lagningu heilsársvegar í Árneshrepp á Ströndum.
Gott og blessað að þingmenn láti bera á sér svo sem annað veifið eða svo. En þessi Þingsályktunartillaga er löngu runnin úr í sandinn hvað vegagerð varðar frá botni Steingrímsfjarðar um Bassastaðarháls um Bjarnarfjörð, og frá Kaldbaksvík og norður til Norðurfjarðar á Ströndum. Þessi tillaga er og virkar sem ljót Barba brella af hálfu þeirra sem standa að henni, og það skiptir ekki neinu í hvaða flokki þau standa. Og að vitna í sjálfan Barba brellarann frá Hornafirði er flutningsmönnum til skammar. Auðvitað vilja allir fá heilsársveg norður til Árneshrepps það er ekki málið, fyrst þarf vegurinn að vera heilsársfær frá botni Steingrímsfjarðar og til Bjarnarfjarðar áður en farið er í það að byggja vegin upp frá Kaldbaksvík og norður í hrepp og að hafa hann einbreiðan 4 metra er argasta bull af hálfu flutningsmanna. Þegar tækin eru komin á staðin er ekki svo mikill munur á að hafa hann 4 metra breiðan með útskotum eða 6.5 á breidd. Þessi tillaga er því og miður útrunnin enda eru alþingiskosningar á næsta ári eða vori 2013.
Nánar er hægt að skoða þessa tillögu hér > 140. löggjafarþing 2011-2012. Þingskjal 1417 - 815. mál. http://www.althingi.is/altext/140/s/1417.html