Færslur: 2012 Júlí
09.07.2012 20:06
Grímseyjan fagra með Uxann sinn flotta og trönurnar í forgrunni.
09.07.2012 19:57
Um 4 leitið í dag rákust tveir bílar saman við gatnamótin í Staðardal,með slys á fólki er ekki vitað
06.07.2012 22:24
Slökkvulið Strandabyggðar að bleyta í hvamminum og ungliðum ungliðarvinnunnar í dag.
06.07.2012 22:21
Í gærkveldi gerðist merkur viðburður þegar Staðaránni var hleypt undir níu brúna, bara sæla
05.07.2012 21:01
Nía listaverkið hér á Hólmavík kemur þægilega á óvart hvað fegurð og samspil kirkju varðar.
05.07.2012 20:59
Hólmavíkurbátar koma að landi í dag. Tríton ST 100 fékk ágætis skammt á Strandveiðum í dag 738 kg
05.07.2012 20:56
Myndir teknar frá Bakkagerði og til Hvítabjarnarslóða með Eiríksjökul og Langjökul í bakgrunni
05.07.2012 17:18
Ísbjarnarfrétt. Að öllum líkindum hefur Ísbjörninn verið í Bitrufirði á Ströndum í desember
Í Desembermánuði sá íbúi í Bitrufirði á Ströndum Ísbjarnarför við bæinn sem hann/hún býr og hafði þegar í stað samband við Náttúrufræðistofnun íslands og tjáði þeim tíðindin með förin en á þeim bænum var þetta talið algjört bull og þvæla sem gæti engan vegin verið rétt.
En eins og alþjóð veit núna hefur sést til Ísbjarnar utanvert við Hvammstanga og hefur leit staðir yfir í allan dag og sömuleiðis að hluta í gær. Ekki er ýkja langt á milli Bitrufjarðar og Miðfjarðar einungis nokkrir kílómetrar, þannig að þá eru sterkar líkur á því að hann snúi til baka til Bitrufjarðar?
Strandamenn eru ýmsu vanir en þó ekki ýkja vanir Hvítabirnum, hvort Bjössi hafi haldið til í Ennishöfðanum er ekki vitað og hvort hann muni og eða koma til Stranda aftur verður tíminn leiða í ljós en alla vega verða menn að vígbúast og gera sig klára til að koma þessum ófögnuði fyrir kattarnef sem allra fyrst. Leitum og við munum finna kauða.
04.07.2012 21:57
Vatnadalurinn ávalt fagur og grösugur dalur með fallegu vötnin sín Hrófbergsvatn og Fitjavatn
04.07.2012 21:55
Nú fer Staðaráin að renna undir níu brúna, allt rask við ána verður að vera búið um komandi helgi
04.07.2012 21:34
Hver gerir þennan fjanda að krosskeyra á fjórhjólum út um allar mýrar í Vatnadalnum, bragðarefir
Þetta er
ekki veiðimannalegt og hvað þá refamannalegt að gera svona lagað. Svona för í
mýrum verða í mörg ár. Það eru fleiri álíka för en þarna fyrir framan Fitja og
Tjaldhólinn sem er fyrir framan Fitjavatnið og upp frá Vatnadalsánni á mót við
Víðivallaborgina og upp að greninu sem þar er og svo eru líka álíka
fjórhjólaför upp á Hrófbergsfjallinu á mínum heima slóðum sem engin kann að
meta svona lagað. Tilgangurinn er augljós þarna eru bragðarefir á ferðinni í
einkalöndum sem þeir hafa engan rétt til að djöflast á svona tækjum á mjög viðkvæmu landi hvað þá til að hagnast
á því á kostnað sveitarfélagsins. Þessir aðili/ar mega fara um þessi lönd ef
landið er á kafi í snjó á þessum fjórhjólum og sleðum en EKKI þegar landið er
marautt og afar viðkvæmt allri snertingu hvað þá snertingu fjórhjóla eins og
myndirnar bera bersýnilega með sér.