Færslur: 2012 Maí
16.05.2012 22:42
Nýjasti Strandveiðibáturinn Petra ST 20 kom úr sínum fyrsta róðri til heimahafnar síðla dags í dag.
16.05.2012 22:39
Myndir teknar beggja vegna Miðdalsár í sólskininu í dag. Og myndavélinni beint til fagurfjalla fögru
16.05.2012 22:37
Slökkviliðið var að hreinsa bryggjuna þegar mynda kallinum bar að garði í dag.
16.05.2012 22:30
Farmall Cub nafnið er mér afar kært,Td 1 var á slíkri vél á Hrófbergi,númerið fékk ég frá Hirti Þór
Smá söguþráður með Td 1. Heima á Hrófbergi ólst ég upp með Td 1 Farmall Cub sem hefur sennilega verið árgerð ca 1940 til 1945 eða svo. Þetta var mögnuð vél á margan hátt, létt og með splittað afturdrif með hæl ástigi. Þessa vél ef ég man rétt kom komst fyrst í hendur frænda mínum Magnúsi Hanssyni og síðar syni hans Pétri Magnússyni. Eftir að hún kom til notkunar á Hrófbergi var hún notuð til að sækja hey á engjar eins og það var kallað, engjarnar á þeim tíma voru rétt fyrir framan Fitjavatn í Vatnadal og þá þurfti þessi lita magnaða vél að fara upp Hrófbergsháls uppaf þeim stað sem er verið að byggja nýa brú yfir Staðarána við svo nemdu Svörtubakka. En þarna upp var og er þó nokkuð bratt og ferlega óslétt og það með kerru aftan í þessari léttu vél.
En ef ég geri langa sögu smá styttri þá endaði þessi ágæta vél Farmall Cub sína lífdaga utanvert við í túnjaðri Hrófbergs um ca 1986 ásamt fleiru sem var jarðað þar þegar var gerður nýr vegur í landi Hrófbergs. En síðustjóri var og er ekki alsáttur við þá jarðarfaraframkvæmd sem var gerð þá á þeim tíma. Sumir telja allt sé ónítt drasl sem fer ekki í gang eða einkvað sé að því sem þarf að gera við? Eða sem getur sagt sögu viðkomandi vélar sem þessi vél hefur sannarlega gert og í dag hefur hún þótt sögulegur dýrgripur af betrigerðinni sem hvílir nú lúin járn bein í túnjaðri Hrófbergs án þess að hafa viljað það.
16.05.2012 01:03
Nýr Strandveiðibátur var að koma til Hólmavíkur og heitir Petra ST 20 ,eigandi er Ástvaldur Pé
Til hamingju með snekkjunna Ástvaldur Strandamaður Pétursson.
15.05.2012 22:20
Nú er hellingur af Rauðbrystingum í fjörum Stranda og líka af Tildru,myndir frá Kollafirðinum í dag
15.05.2012 22:14
Hrófberg, Víðivellir, Staður, Staðardalur, Bassastaðir, Ásmundarnes og Bjarnarfjörður - myndir í dag
15.05.2012 22:12
Þiðriksvallardalur um níuleitið í morgun, frekar vetrarlegur.
13.05.2012 22:05
Rækjuveiðiskipið Eyborg ST 59 er komið til heimahafnar. Nú er skítaveður á Strandasvæðinu.
12.05.2012 17:58
Fór í hæfilega langan Skeljavíkurfjallarölt göngutúr í dag í ágætis veðri, en spörfuglalíf var lítið
Fleiri myndir á nonnanum.
12.05.2012 17:32
Verður umhverfisdagur Strandabyggðar haldin í þessari ljótu ruslakistu í boði Sorpsamlagsins
11.05.2012 20:18
Grátmúraskömmin hefur rýrnað skammarlega lítið í dag, enn eru þetta mikil lýti sem blasir við öllum
09.05.2012 21:45
Ekki er nú veðurspáin góð frá og með sunnudeginum, ungviðið að kvikna til lífsins á flestum sviðum
Sandskerið heimsótt 09/05 Æðar og Gæsahreiður eru nokkur þar.