Færslur: 2012 Ágúst
31.08.2012 21:16
Þau lifa ennþá blómin í garðinum hjá þér þó að kuldaboli sé farin að láta minna talsvert á sig
31.08.2012 21:06
24 júlí 1993 var haldin flugdagur á Hólmavíkurflugvelli, komu margar flugvélar þar á meðal þessi
31.08.2012 21:04
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF GNÁ kom að Laugarhóli með þáverandi sjávarútvegsráðherra MB.
31.08.2012 20:47
Hólmavíkurhöfnin á hafísárunum köldu sem vonandi koma aldrei aftur. Myndir Þórarinn Reykdal
Hólmavíkurhöfnin
á hafísárunum köldu sem vonandi koma aldrei aftur. Myndir úr myndasafni Þórarins Ó. Reykdal.
29.08.2012 22:03
Sjómannadagurinn á Hólmavík fyrir einhverjum X mörgum árum síðan.
29.08.2012 22:02
Þetta flotta skip Guðbjörgin ÍS er örugglega ekki við veiðar við Íslandsstrendur nú síðustu ár
29.08.2012 21:52
Heyskapur hjá Bæjarbændahjónunum fyrir nokkrum dögum síðan.
27.08.2012 21:11
Þessar gömlu myndir frá 1954 fékk ég frá Hrafni Heimissyni Hornafirði, strandaður bátur og Hólmavík
Eigandi
myndana Hrafn Heimisson Hornafirði telur miklar líkur á því að þessi bátur sé í
Strandafjöru en hvar er ekki vitað. Faðir hans var kennari við Hólmavíkurskóla
1954 til 1955 og tók slatta af myndum. Svo er skrifað aftaná Hólmavíkurmyndina
og sagt frá nokkrum húsanöfnum sem þar eru, og það sést greinilega að
beinaverksmiðjan er í fullum gangi. Breytingin á tanganum er talsverð frá 1954
til ársins 2012.
27.08.2012 21:08
Haustlitirnir eru komnir í Stakkamýrina og reyndar á fleiri stöðum, sem er alltof snemmt.
27.08.2012 21:07
Borgirnar. Rak augun í þetta í gær, þarna hefur greinilega verið tekið mór eða einkvað álíka.
27.08.2012 21:03
Gamli vegurinn frá Hólmavík og inn að Ósbæjunum, með Bassastaði til hægrihandar.
26.08.2012 22:09
Venst bara vel verk listamannsins hvað þá þegar fer að frysta.
25.08.2012 22:31
Hérna var Villi Naglbítur að auglýsa í sumar fyrir síman.is
24.08.2012 22:27
Bæjarlistamaðurinn og ekki síst málaralistamaðurinn á Mýrunum kann að auglýsa sín góðu verk
24.08.2012 22:20
Selir við Kirkjuból slappa af og sleikja sólarljósið út í eitt.
24.08.2012 22:12
Nú er Lúpínan að springa út og gaman að vera vitni þess hve skothljóðin eru mögnuð frá henni
22.08.2012 23:06
Raggi og Sigga á Heydalsá fengu nýlega ofur dráttarvél af flottari gerðinni John Deere 6330
Ragnar og Sigga á Heydalsá fengu nýlega afhenta nýja John Deere 6330
dráttarvél, að sögn sölumannsins er þó alveg pláss fyrir fleiri almennilegar
dráttarvélar á Ströndum!
21.08.2012 23:59
Fyrrum vinsæla Hólmavíkurhljómsveitin Þyrlarnir (Þyrlaflokkurinn) koma saman á Réttarballi.
Hljómsveitin
Þyrlarnir eða bara sem kallaði sig síðar Þyrlaflokkurinn sem starfaði frá um
1970 og til 1984 eða svo hafa ákveðið að koma saman á ný og spila á réttarballi
á Laugarhóli Í Bjarnarfirði 22 september
næstkomandi.
Það verða
flestir fyrrum meðlimir sveitarinnar með í för að sögn eins meðlima
sveitarinnar Gunnlaugs Bjarnarsonar Strandveiðisjómanns og prestakalls og
gamansagnarmanns með meiru, og það má nefna líka að Gunnar Jóhannsson athafnarmaður
og Hveravíkurbóndi og reiðhestakall og líka Grímseyjareiganda hinn nýi ásamt mörgum öðrum verður með í för og líka
verður Leifur Hauksson útvarps og sjónvarpsmaður og líka Bakkabúi í
Bjarnarfirði svona af og til og líka verður Guðmundur Jóhannsson burt fluttur Hólmvíkingur
og söngfugl góður og síðast en ekki síst er Rut Bjarnadóttir Hólmvíkingur og Svíþjóðarbúi
og húseigandi á Kópnesbrautinni sem ætlar að mæta á svæðið og þenja sína rödd, og
svo hefur hljómborðsleikarinn og söngfuglinn stórgóði Stefán Jónsson ruslakall hér
á Hólmavík og granni minn góður bæst í þennan föngulega hóp.
En þegar
þetta er ritað rétt fyrir tólf á miðnætti 21 ágúst 2012 er ekki alveg á tæru
með trommara sveitarinnar hver hann verður Ingimundarson eða Ragnarsson eða
einhver annar kemur bara allt í ljós þegar nær dregur réttarballsins.
En það
verður örugglega gaman hjá þeim að koma saman og halda alvöru sveitaréttarball
eins og þau voru best á Laugarhóli og víðar á Ströndum og á landi voru á
síðustu öldinni sem kemur aldrei aftur sem er hrikalega slæm og rugluð þróun á flestan hátt. Þá er bara að fara gera ballskóna klára og mæta á
réttarballið á Laugarhóli 22 september næstkomandi.